Dagblaðið Vísir - DV - 05.10.2018, Blaðsíða 16

Dagblaðið Vísir - DV - 05.10.2018, Blaðsíða 16
16 5. október 2018 Þ ann 16. september síðast- liðinn var fallegur dagur í Berlín. Sólin skein og börn léku sér úti í góða veðr- inu og fullorðnir nutu blíðunnar. Í Tempelhofer Feld almennings- garðinum í suðurhluta borgarinnar var fjölmennt. Börn, gamalmenni og allt þar á milli, voru þar á ferli, heimamenn og ferðamenn. Sum- ir voru að grilla, aðrir að borða ís. Glaðlegar raddir og góður dag- ur. Þar til skothvellirnir heyrðust. Fyrir framan ísbílinn lá maður í blóði sínu og blóðpollurinn stækk- aði. Nærstaddir hlupu ráðalaus- ir um, lítil börn stóðu í kringum manninn og blóðpollinn. Ramon Schack blaðamaður var fyrir tilvilj- un staddur í garðinum þennan dag og lýsti upplifun sinni í dagblaðinu Die Welt. Hann gekk að mannin- um og ávarpaði hann. Hann fékk ekkert svar, aðeins augnaráð sem hann „mun ekki gleyma“. Augna- ráð manns sem deyr af völdum of- beldisverks. „Andlitið er grátt, blóð- ið flæðir, augun hreyfast.“ Skömmu síðar kemur kona. Hún grætur og brotnar algjörlega saman við þessa sjón. Síðar komst Schack að því að hún er móðir mannsins sem er að deyja fyrir framan hana. Deyjandi maðurinn, Nidal R., var skotinn átta skammbyssuskotum á götu úti um hábjartan dag. Árásar- mennirnir voru tveir en kennsl hafa ekki verið borin á þá. Nidal R. var síbrotamaður en hann eyddi 14 árum af þeim 36 sem hann lifði, í fangelsi. Þýskir fjölmiðlar segja að morðið hafi verið afleiðing af átökum á milli arabísks glæpagengis, sem Nidal R., var félagi í, og tyrknesks glæpa- gengis. Það er á almanna vitorði að tyrknesk og arabísk glæpagengi stýra megninu af undirheimastarf- semi Berlínar og ráða þar mestu í fíkniefnaviðskiptum, vændi og inn- heimtu verndargjalds af fyrirtækj- um. Glæpagengin leysa sín mál innbyrðis og leita ekki til yfirvalda til að kvarta undan keppinautum sínum. Þess í stað eru menn myrtir. En með því að myrða Nidal R. um hábjartan dag á opinberum stað þar sem hætta var á að sak- laust fólk yrði fyrir barðinu á of- beldi færðist ofbeldið og átökin á nýtt stig. Fram að þessu hafa glæpa- gengin haldið átökum sínum að mestu út af fyrir sig. Ekki bætir úr skák að eiginkona Nidal R. og börn hans voru einnig til staðar. Í kjöl- far morðsins hafði lögreglan mikl- ar áhyggjur af hefndaraðgerðum og að glæpagengi Nidal R. myndi finna meinta sökudólga og drepa þá enda var ljósmyndum af hinu grunuðu dreift meðal vina og samverka- manna Nidal. R. Einhvers konar táknmynd undirheimanna Nidal R. er á margan hátt táknmynd undirheimanna í Berlín. Hann kom til Þýskalands 1990, þá átta ára. Fjöl- skylda hans hafði flúið frá Líbanon þar sem borgarastríð geisaði. Ekki leið á löngu þar til Nidal R. var kom- inn á fullt í afbrot. Lögreglan hafði fyrst afskipti af honum þegar hann var 10 ára. Þegar hann var 14 ára átti lögreglan þykka möppu með mál- um hans. Síðan hélt þetta áfram á sömu braut. Meiðyrði, hótanir, rán, ofbeldi, gróft ofbeldi og í ótal skipti var hann tekinn réttindalaus við akstur. Á Facebook-síðu hans eru einmitt margar myndir af honum og dýrum bílum. Morðið á Nidal R. hefur vakið stjórnmálamenn til lífsins hvað varðar málaflokkinn og vilja þeir margir grípa til harðra aðgerða. Falko Liecek, starfandi borgar- stjóri í Neukölln, þar sem glæpa- gengin halda aðallega til, vill grípa til harkalegra aðgerða gegn mönn- um eins og Nidal R. Hann vill láta taka börn þeirra af þeim ef þau eru talin í hættu vegna afbrota foreldr- anna og eigi á hættu að verða sjálf glæpamenn. Á þinginu í Berlín nýtur þessi hugmynd stuðnings. Liecek segir að taka eigi bíla, fast- eignir, húsgögn, Rolex-úrin og að lokum börnin af afbrotamönn- um. Að öðrum kosti skilji þeir ekki alvöru málsins. Þeim finnist kerf- ið veikburða. Það þurfi að senda afbrotamönnum skýr skilaboð um að þetta verði ekki liðið. Sem dæmi hefur hann nefnt tvo bræður, 9 og 14 ára, sem koma frá einu al- ræmdasta glæpagenginu. Þeir eru báðir viðriðnir afbrot. Fjölskyldur þeirra vilja ekki starfa með yfir- völdum sem reyna að grípa inn í. Allt bendir til að bræðurnir verðir harðsvíraðir afbrotamenn að sögn Liecek. Hann segir að taka eigi bræðurna frá fjölskyldu þeirra í eitt ár hið minnsta til að koma þeim á rétta braut. Hann leggur einnig áherslu á að ef börn eru tekin frá fjölskyldunum þá eigi að vera eins lítil samskipti á milli þeirra og ætt- ingja þeirra og hægt er til að koma í veg fyrir að fjölskyldurnar geti haft áhrif á börnin. Hann vill einnig að gripið verði til ýmissa annarra aðgerða. Þar á meðal að komið verði upp sérstöku prógrammi til að auðvelda með- limum glæpagengja að yfirgefa þau. Auk þess vill hann gera þeim erfitt fyrir við að stofna fyrirtæki til að koma í veg fyrir peningaþvætti. Í heildina vill hann að afbrota- mennirnir séu áreittir eins mikið og hægt er og þeim gert lífið eins erfitt og hægt er. n FRÉTTIR - ERLENT Kaldunnin þorsklifrarolía Íslensk framleiðsla 120/180 60 220 ml Dropi af náttúrunni „Fyrir mér er Dropi heilindi og lífsorka” Kristján Kristjánsson ritstjorn@dv.is „ Glæpa- gengin leysa sín mál inn- byrðist og leita ekki til yfirvalda til að kvarta und- an keppinautum sínum Nidal R. Skotinn átta sinnum um hábjartan dag. Tempelhofer Feld Vinsæll skemmtigarður í Berlín. n Stjórnmálamenn vilja grípa til harðra og óvenjulegra aðgerða EINN ALRÆMDASTI GLÆPAMAÐUR BERLÍNAR MYRTUR
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.