Breiðfirðingur


Breiðfirðingur - 01.04.1958, Side 44

Breiðfirðingur - 01.04.1958, Side 44
42 BREIÐFIRÐINGUR þeim skemmtilegustu veðurskilyrðum sem hægt er að fá á Breiðafirði að vori til. Þórólfur hefur siglt nokkuð nálægt landi að sunnanverðu, og þegar inn eftir kom og fór að sjást vel til undirlendis og eyja, hefur stefnan verið fyrir sunnan Höskuldsey eða inn- hjá Þormóðsey. En í austur að líta kemur heildarsvipurinn þannig út fyrir sjónum manna, eins og inn í landið skerist firðir stórir, og er það rétt ályktun þegar komið er inn undir eyjar, því Klofningsfjall skiptir þá Breiðafirði í tvent inn að líta eins og kunnugt er, og virðast þar stórir firðir inn í landið, þar sem eru annars vegar Hvammsfjörð- ur og hins vegar Gilsfjörður. Ummæli sögunnar um hina stóru firði, eiga hér vel við útlitið. Þórólfur siglir útnyrð- ings hraðbyri undir heiðbjörtum vorhimni inn Breiðafjörð. En nú fer að þrengjast fyrir stafni, eyjar og sker virðast alls staðar vera framundan og innstraumur harður, nú er því ekki um annað að gera en fara að leita til lendingar. Það vildi Þórólfi til að hann var enginn viðvaningur á sjó, innan um sker og strauma, hann var því vanur frá Noregi, hann þekkti sjólag og straumlag innan um grynn- ingar, og hvar óhætt mundi vera að sigla, án þess að setja í strand, enda tókst honum það vel. En þegar inn að eyjunum er komið, sér hann að skammt muni til landtöku, hann skipar því að öndvegissúlunum skuli kastað fyrir borð, og var svo gert. Vindur og straum- ur lá þannig, þaðan sem þeim var kastað í sjóinn, að það var ekkert undravert við það, þó að þær ræki inn á stað þann á Þórsnesi, sem nú er kallaður Jónsnes. Ef marka má orð sögunnar, þá benda þau til, að þarna hafi þeim verið varp- að í sjóinn, en ekki suður við Reykjanes. Þar sem svo er tekið til orða, eins og áður er getið: „En þegar þær hóf frá skipinu, sveif þeim til hins vestra fjarð- arins, og þótti þeim fara eigi vonum seinna“. Það er ekki

x

Breiðfirðingur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Breiðfirðingur
https://timarit.is/publication/1303

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.