Dagblaðið Vísir - DV - 14.09.2018, Síða 10
10 14. sept 2018FRÉTTIR
MANITOU MLT 625-75 H
Nett
fjölnotatæki
Pétur O. Nikulásson ehf. • Melabraut 23, Hafnarfjörður • Símar: 552 2650 / 552 0110 • pon@pon.is
6.800.000 kr. + VSK
ástæðan. Sjaldgæft sé að hús-
eigendur eða nágrannar tilkynni
grun um vændi.
Eitt heimilisfang kom oftar upp
en önnur í rannsókn DV, en það er
Hverfisgata 105 í Reykjavík, sem er
við hlið höfuðstöðva Lögreglun-
ar á höfuðborgarsvæðinu. Í því
umrædda húsnæði bjóða margar
konur þjónustu sína. Þetta er ekki
í fyrsta skipti sem þetta húsnæði
kemst í fréttirnar en í því stund-
aði Catalina Ncogo umtalsverða
vændisstarfsemi sem hún fékk
þriggja og hálfs árs dóm fyrir árið
2010.
DV fylgdist með kaupendum
Meðan á rannsókn DV stóð yfir
fylgdust blaðamenn með íbúðum
þar sem vændiskonur höfðust við.
Þar sáu blaðamenn íslenska karl-
menn kaupa sér aðgang að kon-
um. Blaðamenn staðfestu að um
íslenska karlmenn var að ræða
með því að taka niður bílnúmer
og jafnvel aka á eftir mönnunum
til síns heima en á mynd má sjá
þegar vændiskaupandi kemur út
af 101 Skuggi Guesthouse en um
er að ræða fjölskyldumann í Kópa-
vogi. Það eru því ekki aðeins er-
lendir ferðamenn sem nýta sér
neyð þessara kvenna. Slíkt gera ís-
lenskir karlmenn líka.
Margir karlar lifa í þeirri blekk-
ingu að hægt sé að greina á milli
þess hvaða konur séu seldar man-
sali og hvaða konur séu í vændi af
„fúsum og frjálsum vilja“. Í umfjöll-
un Kvennaathvarfsins um mansal
og vændi, þar sem bent er á ábyrgð
þeirra sem kaupa konur, segir:
„Kona sem ber harminn utan á
sér er ekki góð söluvara og oft ligg-
ur líf og heilsa þeirra við að afla
sem mestra tekna. Að sjálfu leið-
ir að kúnninn fær þá ímynd sem
hann sjálfur kýs og getur sannfært
sig um að hann eigi í viðskipta-
sambandi á jafnréttisgrundvelli.“
En niðurstaðan er sláandi.
Vændi grasserar í Reykjavík, í
leiguíbúðum, gistiheimilum og
kampavínsklúbbum sem aldrei
fyrr, þar sem allt er í boði. Það er
hægt að borga fyrir kynlíf, enda-
þarmsmök, munnmök, láta berja
sig og jafnvel borga fyrir það að fá
að berja konur. Og það gera bæði
erlendir og íslenskir karlmenn. n
„Við munum eiga
magnaða lífs-
reynslu saman.
Íslenskur karlmaður kemur út af gisti-
heimili eftir viðskipti við vændiskonu.
Þar dvaldi hann í klukkutíma og mátti
heyra stunur þeirra beggja út á götu.
Á kampavínsklúbbnum Shooters er vændi í boði fyrir viðskiptavini.
Á Dyngjuvegi 14 eiga athvarf konur sem
sjá sér farborða með vinnu á Shooters.