Dagblaðið Vísir - DV - 05.10.2018, Side 30

Dagblaðið Vísir - DV - 05.10.2018, Side 30
Jólahlaðborð 5. október 2018KYNNINGARBLAÐ Hlaðborð og veislubakkar í fjölskyldustíl Veislumiðstöðin hefur áratuga reynslu í framreiðslu jólahlað-borða og býður upp á mismun- andi útfærslur sem henta hverjum og einum hópi. „Við seljum jólahlað- borð aðallega í fyrirtæki og stofnanir. Stundum förum við inn á vinnustaðinn, tökum yfir mötuneytið og erum með stórt matarboð þar. Stundum förum við með veitingarnar í sali úti í bæ, en svo erum við líka með þrjá veislusali hérna í Rúgbrauðsgerðinni að Borgar- túni 6,“ segir Ámundi Johansen. Mismunandi fyrirkomulag er á framreiðslu veitinganna, allt eftir því hvað hentar viðkomandi hópi: „Við erum með jólasmárétti, stórt jólahlað- borð og síðan jólarétti á borð, í fjöl- skyldustíl, það er að segja að stórir bakkar eru bornir á borðin. Stundum eru forréttirnir bornir á borðin og fólk stendur síðan upp fyrir aðalréttinn og gengur þá að steikarhlaðborði. Stundum er allur maturinn borinn á borð og síðan er stundum bara allt á hlaðborði.“ Ámundi segir að þetta fyrirkomu- lag, að fá matinn á borðið, hafi færst nokkuð í vöxt: „Þetta er stundum góð leið til að hrista hópinn saman, til dæmis skapa tengsl þvert á deildir fyrirtækja. Síðan er það þannig að oft er boðið upp á skemmtiatriði og þá er betra að fólk sitji. En síðan eru auð- vitað margir sem kjósa að hafa allt á hlaðborði.“ Hóparnir sem Veislumiðstöðin þjón- ar í jólahlaðborðum eru yfirleitt frá 50 til 200 manns. Eins og áður segir eru í boði afnot af þremur veislusölum fyrir- tækisins í Rúgbrauðsgerðinni að Borg- artúni 6. Myndir af þeim sölum fylgja hér með greininni en Rúgbrauðsgerðin þykir afar sjarmerandi húsnæði. Á efstu hæðinni, fjórðu hæð, eru Sólarsalur, sem tekur um 250 manns í sæti, og Mánasalur, sem tekur um 80 manns. Úr báðum sölum er frábært útsýni yfir Faxaflóa og Esjuna. Gluggarnir í Sólarsalnum þykja mjög heillandi en þeir eru í laginu eins og kýrauga. Á jarðhæð er síðan Stjörnu- salur sem tekur um 150 manns. Þar heillar mjög gesti glæsileg og tignarleg kristals- ljósakróna í loftinu. Að sögn Ámunda eru pantanir á jólahlaðborð- um orðnar mjög miklar en þó eru nokkur kvöld laus. Fyrstu jólahlað- borðin verða um miðjan mánuðinn og síðan heldur þetta áfram inn í desember. Til að panta jólahlaðborð hjá Veislumiðstöðinni er gott að hringja í síma 517-0102 eða senda tölvupóst á netfangið panta@veislu- midstodin.is.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.