Dagblaðið Vísir - DV - 14.09.2018, Side 14
14 14. sept 2018FRÉTTIR
S
kákfélagið Hrókurinn fagn
aði á miðvikudaginn 20 ára
afmæli og af því tilefni er
sannarlega efnt til marg
víslegra viðburða, jafnt á Íslandi
og Grænlandi. Í dag, föstudaginn
14. september, klukkan 17, hefst
Afmælismót Hróksins í Ráðhúsi
Reykjavíkur. Meðal keppenda eru
margir bestu skákmenn Íslands,
áhugamenn úr öllum áttum, og
flest efnilegustu ungmennin okkar.
Heiðursgestur er Regina Pokorna,
sem tefldi með hinu sigursæla liði
Hróksins á Íslandsmóti skákfélaga.
„Keppendalistinn endurspegl
ar vel kjörorð okkar í Hróknum: Við
erum ein fjölskylda,“ segir Róbert
Lagerman, varaforseti Hróksins.
„Yngst er hin 11 ára Batel Goitom
Haile, ein efnilegasta skákstúlka Ís
lands, og aldursforsetinn er sjálfur
Friðrik Ólafsson, fyrsti stórmeistari
okkar og sannkölluð goðsögn. Alls
verða átta stórmeistarar meðal
keppenda, en líka harðsnúnir
áhugamenn á öllum aldri og úr öll
um áttum.“
Það sem byrjaði sem brandari
varð að köllun
Hrafn Jökulsson, forseti Hróksins,
segir að undanfarin tuttugu ár hafi
verið ævintýri líkust. „Við höfum
heimsótt alla grunnskóla á Íslandi
og hvert einasta sveitarfélag. Upp
haflega var félagið stofnað í hálf
gerðu bríaríi, við ætluðum bara
að setja saman keppnislið fyrir Ís
landsmót skákfélaga, byrja í fjórðu
deild og vinna eina deild á ári og
ná sjálfum Íslandsmeistaratitlinum
á skemmsta mögulega tíma. Það
tókst, en við lærðum margt á þeirri
vegferð, meðal annars að gull
verðlaun eru lítils virði miðað við
að geta útbreitt gleði og vináttu og
skapað ánægjustundir. Við áttuð
um okkur á því, að skák er hið full
komna verkfæri, enda geta allir teflt
sér til ánægju, burtséð frá aldri,
kyni, þjóðerni, bakgrunni eða lík
amsburðum. Og fyrst og fremst:
Skák er skemmtileg.“
Vorum komnir með nóg af gulli
Hrókurinn hætti sem keppnisfélag
árið 2004 eftir samfellda sigurgöngu
í sex ár. „Við ákváðum að snúa okk
ur alfarið að grasrótarstarfi og því
að útbreiða fagnaðarerindið,“ segir
Róbert. Í þeim anda hafa þeir Hrafn
og Róbert heimsótt Barnaspítala
Hringsins flesta fimmtudaga síðan
2003, unnið ötullega að skákstarfi
meðal fólks með geðraskanir og
auk þess heimsótt allt frá leikskól
um til dvalarheimila aldraðra, fang
elsa og athvarfa. „Við vorum komn
ir með alveg nóg af gullpeningum
og töldum tímanum betur varið í að
virkja sem flesta,“ segir Róbert.
Hrókurinn er sannarlega ekkert
venjulegt skákfélag. Hróksliðar
hafa unnið með samtökum á borð
við Fatimusjóðinn, UNICEF á Ís
landi, Rauða krossinn, Hjálpar
starf kirkjunnar og Barnaheill, ekki
síst að fjársöfnunum í þágu góðra
málefna. Síðustu fjögur árin hef
ur Hrókurinn að auki staðið fyrir
fatasöfnun í þágu barna og ung
menna á Grænlandi, en þar eru
lífskjör til muna lakari en á öðrum
Norðurlöndum.
