Breiðfirðingur - 01.04.1958, Side 59
Minni Gleði
(Flutt á Þorrablóti í Flatey af Sveinbirni
Guðmundssyni.)
Háttvirtu, glöðu veizlugestir! Það hefur nú fallið mér í
skaut að tala um Gleði, þessa ævagömlu, en þó síungu himin-
komnu dís, sem enginn þykist hafa séð, því síður hönduni
farið. Fer hún þó sízt hulduhöfði.
Þótt skemmtiskráin ætli mér þetta ákveðna efni, er mér
ekki svo markaður bás, að ég megi ekki hverfa frá því um
stund, nota því tækifærið. En verið þið róleg, ég skal koma
aftur til Gleði og gera henni skil.
Það væri nógu vel til fallið, að fyrir hvert Þorrablót
væri valinn maður, sem skipaði sæti Þorra og hefði forsæti
á blótinu, en þar til kjörin drottning gleðinnar skipaði önd-
vegi með honum.
Ef ég hefði verið yngri, mundi mér hafa þótt gaman að
skipa þetta öndvegi við og við. Þá hefði konan mín elskuleg
skipað drottningarsætið. En því miður erum við nú orðin
of hnigin til þess að skipa þann bekk. — „Ellin hallar öllum
leik“. Eg finn þetta, blessuð verið þið, en ég kannast ekki
við það, — nema við kunningja mína. Og ég get sagt ykkur.
auðvitað í fullum trúnaði, að mér er hábölvanlega við það,
þegar í mesta meinleysi hrýtur út úr kunningja mínum
„gamli maðurinn“, ég tala nú ekki um „karlinn“ og ekki
verður um villzt, að átt er við mig. Eg hef víst oft sagt ykk-
ur það, og segi ykkur það enn. Eg ætla ekki að verða gamall!
Vitanlega verður ekki hjá því komist, að sá hlutinn, serr: