Dagblaðið Vísir - DV - 14.09.2018, Blaðsíða 26
26 FÓLK - VIÐTAL 14. sept 2018
„Ég hef bara verið í tyggjóinu, svo
fór ég á Þjóðhátíð í Eyjum og fór
í þetta,“ segir Brynjar og lítur á
rafrettuna. „Þetta er bara eitthvert
tóbaksbragð. Ég er reyndar meira í
tyggjóinu. Ég hef oft hætt að reykja,
tekið allt að tveggja ára hlé. Ég hef
lítið reykt síðasta eitt og hálfa árið,
nema ég reykti á haustmánuðum
2017. Svo á ég tvo syni sem hafa
aldrei reykt, ég er ekki betri fyrir
mynd en þetta,“ segir Brynjar og
brosir.
Ferðu nógu vel með sjálfan þig?
„Nei, ég fer ekkert vel með mig.
En betur en margir aðrir miðað
við holdafar þjóðarinnar. Ég hugsa
sæmilega um mig. Ég hef ekki alltaf
lifað heilbrigðu lífi en ég passa mig
að óhollustan fari ekki úr böndun
um. Ég er ekki bindindismaður.
Hef alltaf sagt að ég og vín eigum
vel saman. Það fylgja samt engin
vandamál minni drykkju, ég drekk
líka ekki mikið, hún er algjörlega
bundin einhverju tilefni. Ég drekk
aldrei einn og það er aldrei vín
með mat hjá mér, nema í matar
boðum. En nikótínið hefur fylgt
mér lengi þótt ég láti tóbakið vera í
augnablikinu.“
Það hefur verið talað um að þér
bregði mjög mikið, er þetta sjúk-
dómur sem þú hefur?
„Þetta er ekki sjúkdómur, þetta
er bara almenn taugaveiklun,“
segir hann og hlær. „Þetta er bara
eitthvað í boðkerfinu, taugaboðin
verða mjög hröð upp í heila,
þannig að viðbrögðin verða mjög
ofsafengin. Það er hægt að fá lyf
við þessu en á meðan hjartað er í
lagi þá er allt í lagi að mér bregði
eitthvað.“
Eins og samfélagsumræðan er í
dag, stór orð látin falla og þú oft
í hringiðu umræðunnar, hvaða
áhrif hefur þetta á heimilislífið?
„Mig grunar að þetta hafi haft
einhver áhrif á strákana til að byrja
með, en þeir eru það fullorðnir í
dag að ég held að þeir afpláni þetta
bara í rólegheitum. Sama með
konuna mína. Það hefur valdið
henni nokkrum óþægindum að ég
sé í pólitík, en fjölskyldan stend
ur alltaf saman, sem er mikil
vægt. Svo er ég bara skammaður
heima og látinn vita þegar ég geng
of langt eða þau eru einfaldlega
ósammála mér.“
Hefur þú orðið fyrir aðkasti
vegna skoðana þinna?
„Það eru tvö dæmi af Ölstof
unni. Í bæði skiptin heyrði maður
að þar voru á ferð mjög harðir
femínistar, konur. Í fyrra skiptið
var hellt yfir mig úr glasi fyrirvara
laust. Í seinna skiptið var þess kraf
ist að ég færi af staðnum, ég væri
svo vondur maður. Ég fæ iðulega
ekki svona viðbrögð þegar ég fer
út á meðal fólks, margir koma og
segja mér að þeir séu ósammála
mér en sáttir við mig að öðru leyti.
Enn fleiri koma og hrósa mér.“
Eigum að sýna mildi
Hvað finnst þér um #metoo-
byltinguna í vetur?
„Það er mjög gott að menn fari
yfir það hvernig bæta megi sam
skipti fólks, tíðarandinn er auðvit
að mismunandi. En eins og í öllum
öðrum byltingum þá tekur ofstæk
ið yfir, þá er hægt að hengja menn
með því að segja að þeir hafi gert
eitthvað fyrir 30 árum, enginn var
kærður og enginn getur varið sig.
Það samræmist illa reglum réttar
ríkisins. Þeir sem brjóta af sér eru
kærðir og það fer rétta leið, þú bíð
ur ekki í mörg ár og ferð svo með
það í fjölmiðla til að dæma menn
og útskúfa. Það finnst mér ekki
góð þróun.“
Brynjar tekur oft upp hanskann
fyrir fólk sem hann telur að geti
ekki varið sig í umræðunni. „Eins
og með þennan leikara, skulum
ekki nefna hann á nafn hér, hvern
ig ætli líf hans sé? Hvernig ætli
honum líði? Ég þekki manninn
ekki neitt, hef aldrei hitt hann, en
ég tek hanskann upp fyrir þannig
fólk en aðallega fyrir réttarríkið.
Það er ofstækið sem er hættulegt.
Við eigum að sýna mildi, kærleika
og fyrirgefa. Ég er ekki að réttlæta
það sem hann gerði, við eigum
3 SKREF
BÓKHALDSÞJÓNUSTA
LÖGFRÆÐIRÁÐGJÖF
EIGNASKIPTAYFIRLÝSINGAR
• Skráningartöflur
• Eignaskiptayfirlýsingar
• Eftirfylgni
EIGNASKIPTAYFIRLÝSINGAR
ÞARABAKKA 3
S. 578 6800
„Ef fólk heldur
að ég sé einhver
Trump þá er það mikill
misskilningur.