Dagblaðið Vísir - DV - 05.10.2018, Blaðsíða 30
Jólahlaðborð 5. október 2018KYNNINGARBLAÐ
Hlaðborð og veislubakkar í
fjölskyldustíl
Veislumiðstöðin hefur áratuga reynslu í framreiðslu jólahlað-borða og býður upp á mismun-
andi útfærslur sem henta hverjum
og einum hópi. „Við seljum jólahlað-
borð aðallega í fyrirtæki og stofnanir.
Stundum förum við inn á vinnustaðinn,
tökum yfir mötuneytið og erum með
stórt matarboð þar. Stundum förum
við með veitingarnar í sali úti í bæ, en
svo erum við líka með þrjá veislusali
hérna í Rúgbrauðsgerðinni að Borgar-
túni 6,“ segir Ámundi Johansen.
Mismunandi fyrirkomulag er á
framreiðslu veitinganna, allt eftir því
hvað hentar viðkomandi hópi: „Við
erum með jólasmárétti, stórt jólahlað-
borð og síðan jólarétti á borð, í fjöl-
skyldustíl, það er að segja að stórir
bakkar eru bornir á borðin. Stundum
eru forréttirnir bornir á borðin og fólk
stendur síðan upp fyrir aðalréttinn
og gengur þá að steikarhlaðborði.
Stundum er allur maturinn borinn á
borð og síðan er stundum bara allt á
hlaðborði.“
Ámundi segir að þetta fyrirkomu-
lag, að fá matinn á borðið, hafi færst
nokkuð í vöxt: „Þetta er stundum góð
leið til að hrista hópinn saman, til
dæmis skapa tengsl þvert á deildir
fyrirtækja. Síðan er það þannig að oft
er boðið upp á skemmtiatriði og þá er
betra að fólk sitji. En síðan eru auð-
vitað margir sem kjósa að hafa allt á
hlaðborði.“
Hóparnir sem Veislumiðstöðin þjón-
ar í jólahlaðborðum eru yfirleitt frá 50
til 200 manns. Eins og áður segir eru í
boði afnot af þremur veislusölum fyrir-
tækisins í Rúgbrauðsgerðinni að Borg-
artúni 6. Myndir af þeim sölum fylgja
hér með greininni en Rúgbrauðsgerðin
þykir afar sjarmerandi húsnæði.
Á efstu hæðinni, fjórðu hæð, eru
Sólarsalur, sem tekur um 250
manns í sæti, og Mánasalur,
sem tekur um 80 manns. Úr
báðum sölum er frábært
útsýni yfir Faxaflóa og
Esjuna. Gluggarnir í
Sólarsalnum þykja
mjög heillandi en
þeir eru í laginu
eins og kýrauga.
Á jarðhæð er
síðan Stjörnu-
salur sem
tekur um
150 manns.
Þar heillar
mjög gesti
glæsileg og
tignarleg
kristals-
ljósakróna í
loftinu.
Að sögn
Ámunda eru
pantanir á
jólahlaðborð-
um orðnar mjög
miklar en þó eru
nokkur kvöld laus.
Fyrstu jólahlað-
borðin verða um
miðjan mánuðinn og
síðan heldur þetta áfram
inn í desember.
Til að panta jólahlaðborð
hjá Veislumiðstöðinni er gott að
hringja í síma 517-0102 eða senda
tölvupóst á netfangið panta@veislu-
midstodin.is.