Dagblaðið Vísir - DV - 05.10.2018, Blaðsíða 47
KYNNING
ÞrifX er tíu ára gamalt hreingerningafyrir-tæki á Akureyri sem
hefur vaxið mikið síðustu tvö
árin. ÞrifX veitir fjölbreytta
og víðtæka þjónustu á sviði
hreingerninga og þjónustar
í senn einstaklinga, fyrirtæki
og stofnanir.
„Við höfum bætt við ýms-
um þjónustuliðum undanfarið
ár til að veita viðskiptavinum
heildstæðari þjónustu. Til
dæmis keyptum við rekstur-
inn Hrein tunna á árinu 2016
sem sérhæfði sig í tunnu-
hreinsun og hefur þessi
þjónusta mælst vel fyrir hér
á Akureyri. Við hófum einnig
bílaþvott og hafa viðtökurnar
verið vonum framar,“ segir
Vincent, framkvæmdastjóri
fyrirtækisins.
Sem fyrr segir veitir ÞrifX
víðtæka þjónustu og leggur
alltaf höfuðáherslu á gæði
þjónustunnar og ánægða
viðskiptavini. Sem dæmi um
þjónustu ÞrifX við einstak-
linga eru þrif eftir flutninga,
heimilisþrif, teppahreinsun,
gólfbónun, gluggaþvottur og
margt fleira.
ÞrifX veitir fyrirtækjum
og stofnunum margvíslega
þjónustu og má þar nefna
bónviðhald, hreingerningu og
gluggaþvott.
Þjónustusvæði fyrirtæk-
isins er fyrst og fremst á
Akureyri en einnig sinnir ÞrifX
verkefnum á Húsavík, Dalvík
og víðar á Norðurlandi.
Á vefsíðunni thrifx.is eru
upplýsingar um þjónustuna
og þar er hægt að senda
inn fyrirspurnir og fá tilboð í
verkefni. Þar er einnig hægt
að panta bílaþvott og tunnu-
hreinsun með einföldum
hætti. Upplýsingar eru einnig
veittar í síma 414-2990.
Auðbrekku 27, Kópavogi
www.bilasprautun.is
ÞRIFX:
framsækið hreingerningafyrirtæki