Dagblaðið Vísir - DV - 05.10.2018, Blaðsíða 68
68 FÓLK - VIÐTAL 5. oktober 2018
P
oppstjarnan og öðlingurinn
Páll Óskar Hjálmtýsson er
listamaður sem hefur snert
mörg íslensk tónlistar
hjörtu á löngum og glæstum ferli.
Palli hefur ekki einungis látið sig
tónlistina varða heldur hefur hann
verið mikilvæg og öflug rödd í rétt
lætisbaráttu samkynhneigðra sem
og annarra mikilvægra málefna
en söngvarinn skipuleggur nú
styrktartónleika undir formerkinu
Lof mér að lifa – Styrktartónleikar
fyrir unga fíkla. Á tónleikunum,
sem haldnir verða í Háskólabíói
þann 8 nóvember, mun rjóminn af
íslensku tónlistarfólki koma fram.
Ferill Palla hefur ekki alltaf
verið dans á rósum en tónlistar
maðurinn lenti í skuldavanda eftir
mislukkaða plötu og tónleikahald
um Evrópu, en með jákvæðnina
að vopni og stífu aðhaldi tókst
honum að rétta úr kútnum og hef
ur aldrei verið á betri stað að eigin
sögn.
Ég heyrði í Palla og forvitnaðist
um ferilinn og sitthvað fleira hjá
þessum vinsælasta tónlistarmanni
þjóðarinnar og líklega þeim lífs
glaðasta.
Nú ertu búinn að vera í brans-
anum í yfir tvo áratugi, hvernig
hófst þetta allt saman hjá þér?
„Lætin byrjuðu 1991 þegar
ég var í Menntaskólanum við
Hamrahlíð og útskriftarverk
efnið mitt var Rocky Horror. Ég
hins vegar byrjaði að syngja inn á
barnaplötur sem krakki, söng og
lék í auglýsingum og kom fram
í Stundinni okkar. Það var bara
upphitun fyrir það það sem koma
skyldi.“
Hvernig er tilfinningin þegar
þú horfir til baka yfir ferilinn, er
eitthvað sem þú vildir hafa gert
öðruvísi?
„Nei, alls ekki. Það sem ég er
mest þakklátur fyrir er það að vera
enn þann dag í dag baksviðs alveg
eins og krakki að klappa saman
lófunum af tilhlökkun að komast
inn á svið, ennþá sami viljinn og
orkan. Að fá að gera þennan gjörn
ing, sem er að syngja, troða upp og
koma fram fyrir fólk. Þetta er sú al
stærsta gjöf sem ég hef fengið í líf
inu. Ég er líka þakklátur fyrir að
mér hefur aldrei leiðst og aldrei
orðið einmana. Þetta eru tvær til
finningar sem ég einfaldlega þekki
ekki.“
Þegar þú sérð þig fyrir tuttugu
árum og svo eins og þú ert í dag,
hverjar eru helstu breytingarnar,
ef einhverjar eru, að þínu mati?
„Ég er fyrst og fremst miklu
þolinmóðari og miklu reiðubún
ari til þess að læra, einkum og sér
í lagi af eigin mistökum. Ég held
að þetta sé nákvæmlega tilgangur
lífsins – þú lifir til þess að læra. Ég
hef hitt fólk í lífinu sem að er ein
faldlega alls ekki tilbúið til þess og
rekur sig á sömu veggina og gerir
stöðugt sömu mistökin aftur og
aftur. Sem betur fer er ég tilbúinn
til þess að skoða sjálfan mig í krók
og kring, alltaf tilbúinn til þess að
bæta mig. Til dæmis sú vinna sem
við höfum unnið í Borgarleikhús
inu í Rocky Horrorsöngleiknum.
Þar hef ég gert mitt besta til þess
að bæta mig milli sýninga. Núna
erum við að sýna sýningu númer
sextíu og ég held að þessi sýning
hafi aldrei verið jafn sterk. Rocky
Horror styrkist eftir því sem sýn
ingarnar verða fleiri. Ég vil líka
sjálfur vaxa og dafna, styrkja sjálf
an mig og finna nýja liti í litabox
inu.“
Nú eru vinsældir þínar miklar
hér heima. En erlendis?
„Nei, ég hef aldrei gert neitt
alvarlegt til þess að koma mér út
fyrir landsteinana.“
Er einhver ástæða fyrir því?
„Það var aðallega eftir
Eurovision 1997 þá ferðast ég svo
lítið mikið um Evrópu 1997, 98 og
99. Tróð upp á Eurovisionráð
stefnum, Eurovisionaðdáenda
klúbbum og á Gay Pridehátíðum
sem þá voru haldnar víðs vegar
um Evrópu. Oftar en ekki endaði
þetta þannig að ég sat uppi með
allan kostnaðinn. Ég þurfti að
borga sjálfur flug, hótel, upphald
og fékk síðan lítið sem ekkert út
úr því að troða þarna upp. Á þess
um árum var ekki komin nein loft
brú og styrkveitingar til poppara
voru af frekar skornum skammti.
