Dagblaðið Vísir - DV - 05.10.2018, Blaðsíða 33

Dagblaðið Vísir - DV - 05.10.2018, Blaðsíða 33
Jólahlaðborð 5. október 2018 KYNNINGARBLAÐ ELDHESTAR: Jólahlaðborð í sveitakyrrð Sveitahótelið Eldhestar er staðsett á fögrum stað að Völlum í Ölfusi, í um 45 mínútna akstursfjarlægð frá Reykjavík. Þar er hægt að njóta gistingar í hlýlegu her- bergi með fallegu útsýni, fara á hest- bak og snæða krásir á jólahlaðborði. „Þetta er jólahlaðborð í sveitinni, við leggjum mikið upp úr kyrrðinni og að gestir okkar eigi notalega stund saman. Þetta hentar afskaplega vel fyrir smærri hópa, lítil fyrirtæki eða vinahópa, til dæmis,“ segir Helga Gísladóttir hótelstjóri. Jólahlaðborðið verður í boði síð- ustu tvær helgarnar í nóvember og fyrstu tvær helgarnar í desember. Hægt er að kaupa jólahlaðborðið eitt og sér en flestir kjósa að gista líka og gera dálítið meira úr dvölinni en bara borðhaldið. „Það eru fínar gönguleið- ir hér í kring og þar sem við erum á flatlendi er fallegt útsýni í allar áttir. Staðsetning hótelsins er einnig góð til að upplifa norðurljósin ef þau láta sjá sig. Dyr liggja frá herbergj- unum út í garð, það eru tveir heitir pottar á staðnum og svo eru ýmsar hestaferðir í boði. Það er því tilval- ið að koma um miðjan dag, fara á hestbak, fara síðan í heita pottinn og því næst klæða sig upp í rólegheitum fyrir hlaðborðið,“ segir Helga. Matseðillinn fyrir jólahlaðborðið er klár og meðal kaldra rétta verð- ur reyktur og grafinn lax, síldartríó, hangikjöt og sjávarréttasalat. Heitir réttir eru hamborgarhryggur, heil- steikt lambalæri, grísapurusteik og kalkúnabringa. Einnig er úrval af brauði, heitar og kaldar sósur, sykur- brúnaðar kartöflur, rósmarín-kartöfl- ur, kartöflusalat, heimalagað rauð- kál, maís, grænar baunir, eplasalat og fleira. Í eftirrétt er ávaxtasalat, heimagert Tiramisu, bökuð epli með karamellu, jólaostakaka og fleira. Það borgar sig að panta snemma til að komast á þetta margrómaða jólahlaðborð í notalegu umhverfi. Hægt er að senda fyrirspurn á info@ eldhestar.is eða hringja í síma 480- 4800. Frekari upplýsingar um Eld- hesta eru síðan á vefsíðunni eld- hestar.is.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.