Breiðfirðingur


Breiðfirðingur - 01.04.1958, Page 56

Breiðfirðingur - 01.04.1958, Page 56
54 BREIÐFIRÐINGUR Brim við Hellissand. sleppa stýrinu, því að bátnum varð að stýra beint undan rokinu, en hinir tveir höfðu nóg að gjöra við austurinn,svo bátinn ekki fyllti. Eg átti að nota afturskautið. En vegna veðurofsans var erfitt að bera seglið fyrir staginn, því að það urðum við að gjöra, ef nota átti afturskautið. Eg sá að of mikil töf yrði að því, enda enginn mannskapur til þess. Allir við önnur störf en ég, en seglið stórt og erfitt viður- eignar í síkum veðurofsa. Ég notaði því framskautið og reyndist það nógu stórt. Þegar ég setti það upp, tók Bliki það tilþrifamikið rennsli, að á meiru var engin þörf. Hann hljóp nú marga báruna af sér og engin áföll lentu á hon- um, enda var stjórn Guðmundar ágæt. Þurfti nú ekki öðr- um austri að sinna, en þeim sem skóf inn. Hafði þá einn við að ausa og skiptust þeir á um það, liinir hásetarnir. Vegna bylsins og særoksins, sást lítið út frá borðstokkn- um. Við treystum því að vindstaðan hefði ekki breyzt og værum við þá nálægt réttri leið. En það reyndist nú annað. Eftir lítinn tíma fór vindstaðan að verða breytileg, sín kviðan úr hverri áttinni, en veðurofsinn engu minni. Kvið-

x

Breiðfirðingur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Breiðfirðingur
https://timarit.is/publication/1303

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.