Dagblaðið Vísir - DV - 05.10.2018, Blaðsíða 39
Jólahlaðborð 5. október 2018 KYNNINGARBLAÐ
JÓLAHLAÐBORÐ STRACTA HÓTELS:
Veisla í sunnlenskri
náttúrufegurð
Stracta Hótel er rómaður gisti-staður á Hellu, nánar tiltekið að Rangárflötum 4. Stutt er frá
hótelinu í allar helstu náttúruperlur
Suðurlands og þjónusta og aðbúnaður
á hótelinu sjálfu er til sóma. Undanfar-
in ár hefur Stracta Hótel boðið upp á
jólahlaðborð sem hafa mælst afar vel
fyrir. Sumir slá þar tvær flugur í einu
höggi og gista einnig.
Að þessu sinni býður Stracta
Hótel upp á gistingu í tveggja manna
herbergi með morgunverði ásamt
jólahlaðborði á sérstöku tilboði: 16.400
kr. á mann. Aðgangur að heitum pott-
um og gufubaði í glæsilegum hótel-
garði er innifalinn fyrir alla gesti. Það er
fullkomin leið til að slaka á fyrir notalegt
og skemmtilegt kvöld.
Eyrnakonfekt og jólakrásir
Verð á jólahlaðborðinu án
gistingar er aðeins 8.800 kr.
Meðal forrétta eru þrjár
tegundir af síld, grafinn og
reyktur lax, lifrarkæfa með
beikoni, grafið hrossakjöt,
jólaskinka, sjávarréttasal-
at, tvíreykt hangikjöt og
margt fleira.
Í aðalrétt er meðal
annars hvítlauksmariner-
að lambalæri, purusteik,
Royal-kjúklingabringa og
fisk- og grænmetisréttir að
hætti kokksins.
Af meðlæti má nefna
Waldorf-salat, rauðkál, sykur-
brúnaðar kartöflur, villisveppa-
og rauðvínssósu og margt fleira.
Í eftirrétt er til dæmi Ris a la Mande
með kirsuberjasósu, ferskir ávextir og
hvít súkkulaðimús.
Jólahlaðborðin eru þessa daga: 17.
og 24. nóvember, 1. og 8. desember
– sem eru laugardagar. Aðra daga er
boðið upp á jólahlaðborðið fyrir stærri
hópa.
Hinir frábæru tónlistarmenn Margrét
Grétarsdóttir söngkona og Hrafnkell
Óðinsson, sjá um að koma gestum í
jólastemningu með sannkölluðu eyrna-
konfekti meðan á borðhaldi stendur.
Upplýsingar og bókanir eru í gegnum
netfangið info@stracta.is eða í síma
531-8010.
Sjá nánar á vefnum: https://www.
stractahotels.is/is/jolaladbord