Dagblaðið Vísir - DV - 14.09.2018, Side 9
14. sept 2018 FRÉTTIR 9
opnu rými fyrir
framan alla,“ bætti
konan við.
Kostar það hundrað
þúsund? spurði blaðamaður.
„Já. Við munum eiga magnaða
lífsreynslu saman.“
Er allt innifalið í þeirri lífs-
reynslu?
„Auðvitað. Ertu hrifinn af stell-
ingunni 69?“ spurði konan og
blaðamaður svaraði játandi. „Dríf-
um okkur þá.“
Blaðamaður
kvaðst þá einungis
hafa 40 þúsund krón-
ur í veskinu. Konan svar-
aði að ekkert væri upp úr því að
hafa. Blaðamaður sagðist þá þurfa
að fara í hraðbanka en konan
sagðist ekki hafa tíma til bíða eft-
ir því.
„Þér liggur sem sagt á,“ sagði
blaðamaður.
„Já. Ég er mjög spennt. Ég vil
fá þig upp í herbergið. Þetta rými
hér er óþægilegt. Við þurfum
að fara upp. […] Komdu elskan,“
sagði konan og upplýsti aftur að í
lokuðu rými á þriðju hæð staðar-
ins gætu þau verið í næði þar sem
vændið fer fram.
Hvaðan koma konurnar á
Shooters?
Einn heimildarmanna DV er
leigubílstjóri sem upplýsti að á
Dyngjuvegi 14 væri að finna konur
sem stunduðu vændi. Konurnar
væru jafnframt
að selja vændi á
Shooters og væri
athvarf þeirra í
hinu glæsilega ein-
býlishúsi á meðan
þær eru hér á landi.
Í reisulegu húsinu eru
skráðar saman nokkrar
austurevrópskar konur sem eru
venjulega sóttar upp úr níu að
kvöldi til og fluttar á Shooters
eða keyrðar á aðra áfangastaði í
höfuðborginni. Heimildarmenn
segja að mannaferðir þar hafi ver-
ið gríðarlegar undanfarin ár og
hafi dömur búið þar saman, allt
að tuttugu í einu um tíma.
„Ég skil ekki hvernig lögreglan
gerir ekki neitt í þessu. Þetta fer
fram fyrir allra augum,“ segir einn
heimildarmaður DV sem hefur
búið í nágrenni hússins á Dyngju-
vegi undanfarin ár. „Þetta er fjöl-
skylduvænt hverfi og hryllir mann
við að sjá þessa umferð á vænd-
iskonum og strípidömum, því al-
máttugur má vita hvað gengur á í
þessu húsi. Ekki líst mér heldur á
alla leigubílana.“
Grunur um innherjasvik
Húsið á Dyngjuvegi 14 var sett á
sölu í kringum haustið 2015. Fyrir-
tækið Fastrek ehf. er nú skráð fyrir
húsinu en eigandi þess fyrirtækis
er Elena Litsova Sigtryggsson,
eigin kona Ómars Sigtryggssonar,
framkvæmdastjóra markaðsvið-
skipta hjá Saga Capital fjár-
festingarbanka. Bæði eru búsett
í Bretlandi.
Við innkeyrsluna hjá Dyngju-
vegi 14 hefur reglulega sést til
umferða bifreiðar sem er skráð á
Kjartan Berg Jónsson, sem að sögn
heimildarmanns hefur fengið
viðurnefnið „Kjarri Kólus“. Kjartan
var einn þriggja aðila sem grun-
aðir voru um að hafa notfært sér
innherjaupplýsingar í viðskiptum
með hlutabréf Icelandair en all-
ir sem lágu undir grun
neituðu alfarið sök
vegna málsins sem
er nú enn í ferli.
Talið er að
mennirnir
þrír hafi hagn-
ast um rúm-
lega 61 milljón
króna en hin
ætluðu brot eiga
að hafa átt sér
stað á tímabilinu frá
október 2015 til febrúar
2017. Mennirnir eru ýmist ákærð-
ir fyrir innherjasvik eða hlutdeild
í slíku broti. Þess er krafist af hér-
aðssaksóknara að þeim verði gerð
refsing auk þess sem fjármun-
ir þeirra og félagsins Fastreks,
sem einnig er ákært í málinu, alls
að fjárhæð rúmlega 90 milljónir
króna, verði gerðir upptækir. Gef-
in var út ákæra í málinu á dögun-
um sem var þingfest í Héraðsdómi
Reykjavíkur og verður næsta fyrir-
taka í málinu þann 21. september
næstkomandi.