Ef aðstæðurnar hefðu verið öðru
vísi hefði ég alveg þegið meiri
hjálp. Í stuttu máli þá fékk ekkert
út úr þessu. Mig vantaði fleiri lög
og betri lög á ensku. Ensku þýð
ingarnar á íslensku lögunum voru
oftar en ekki lélegar og hreinlega
virkuðu ekki. Ég þurfti að taka
ákvörðun um að koma heim og
hreinlega byrja að borga reikning
ana og koma mér út úr skuldafen
inu. Ég kaus frekar að koma heim
inn í aðstæður sem ég þekkti þar
sem auðveldara var fyrir mig að
skaffa tekjur. Það tók mig sex ár að
vinna mig upp úr skuldafjallinu
sem myndaðist árið 1999.“
Voru þetta helst ferðalögin úti
sem komu þér í skuldasúpuna?
„Bæði það og plata sem ég gaf
út 1999 sem átti að vera svona
„meikplata“ á ensku, en hún stóð
engan veginn undir kostnaði sem
var á mínum herðum. Ég tók séns
inn og ég tók ábyrgðina á þeim
séns. Í júní 2006 náði ég að borga
síðasta reikninginn af því skulda
feni. Þetta blessaða góðæri sem
var í gangi á þeim tíma, það fór al
veg gjörsamlega framhjá mér.“
Er það ekki svolítið þannig, að
það er alltaf dyggur aðdáenda-
hópur sem mætir á öll böll hjá
þér?
„Jú, ég hef alveg tekið eftir því.
Ég er samt alveg yndislega hissa á
því á hvaða aldri fólkið er. Það eru
stundum alveg þrjátíu ár á milli
mín og þeirra sem eru á dansgólf
inu.“
Er það ekki frekar góð
tilfinning?
„Mér finnst það aðallega algjör
lega magnað, að það geti yfirhöfuð
gerst.“
Af hverju heldurðu að það sé?
„Ég hef ekki eitthvert eitt svar.
Málið er það að ég elska að gera
þetta og ég get ekki „feikað“ það.
Ég treð upp skilyrðislaust, líka
þegar ég er veikur, illa fyrirkallað
ur og „fokked“. Þá fer ég upp á svið
og gef blóð. Ég held að liðið „fíli“
hvað ég elska þetta. Það skapar al
gerlega filterslausa tengingu milli
mín og þeirra.“
Ef við færum tónlistina aðeins
til hliðar. Hvað gerir Páll Óskar í
frítímanum?
„Akkurat núna þá er ég varla
með neinn frítíma. Ég nýti lausa
tímann í stúdíóvinnu. Ég er að
vinna tvö lög í einu með tveimur
mismunandi listamönnum, sem
mér líst mjög vel á og koma út von
bráðar, og munum vinna mynd
bönd með báðum lögunum. Ég er
líka að vinna að styrktartónleikum
sem haldnir verða 8. nóvember í
Háskólabíói. Þetta eru tónleikar
sem bera yfirskriftina Lof mér að
lifa – Styrktartónleikar fyrir unga
fíkla. Ég og restin af þjóðinni erum
í áfalli yfir þeirri staðreynd að núna
á þessu ári hafa rúmlega þrjátíu
ungmenni dáið af völdum neyslu á
lyfseðilsskyldum lyfjum. Listinn er
orðinn ansi langur af listamönn
um sem vilja koma þarna fram.
Ég er þarna, Baggalútur, Hjálmar,
Svala Björgvins, Ellen Kristjáns,
Sigríður Thorlacius, Elín Ey, Jói Pé
og Króli, KK og fleiri listamenn að
bætast við.
Ég er líka að undirbúa annað
svona hliðarverkefni. Mig langar
svo að taka upp djassplötu, ég er
loksins búinn að detta niður á
þema sem ég er að „fíla“ í botn.
Eins og þú heyrir þá er þetta vel
þétt og þannig vil ég líka hafa það,“
segir Páll Óskar og skellir upp úr. n
ALLAR GERÐIR
RAFGEYMA
Mikið úrval -
Traust og fagleg þjónusta
Bíldshöfða 12
577 1515 / skorri.is
TUDOR
„Þetta er sú
alstærsta
gjöf sem ég hef
fengið í lífinu“
Páll Óskar ræðir tónlistina, skuldasúpuna og styrktartónleika fyrir unga fíkla
Guðni Einarsson
gudnieinarsson@dv.is
MYND HANNA /DV