Dagblaðið Vísir - DV - 05.10.2018, Blaðsíða 36

Dagblaðið Vísir - DV - 05.10.2018, Blaðsíða 36
Jólahlaðborð 5. október 2018KYNNINGARBLAÐ SÆGREIFINN: Siginn fiskur, selspik, skata og gamlar hefðir í heiðri Þeir gömlu félagar, Kjartan Hall-dórsson og Hörður Guðmanns-son, opnuðu veitingastaðinn Sægreifann árið 2003 en þeir voru fyrir með glæsilega fiskverslun og ætluðu sér raunar aldrei út í veitinga- rekstur. En frá fyrsta degi hefur Sægreifinn notið mikilla vinsælda, ekki síst vegna þess að þar er haldið í hefðir og boðið upp á hefðbundið fiskmeti sem Íslendingar hafa snætt í gegnum aldirnar. Sægreifinn er til húsa að Geirsgötu 8 við höfnina í Reykjavík. Núverandi eigendur eru hjónin Elísabet Jean Skúladóttir og Daði Steinn Sigurðs- son. Rekstrarstjóri er Ester Hansen og hún fræðir okkur lítillega um það spennandi, árstíðabundna fiskmeti sem verður á boðstólum á næstunni og margir munu snæða af bestu lyst fram að jólum. „Við byrjum að afgreiða signa fiskinn 9. október og svo verður hann á boðstólum annan hvern þriðjudag fram að maí. Selspik er borið fram með signa fiskinum ásamt kartöflum og öðru tilheyrandi. Í eftirrétt er síðan „Steingrímur“, eins og Kjartan gamli kallaði alltaf grjónagrautinn. Kolla okkar sér til þess að héðan standi menn sáttir upp frá borðum,“ segir Ester. Skatan byrjar fyrsta laugardaginn í nóvember og verður svo á boðstól- um fyrsta laugardag hvers mánaðar fram að maí. Skatan verður síðan daglega á borðum frá 17. til 23. des- ember en þá verður jólastemningin í algleymingi með skötuilmi dag eftir dag. „Þessi gamli góði matur er í uppá- haldi hjá mörgum en hann fæst ekki víða. Við viljum halda í þessar gömlu venjur og hingað koma til dæmis hópar Ólafsfirðinga og stórfjölskyldur hittast oft í skötunni hjá okkur fyrir jólin,“ segir Ester. Sægreifinn er opinn alla daga frá kl. 11.30 til 22.00. Ekki verður um hlaðborð að ræða með þessum sjáv- arkrásum heldur verður skammtað á diskana en þó hægt að fá ábót ef beðið er fallega. Sjá nánar á Facebook-síðunni Sæ- greifinn og vefsíðunni saegraefinn.is
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.