Dagblaðið Vísir - DV - 05.10.2018, Blaðsíða 68

Dagblaðið Vísir - DV - 05.10.2018, Blaðsíða 68
68 FÓLK - VIÐTAL 5. oktober 2018 P oppstjarnan og öðlingurinn Páll Óskar Hjálmtýsson er listamaður sem hefur snert mörg íslensk tónlistar­ hjörtu á löngum og glæstum ferli. Palli hefur ekki einungis látið sig tónlistina varða heldur hefur hann verið mikilvæg og öflug rödd í rétt­ lætisbaráttu samkynhneigðra sem og annarra mikilvægra málefna en söngvarinn skipuleggur nú styrktartónleika undir formerkinu Lof mér að lifa – Styrktartónleikar fyrir unga fíkla. Á tónleikunum, sem haldnir verða í Háskólabíói þann 8 nóvember, mun rjóminn af íslensku tónlistarfólki koma fram. Ferill Palla hefur ekki alltaf verið dans á rósum en tónlistar­ maðurinn lenti í skuldavanda eftir mislukkaða plötu og tónleikahald um Evrópu, en með jákvæðnina að vopni og stífu aðhaldi tókst honum að rétta úr kútnum og hef­ ur aldrei verið á betri stað að eigin sögn. Ég heyrði í Palla og forvitnaðist um ferilinn og sitthvað fleira hjá þessum vinsælasta tónlistarmanni þjóðarinnar og líklega þeim lífs­ glaðasta. Nú ertu búinn að vera í brans- anum í yfir tvo áratugi, hvernig hófst þetta allt saman hjá þér? „Lætin byrjuðu 1991 þegar ég var í Menntaskólanum við Hamrahlíð og útskriftarverk­ efnið mitt var Rocky Horror. Ég hins vegar byrjaði að syngja inn á barnaplötur sem krakki, söng og lék í auglýsingum og kom fram í Stundinni okkar. Það var bara upphitun fyrir það það sem koma skyldi.“ Hvernig er tilfinningin þegar þú horfir til baka yfir ferilinn, er eitthvað sem þú vildir hafa gert öðruvísi? „Nei, alls ekki. Það sem ég er mest þakklátur fyrir er það að vera enn þann dag í dag baksviðs alveg eins og krakki að klappa saman lófunum af tilhlökkun að komast inn á svið, ennþá sami viljinn og orkan. Að fá að gera þennan gjörn­ ing, sem er að syngja, troða upp og koma fram fyrir fólk. Þetta er sú al­ stærsta gjöf sem ég hef fengið í líf­ inu. Ég er líka þakklátur fyrir að mér hefur aldrei leiðst og aldrei orðið einmana. Þetta eru tvær til­ finningar sem ég einfaldlega þekki ekki.“ Þegar þú sérð þig fyrir tuttugu árum og svo eins og þú ert í dag, hverjar eru helstu breytingarnar, ef einhverjar eru, að þínu mati? „Ég er fyrst og fremst miklu þolinmóðari og miklu reiðubún­ ari til þess að læra, einkum og sér í lagi af eigin mistökum. Ég held að þetta sé nákvæmlega tilgangur lífsins – þú lifir til þess að læra. Ég hef hitt fólk í lífinu sem að er ein­ faldlega alls ekki tilbúið til þess og rekur sig á sömu veggina og gerir stöðugt sömu mistökin aftur og aftur. Sem betur fer er ég tilbúinn til þess að skoða sjálfan mig í krók og kring, alltaf tilbúinn til þess að bæta mig. Til dæmis sú vinna sem við höfum unnið í Borgarleikhús­ inu í Rocky Horror­söngleiknum. Þar hef ég gert mitt besta til þess að bæta mig milli sýninga. Núna erum við að sýna sýningu númer sextíu og ég held að þessi sýning hafi aldrei verið jafn sterk. Rocky Horror styrkist eftir því sem sýn­ ingarnar verða fleiri. Ég vil líka sjálfur vaxa og dafna, styrkja sjálf­ an mig og finna nýja liti í litabox­ inu.“ Nú eru vinsældir þínar miklar hér heima. En erlendis? „Nei, ég hef aldrei gert neitt alvarlegt til þess að koma mér út fyrir landsteinana.