Dagblaðið Vísir - DV - 05.10.2018, Qupperneq 33
Jólahlaðborð 5. október 2018 KYNNINGARBLAÐ
ELDHESTAR:
Jólahlaðborð í sveitakyrrð
Sveitahótelið Eldhestar er staðsett á fögrum stað að Völlum í Ölfusi, í um 45 mínútna
akstursfjarlægð frá Reykjavík. Þar er
hægt að njóta gistingar í hlýlegu her-
bergi með fallegu útsýni, fara á hest-
bak og snæða krásir á jólahlaðborði.
„Þetta er jólahlaðborð í sveitinni, við
leggjum mikið upp úr kyrrðinni og
að gestir okkar eigi notalega stund
saman. Þetta hentar afskaplega vel
fyrir smærri hópa, lítil fyrirtæki eða
vinahópa, til dæmis,“ segir Helga
Gísladóttir hótelstjóri.
Jólahlaðborðið verður í boði síð-
ustu tvær helgarnar í nóvember og
fyrstu tvær helgarnar í desember.
Hægt er að kaupa jólahlaðborðið eitt
og sér en flestir kjósa að gista líka og
gera dálítið meira úr dvölinni en bara
borðhaldið. „Það eru fínar gönguleið-
ir hér í kring og þar sem við erum á
flatlendi er fallegt útsýni í allar áttir.
Staðsetning hótelsins er einnig góð
til að upplifa norðurljósin ef þau
láta sjá sig. Dyr liggja frá herbergj-
unum út í garð, það eru tveir heitir
pottar á staðnum og svo eru ýmsar
hestaferðir í boði. Það er því tilval-
ið að koma um miðjan dag, fara á
hestbak, fara síðan í heita pottinn og
því næst klæða sig upp í rólegheitum
fyrir hlaðborðið,“ segir Helga.
Matseðillinn fyrir jólahlaðborðið
er klár og meðal kaldra rétta verð-
ur reyktur og grafinn lax, síldartríó,
hangikjöt og sjávarréttasalat. Heitir
réttir eru hamborgarhryggur, heil-
steikt lambalæri, grísapurusteik og
kalkúnabringa. Einnig er úrval af
brauði, heitar og kaldar sósur, sykur-
brúnaðar kartöflur, rósmarín-kartöfl-
ur, kartöflusalat, heimalagað rauð-
kál, maís, grænar baunir, eplasalat
og fleira. Í eftirrétt er ávaxtasalat,
heimagert Tiramisu, bökuð epli með
karamellu, jólaostakaka og fleira.
Það borgar sig að panta snemma
til að komast á þetta margrómaða
jólahlaðborð í notalegu umhverfi.
Hægt er að senda fyrirspurn á info@
eldhestar.is eða hringja í síma 480-
4800. Frekari upplýsingar um Eld-
hesta eru síðan á vefsíðunni eld-
hestar.is.