Breiðfirðingur - 01.04.1958, Page 70
68
BREIÐFIRÐINGUR
30 ár, í yndi, sæmd og aðbúnaði en í sömu tíð gáfust dæmi
til nálægt Breiðafirði. Ekki er mér unnt að telja og meta
allt það, er ég hef notið í húsi systurdóttur míns dýrmæta
húsbónda, madömu Jóhönnu Sívertsen, síðan hann fékk
henni bú sitt, eins og ég hef verið, ekki þjónn, heldur vin-
ur, að ógleymdu vinnufólksláni og eldsgögnum til hirðing-
ar fémunum mínum, hýsingu gesta minna, fjárgöngur og
ótal fleiru, allt án viðurlags. — Því gjöri ég eftirfarandi
testamenti:
1. Endurgjald fyrir seinasta ávikið takist af mínu lausa-
fé, án undantekningar, svo vidt, sem það kann að ná.
2. Jörðin Klettur í Kollafirði ásamt kúgildum, skal strax
við minn dauða verða fullkomin eign prestsins síra
Ólafs Sívertsen eða hans erfingja, til endurgjalds fyrir
minn útfararkostnað. — Þakklætisviðurkenning um, að
mörg varð mér stundin sæl, er ég sat undir ræðum hans
og til launa fyrir að hann standi fyrir uppfyllingu þessa
testamentis.
3. Eiríkur litli Kúld Sívertsen, sem ber nafn míns elsku-
lega húsbónda, eignist fullkomlega strax við minn
dauða jörðina Hlíð í Þorskafirði meðfylgjandi húsum
og kúgildum, án undantekningar.
4. Þótt mínir núlifandi ættingjar ekki hafi sýnt mér vel-
gjörðir, vil ég, að jörðin Múli í Kollafirði afhendist
strax við minn dauða, sýslumanninum, til löglegrar
deilingar þeirra á milli“....
Það vildi svo til, að Einar varð bráðkvaddur tæpum mán-
uði eftir að hann gjörði þessa erfðaskrá. Hann var þá á
leið úr Flatey upp á Barðaströnd og dó í bátnum. — Þeg-
ar var farið að athuga erfðaskrána kom það í ljós, að
hún var óundirskrifuð og vottalaus. — Ut frá þessum erfð-
um eftir Einar urðu mikil málaferli, sem lauk svo, að síra
Olafi Sívertsen tókst, með aðstoð Guðm. Scheving og