Einnig er Kristján Georg Jó-
steinsson á meðal hinna grunuðu
í þessu máli, en hann er stjórnar-
formaður, framkvæmdastjóri og
prókúruhafi Fastreks ehf. ásamt
Elenu. Eiginkona Kristjáns, Anzela
Jósteinsson, situr einnig í stjórn
hjá fyrirtækinu og vill heimildar-
maður DV meina að þær Elena
Litsova og Anzela séu perluvin-
konur.
Kristján og Anzela voru bæði
dæmd þann 3. nóvember 2015
fyrir fjárhættuspil í gegnum fyr-
irtækið P&P áhugamannafélag.
Kristján hlaut tólf mánaða fang-
elsisdóm, þar af níu mánuði skil-
borðsbundna, en eiginkona hans
hlaut níu mánaða dóm, þar af sex
mánuði skilorðsbundna. Dómun-
um var áfrýjað.
Vændiskonur í íbúðum
Íslendinga
DV kannaði einnig vændi sem á
sér stað í Airbnb-íbúðum og gisti-
heimilum. Eina kvöldstund hafði
DV samband við yfir tuttugu konur
og var auðsótt mál að fá þá þjón-
ustu sem þær auglýstu á hinum
ýmsu síðum. Konurnar voru flestar
til húsa miðsvæðis í Reykjavík.
Flestar konurnar auglýstu á City of
Love og hafa auglýsingar á vefsíð-
unni aukist jafnt og þétt undanfar-
in ár, þótt talsvert sé um að sama
konan sé með fleiri en eina aug-
lýsingu. Sterk tengsl virðast vera
á milli fjölgunar ferðamanna og
starfsemi vændiskvenna. Það er
misjafnt hvað konurnar bjóða upp
á, en þær auglýsa allt frá hefð-
bundnu kynlífi yfir í svæsið ofbeldi
þar sem karlmanninum er boðið
að ganga hart fram gegn greiðslu,
og dæmi um að konur bjóði karl-
mönnum að slá sig á meðan á
„kynlífi“ stendur líkt og í svæsnum
klámmyndum.
Margar konurnar virtust vera
á eigin vegum en rannsókn DV
leiddi einnig í ljós að svo virð-
ist sem þriðji aðili hafi tekjur af
vændi. Þegar blaðamaður DV
hafði hringt í konurnar var hringt
í síma blaðamanns og spurt hvað
honum gengi til. Af hverju í ósköp-
unum hann væri að hringja í allar
þessar stúlkur. Hann væri búinn að
panta sér þjónustu hjá sex stúlk-
um á skömmum tíma. Af þessu má
draga þá ályktun að einhver haldi
utan um konurnar á meðan þær
eru hér á landi og geri þær út eins
og í tilviki barnaverndarstarfs-
mannsins fyrr á árinu.
Snorri Birgisson, sem er sér-
fræðingur í mansali hjá lög-
reglunni, hefur sagt mörg tilvik
hafa komið upp þar sem vændi er
stundað í skammtímaleiguíbúð-
um, svo sem Airbnb. Hefur Snorri
sagt að gestgjafar séu ekki alltaf
meðvitaðir um í hvaða tilgangi
fólk komi hingað til lands og átti
sig ekki á að vændi geti verið
VÆNDISKONURNAR Í REYKJAVÍK OG DULARFULLA HÚSIÐ Á DYNGJUVEGI
n Tugir vændiskvenna í miðborginni n Blaðamanni boðið vændi n Vændiskonur í íbúðum Íslendinga n DV fylgdist með kaupendum n Dularfullt hús á Dyngjuvegi n Allt í boði gegn kampavínskaupum„Ertu hrifinn af
stellingunni 69?
35 þúsund
klukkutími
35 þúsund
klukkutími
Vinna tvær
saman: Skúla-
gata, 35 þús-
und klukkutími
Hverfisgata,
35 þúsund
klukkutími, 55
þúsund tveir
tímar
Grettisgata, 35
þúsund hálftími
Hverfisgata,
35 þúsund
klukkutími
Hverfisgata,
35 þúsund
klukkutími
Laugavegur, 35 þúsund
klukkutími, 60.000
trekantur