Breiðfirðingur


Breiðfirðingur - 01.04.1958, Side 81

Breiðfirðingur - 01.04.1958, Side 81
BREIÐFIRÐINGUR 79 Er enn sem fyrr mikil vöntun á þægilegra húsnæði, þótt ómetanlegt sé hins vegar það gagn, sem Breiðfirðingabúð veitir félagsstarfseminni. Arsritið Breiðfirðingur kom út á árinu og er nú að koma út, skorti aðeins herzlumuninn, að það gæti komið hér fyrir almenningssjónir í kvöld. Hafa þeir Jón Júl. Sigurðsson og Arelíus Níelsson enn með höndum framkvæmdastjórn þess og ritstjórn. En hinn fyrrnefndi dvelur nú í London ásamt. konu sinni og mun verða erlendis eitt misseri. Deildir félagsins starfa ekki mikið nema Bridge-deild og tafldeild, en þær eru með miklum blóma, sú fyrrnefnda undir stjórn Þórarins Sigurðssonar, ljósmyndara, sú síðari undir stjórn Bergsveins Jónssonar, sundhallarvarðar. Skemmtiferð fóru félagsmenn vestur í Grundarfjörð í ágústlok í fyrrasumar en þátttakan var lítil, þótt ferðin væri að öllu hin ánægjulegasta. — Gengust félagsmenn fyrir skemmtisamkomu í Grafarnesi til ágóða fyrir kirkjubygg- ingu þar, var sú skemmtun einnig undirbúin af heimafólki, sem annaðist móttökur af mikilli rausn, lipurð og gestrisni. Söfnuðust þarna á einu kvöldi um 7 þús. krónur, sem ferðafólkið gaf til kirkjunnar. Þótti mörgum vel til fundið af Breiðfirðingafélaginu að taka þarna höndum saman við heimafólk til að styðja áhugamál þess til framkvæmda og hlaut félagið miklar þakkir Grundfirðinga. Guðþjónusta var og haldin í Setbergskirkju og prédikaði þar formaður félags- ins. Fjölmenni var og öllum boðið til kaffidrykkju á prests- setrinu, en þar kvaddi sér hljóðs einn af elztu og virðuleg- ustu starfsmönnum Breiðfirðingafélagsins, Snæbjörn Jóns- son, húsgagnasmiður og lofaði hinni verðandi kirkju Grund- firðinga vönduðum prédikunarstól. 011 þótti ferðin félaginu til sóma og væri vel að sem flestar yrðu slíkar. Fleira tel ég ekki þörf að tala um hér. Auðvitað má deila

x

Breiðfirðingur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Breiðfirðingur
https://timarit.is/publication/1303

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.