Breiðfirðingur - 01.04.1958, Side 75
BREIÐFIRÐINGUR
73
Þá sinnuleysis sultarlogn
sækir að og horinn,
yrði feginn ef að hrogn,
ætti þá á vorin.
Kaþólska sjúkrahúsið í Stykkishólmi.
Guðmundur Gunnarsson frá Nýp á Skarðsströnd var
fluttur til stykkishólms og stundaði þar bókband þegar á-
kveðið var að byggja kaþólska sjúkrahúsið á hæð einni í
kauptúninu árið 1932. — Hann var vel hagmæltur maður
og orti þá þessa vísu:
Bráðum rís bygging á hólnum,
brosir hin heilaga mær.
Þar verður klerkur á kjólnum,
kaþólskur ofan í tær.
Jónas Skógstrendingaskáld.
Jónas, sem kallaður var Skógstrendingaskáld, var sonur
Gísla á Klungurbrekku á Skógarströnd, sem einnig var
mjög vel hagmæltur. Sonur Jónasar var Kristján, sem var
kaupmaður á Akureyri um aldamótin og kallaði sig Jóna-
sen. Hann dó í Kaupmannahöfn og var auðugur maður, en
lítið varð úr efnum hans. Þau lentu hjá skattstjórninni
dönsku, því að gamli maðurinn hafði leynt efnum sínum
fyrir henni. Fátækir, en réttbornir erfingjar hans, systur-
börn lians vestur við Breiðafjörð, fóru því á mis við mik-
inn arf.
Til eru margar vísur eftir Jónas og flestar vel kveðnar.
Einu sinni varð hann fyrir þeirri miklu sorg að missa dótt-
ur sína, mestu efnisstúlku 18 ára gamla. Hún drukknaði