Breiðfirðingur - 01.04.1958, Page 54
52
BREIÐFIRÐINGUR
í þetta sinn varð Niels að hafa 2 báta til ferðarinnar,
því að farangur okkar var alltof mikill á 1 bát. Hann fór
því á vorbátnum sínum, var það sexæringur, sem „Hrímn-
ir“ hét og var hann sjálfur formaður á honum. Hinn bátur-
inn var „Bliki“ úr Akureyjum, áttæringur. Þann bát átti
Sigmundur Guðbrandsson í Akureyjum, ga.mall Jöklafor-
maður, en nú hættur Jöklaferðum vegna aldurs. Á Blika
vorum við fjórir og var formaður okkar Guðmundur Skúla-
son, vinnumaður Sigmundar, ötull og bráðlaginn sjómaður,
enda þurftum við á því að halda í þessari ferð. Strax og
búið var að ferma bátana, var lagt af stað. Vindur var af
austri og leiði gott. Loft var korgað, sem kallað er og veður-
útlit ekki gott, en treyst á að austan stormurinn mundi
haldast fram eftir deginum. Sigldum við nú í góðu leiði
á móts við miðjan Grundarfjörð, en þá hægði mjög fljót-
lega og þegar við komum á móts við Lárós, var komið
logn. Við tókum seglið og rérum á okkar árar. — Veður
spilltist nú fljótlega og að lítilli stundu liðinni fór að hvessa
af suðri. Þeir á Hrímni voru þá komnir út að Búlandi,
ysta tanga í Eyrarsveit, við sáum, að þeir settu upp segl
og sigldu út og stefndu á Rif, sem þótti góð taka.
Þegar við komum að Búlandinu gjörðum við eins. Við
sigldum með órifuðu á Blika, en Níels sigldi með rifuðu
á Hrímni og dró þá fljótt saman með bátunum. Þegar við
komum á móts við Hrímni, kallaði Níels til okkar og sagði
okkur að rifa seglið, því að óvíst yrði að betra væri við
það að fást síðar. Guðmundur spurði mig þá hvað mér
sýndist að við gerðum í þessu, og varð það að samkomu-
lagi að rifa ekki strax, því að vindur var þannig, að með
köflum hægði ofurlítið, og vissum við, að Bliki mundi þá
hafa of lítið segl og tefði það ferð okkar. Ekki leið á
löngu þar til Guðmundur kallaði til mín, og sagði mér að
fella seglið og rifa það og var það gjört. Fór þá Hrímnir