Landnám á Grænlandi
„Þegar við héldum fyrsta skákmótið
í sögu Grænlands árið 2003 óraði
okkur ekki fyrir því, sem síðan hef
ur gerst,“ segir Hrafn. Skák var þá
að kalla óþekkt á Grænlandi en það
hefur heldur betur breyst. „Fyrsta
mótið var mikil upplifun, enda vor
um við flest að koma til Grænlands
í fyrsta skipti, en nutum ómetan
legrar liðveislu Benedikte Abelsen,
fyrrverandi ráðherra á Grænlandi
og formanns Kalak, vinafélags Ís
lands og Grænlands. Nú, fimmtán
árum síðar, höfum við farið um 80
ferðir til Grænlands, og haldið há
tíðir vítt og breitt um hið mikla
land. Við höfum eignast ótal vini
þar og eins og ég þreytist ekki á að
segja eru Íslendingar allra þjóða
heppnastir þegar kemur að ná
grönnum. Grænland hefur auðgað
líf mitt, og allra þeirra sem hafa tek
ið þátt í starfi okkar þar.“
Afmæliskaka beið Hróksliða á
Grænlandi
Á miðvikudaginn, daginn sem
Hrókurinn fagnaði tvítugsafmæl
inu, tóku fjórir knáir Hróksliðar land
í Kullorsuaq, 450 manna bæ á 74.
gráðu á vesturströnd Grænlands.
Þar stendur nú sem hæst hátíð, þar
sem skák, sirkusskóli og listasmiðja
fyrir börn eru á dagskránni. „Það
var tekið ævintýralega vel á móti
okkur,“ segir Máni Hrafnsson, leið
angursstjóri Hróksins í Kullorsuaq.
Heimamenn, sem nú fagna 90 ára
afmæli þessa mikla veiðimanna
bæjar, biðu Hróksliða á bryggjunni
og síðan var efnt til samsætis. „Þau
voru meira að segja tilbúin með af
mælisköku með merki Hróksins
og svo sungu börnin í bænum fyrir
okkur afmælis sönginn,“ segir Máni,
sem tekið hefur þátt í skákland
náminu frá upphafi. Hrókurinn
hefur farið vítt og breitt um Græn
land, en aldrei komist jafn norðar
lega og nú.
Óendanlegt þakklæti
„Okkur er efst í huga þakklæti,“ seg
ir Hrafn, aðspurður hvað standi
upp úr eftir tuttugu ára starf. „Við
erum óendanlega þakklát þeim ótal
mörgu sem hafa tekið þátt í starfi
okkar, stutt okkur í orði og verki og
hvatt okkur til dáða. Ég er hrædd
ur um að jafnvel heilt tölublað af
DV dygði ekki til að telja upp alla
þá sem hafa lagt okkur lið við að
útbreiða boðskap vináttunnar og
kærleikans.“
Aðspurður um næstu verkefni
segir Hrafn: „Það er ýmissa tíðinda
að vænta. Við ætlum að nota vetur
inn til að fara um landið og stefn
um að því að heimsækja enn á ný
öll sveitarfélög á Íslandi. Við Ró
bert höfum notið þeirra forréttinda
að bera hita og þunga af þessu
skemmtilega starfi og kannski mál
til komið að svipast um eftir arftök
um. Eitt er þó víst: Ævintýrið er rétt
að byrja.“ n
„Hefur verið skemmtilegt ævintýri,
en Hrókurinn er rétt að byrja!“
n Hrókurinn fagnar 20 ára afmæli með stórmóti í Ráðhúsi Reykjavíkur og hátíð á Grænlandi
n Það sem byrjaði sem brandari varð að köllun n Landnám á Grænlandi
Bjartmar Oddur Þeyr Alexandersson
bjartmar@dv.is ,,Okkur er efst í huga þakklæti.
Hrafn, Guðni forseti, Bergsteinn í UNICEF og Róbert eftir velheppnað maraþon 2018 í
þágu barna í Jemen.
Stolt stúlka á Grænlandi með bikar
frá Hróknum.
Friðrik Ólafsson, fyrsti stórmeistari
Íslands, teflir í Ráðhúsinu. Hér er
hann í Djúpavík á Ströndum ásamt
Hrafni árið 2010.
Ungur pjakkur í Kulusuk með prjóna-
húfu frá Íslandi.
Kristín Anna Claessen lætur sig aldrei vanta í fjáröflunarmaraþon Hróksins í þágu
góðs málstaðar.
Hrókurinn og Edda gáfu á sínum tíma
25.000 eintök af bókinni góðu, Skák
og mát.
Hróksliðar á Grænlandi. Róbert undirbýr
kvöldverð undir vökulum augum
Kristjönu G. Motzfeldt, heiðursforseta
Hróksins.
Skák er skemmtileg! Frá Ittoqqortoormitt, þar sem Hróksliðar halda árlega páska-
skákhátíðir.