“ Er einhver ástæða fyrir því? „Það var aðallega eftir Eurovision 1997 þá ferðast ég svo­ lítið mikið um Evrópu 1997, 98 og 99. Tróð upp á Eurovision­ráð­ stefnum, Eurovision­aðdáenda­ klúbbum og á Gay Pride­hátíðum sem þá voru haldnar víðs vegar um Evrópu. Oftar en ekki endaði þetta þannig að ég sat uppi með allan kostnaðinn. Ég þurfti að borga sjálfur flug, hótel, upphald og fékk síðan lítið sem ekkert út úr því að troða þarna upp. Á þess­ um árum var ekki komin nein loft­ brú og styrkveitingar til poppara voru af frekar skornum skammti. Ef aðstæðurnar hefðu verið öðru­ vísi hefði ég alveg þegið meiri hjálp. Í stuttu máli þá fékk ekkert út úr þessu. Mig vantaði fleiri lög og betri lög á ensku. Ensku þýð­ ingarnar á íslensku lögunum voru oftar en ekki lélegar og hreinlega virkuðu ekki. Ég þurfti að taka ákvörðun um að koma heim og hreinlega byrja að borga reikning­ ana og koma mér út úr skuldafen­ inu. Ég kaus frekar að koma heim inn í aðstæður sem ég þekkti þar sem auðveldara var fyrir mig að skaffa tekjur. Það tók mig sex ár að vinna mig upp úr skuldafjallinu sem myndaðist árið 1999.“ Voru þetta helst ferðalögin úti sem komu þér í skuldasúpuna? „Bæði það og plata sem ég gaf út 1999 sem átti að vera svona „meik­plata“ á ensku, en hún stóð engan veginn undir kostnaði sem var á mínum herðum. Ég tók séns­ inn og ég tók ábyrgðina á þeim séns. Í júní 2006 náði ég að borga síðasta reikninginn af því skulda­ feni. Þetta blessaða góðæri sem var í gangi á þeim tíma, það fór al­ veg gjörsamlega framhjá mér.“ Er það ekki svolítið þannig, að það er alltaf dyggur aðdáenda- hópur sem mætir á öll böll hjá þér? „Jú, ég hef alveg tekið eftir því. Ég er samt alveg yndislega hissa á því á hvaða aldri fólkið er. Það eru stundum alveg þrjátíu ár á milli mín og þeirra sem eru á dansgólf­ inu.“ Er það ekki frekar góð tilfinning? „Mér finnst það aðallega algjör­ lega magnað, að það geti yfirhöfuð gerst.“ Af hverju heldurðu að það sé? „Ég hef ekki eitthvert eitt svar. Málið er það að ég elska að gera þetta og ég get ekki „feikað“ það. Ég treð upp skilyrðislaust, líka þegar ég er veikur, illa fyrirkallað­ ur og „fokked“. Þá fer ég upp á svið og gef blóð. Ég held að liðið „fíli“ hvað ég elska þetta. Það skapar al­ gerlega filterslausa tengingu milli mín og þeirra.“ Ef við færum tónlistina aðeins til hliðar. Hvað gerir Páll Óskar í frítímanum? „Akkurat núna þá er ég varla með neinn frítíma. Ég nýti lausa tímann í stúdíóvinnu. Ég er að vinna tvö lög í einu með tveimur mismunandi listamönnum, sem mér líst mjög vel á og koma út von bráðar, og munum vinna mynd­ bönd með báðum lögunum. Ég er líka að vinna að styrktartónleikum sem haldnir verða 8. nóvember í Háskólabíói. Þetta eru tónleikar sem bera yfirskriftina Lof mér að lifa – Styrktartónleikar fyrir unga fíkla. Ég og restin af þjóðinni erum í áfalli yfir þeirri staðreynd að núna á þessu ári hafa rúmlega þrjátíu ungmenni dáið af völdum neyslu á lyfseðilsskyldum lyfjum. Listinn er orðinn ansi langur af listamönn­ um sem vilja koma þarna fram. Ég er þarna, Baggalútur, Hjálmar, Svala Björgvins, Ellen Kristjáns, Sigríður Thorlacius, Elín Ey, Jói Pé og Króli, KK og fleiri listamenn að bætast við. Ég er líka að undirbúa annað svona hliðarverkefni. Mig langar svo að taka upp djassplötu, ég er loksins búinn að detta niður á þema sem ég er að „fíla“ í botn. Eins og þú heyrir þá er þetta vel þétt og þannig vil ég líka hafa það,“ segir Páll Óskar og skellir upp úr. n ALLAR GERÐIR RAFGEYMA Mikið úrval - Traust og fagleg þjónusta Bíldshöfða 12 577 1515 / skorri.is TUDOR „Þetta er sú alstærsta gjöf sem ég hef fengið í lífinu“ Páll Óskar ræðir tónlistina, skuldasúpuna og styrktartónleika fyrir unga fíkla Guðni Einarsson gudnieinarsson@dv.is MYND HANNA /DV
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.