Dagblaðið Vísir - DV - 05.10.2018, Blaðsíða 16
16 5. október 2018
Þ
ann 16. september síðast-
liðinn var fallegur dagur í
Berlín. Sólin skein og börn
léku sér úti í góða veðr-
inu og fullorðnir nutu blíðunnar.
Í Tempelhofer Feld almennings-
garðinum í suðurhluta borgarinnar
var fjölmennt. Börn, gamalmenni
og allt þar á milli, voru þar á ferli,
heimamenn og ferðamenn. Sum-
ir voru að grilla, aðrir að borða ís.
Glaðlegar raddir og góður dag-
ur. Þar til skothvellirnir heyrðust.
Fyrir framan ísbílinn lá maður í
blóði sínu og blóðpollurinn stækk-
aði. Nærstaddir hlupu ráðalaus-
ir um, lítil börn stóðu í kringum
manninn og blóðpollinn. Ramon
Schack blaðamaður var fyrir tilvilj-
un staddur í garðinum þennan dag
og lýsti upplifun sinni í dagblaðinu
Die Welt. Hann gekk að mannin-
um og ávarpaði hann. Hann fékk
ekkert svar, aðeins augnaráð sem
hann „mun ekki gleyma“. Augna-
ráð manns sem deyr af völdum of-
beldisverks. „Andlitið er grátt, blóð-
ið flæðir, augun hreyfast.“
Skömmu síðar kemur kona. Hún
grætur og brotnar algjörlega saman
við þessa sjón. Síðar komst Schack
að því að hún er móðir mannsins
sem er að deyja fyrir framan hana.
Deyjandi maðurinn, Nidal R., var
skotinn átta skammbyssuskotum á
götu úti um hábjartan dag. Árásar-
mennirnir voru tveir en kennsl hafa
ekki verið borin á þá. Nidal R. var
síbrotamaður en hann eyddi 14
árum af þeim 36 sem hann lifði, í
fangelsi.
Þýskir fjölmiðlar segja að morðið
hafi verið afleiðing af átökum á milli
arabísks glæpagengis, sem Nidal
R., var félagi í, og tyrknesks glæpa-
gengis. Það er á almanna vitorði
að tyrknesk og arabísk glæpagengi
stýra megninu af undirheimastarf-
semi Berlínar og ráða þar mestu í
fíkniefnaviðskiptum, vændi og inn-
heimtu verndargjalds af fyrirtækj-
um. Glæpagengin leysa sín mál
innbyrðis og leita ekki til yfirvalda
til að kvarta undan keppinautum
sínum. Þess í stað eru menn myrtir.
En með því að myrða Nidal R.
um hábjartan dag á opinberum
stað þar sem hætta var á að sak-
laust fólk yrði fyrir barðinu á of-
beldi færðist ofbeldið og átökin á
nýtt stig. Fram að þessu hafa glæpa-
gengin haldið átökum sínum að
mestu út af fyrir sig. Ekki bætir úr
skák að eiginkona Nidal R. og börn
hans voru einnig til staðar. Í kjöl-
far morðsins hafði lögreglan mikl-
ar áhyggjur af hefndaraðgerðum og
að glæpagengi Nidal R. myndi finna
meinta sökudólga og drepa þá enda
var ljósmyndum af hinu grunuðu
dreift meðal vina og samverka-
manna Nidal. R.
Einhvers konar táknmynd
undirheimanna
Nidal R. er á margan hátt táknmynd
undirheimanna í Berlín. Hann kom
til Þýskalands 1990, þá átta ára. Fjöl-
skylda hans hafði flúið frá Líbanon
þar sem borgarastríð geisaði. Ekki
leið á löngu þar til Nidal R. var kom-
inn á fullt í afbrot. Lögreglan hafði
fyrst afskipti af honum þegar hann
var 10 ára. Þegar hann var 14 ára átti
lögreglan þykka möppu með mál-
um hans. Síðan hélt þetta áfram á
sömu braut. Meiðyrði, hótanir, rán,
ofbeldi, gróft ofbeldi og í ótal skipti
var hann tekinn réttindalaus við
akstur. Á Facebook-síðu hans eru
einmitt margar myndir af honum
og dýrum bílum.
Morðið á Nidal R. hefur vakið
stjórnmálamenn til lífsins hvað
varðar málaflokkinn og vilja þeir
margir grípa til harðra aðgerða.
Falko Liecek, starfandi borgar-
stjóri í Neukölln, þar sem glæpa-
gengin halda aðallega til, vill grípa
til harkalegra aðgerða gegn mönn-
um eins og Nidal R. Hann vill láta
taka börn þeirra af þeim ef þau eru
talin í hættu vegna afbrota foreldr-
anna og eigi á hættu að verða sjálf
glæpamenn. Á þinginu í Berlín
nýtur þessi hugmynd stuðnings.
Liecek segir að taka eigi bíla, fast-
eignir, húsgögn, Rolex-úrin og að
lokum börnin af afbrotamönn-
um. Að öðrum kosti skilji þeir ekki
alvöru málsins. Þeim finnist kerf-
ið veikburða. Það þurfi að senda
afbrotamönnum skýr skilaboð
um að þetta verði ekki liðið. Sem
dæmi hefur hann nefnt tvo bræður,
9 og 14 ára, sem koma frá einu al-
ræmdasta glæpagenginu. Þeir eru
báðir viðriðnir afbrot. Fjölskyldur
þeirra vilja ekki starfa með yfir-
völdum sem reyna að grípa inn í.
Allt bendir til að bræðurnir verðir
harðsvíraðir afbrotamenn að sögn
Liecek. Hann segir að taka eigi
bræðurna frá fjölskyldu þeirra í eitt
ár hið minnsta til að koma þeim á
rétta braut. Hann leggur einnig
áherslu á að ef börn eru tekin frá
fjölskyldunum þá eigi að vera eins
lítil samskipti á milli þeirra og ætt-
ingja þeirra og hægt er til að koma
í veg fyrir að fjölskyldurnar geti haft
áhrif á börnin.
Hann vill einnig að gripið verði
til ýmissa annarra aðgerða. Þar á
meðal að komið verði upp sérstöku
prógrammi til að auðvelda með-
limum glæpagengja að yfirgefa
þau. Auk þess vill hann gera þeim
erfitt fyrir við að stofna fyrirtæki til
að koma í veg fyrir peningaþvætti.
Í heildina vill hann að afbrota-
mennirnir séu áreittir eins mikið og
hægt er og þeim gert lífið eins erfitt
og hægt er. n
FRÉTTIR - ERLENT
Kaldunnin þorsklifrarolía
Íslensk framleiðsla
120/180
60
220 ml
Dropi af
náttúrunni
„Fyrir mér er
Dropi heilindi og
lífsorka”
Kristján Kristjánsson
ritstjorn@dv.is
„ Glæpa-
gengin
leysa sín mál inn-
byrðist og leita
ekki til yfirvalda
til að kvarta und-
an keppinautum
sínum
Nidal R. Skotinn átta sinnum um hábjartan dag.
Tempelhofer Feld Vinsæll skemmtigarður í Berlín.
n Stjórnmálamenn vilja grípa til harðra og óvenjulegra aðgerða
EINN ALRÆMDASTI GLÆPAMAÐUR
BERLÍNAR MYRTUR