Dagblaðið Vísir - DV - 14.09.2018, Síða 28
28 FÓLK - VIÐTAL 14. sept 2018
PIZZERIA
Dalvegi 2, 201 Kópavogi -
Dalshrauni 13, 220 Hafnarfirði
bara að fyrirgefa eða að minnsta
kosti gefa mönnum kost á endur
komu í samfélagið. Það er eina
leiðin til að lifa saman í sæmilega
siðuðu samfélagi.“
Er fólk búið að missa trú á kerf-
inu og dómstólum?
„Menn skulu ekki halda að
þetta kerfi sé fullkomið. Það er
mjög eðlilegt að fólk gagnrýni
niðurstöður dómstóla, ég er ekki
alltaf sáttur. En öll svona aðför að
dómstólum – fólk sem hefur ekki
séð gögn málsins, hefur ekki hlust
að á framburði og hefur engar
forsendur til að meta sönnun –
það er bara hættulegt. Réttarríkið
er alltaf í vörn vegna þess að kraf
an er svo hörð hjá einhverjum há
værum hópum, og þá er hætta á að
menn gefi eftir, það er bara mann
legt eðli. Það mun á endanum
eyðileggja þetta kerfi og þá mun
ofstækið taka völdin með ófyrir
séðum afleiðingum.“
Hefði aldrei ráðið Gústaf
Brynjar telur að á vissan hátt sé
fólk ekki eins umburðarlynt í dag
og áður, það sé hins vegar ekki al
gilt og eigi ekki við um kynhegðun
hvers konar. „Mér fannst vera
meira umburðarlyndi áður fyr
ir alls konar hegðun. Mér fannst
vera meira frjálslyndi, gagnvart
fólki sem var með sérkennilegar
skoðanir eða hugsaði öðruvísi.
Það er mín upplifun, hún þarf ekki
að vera rétt. Alla sem kaupa ekki
pólitíska rétthugsun hverju sinni
þarf eiginlega að útskúfa. Snorri í
Betel mátti ekki einu sinni vitna í
Biblíuna. Það verða svo ofstækis
full viðbrögð þegar menn fylgja
ekki í rétthugsuninni.“
Átti þetta við um bróður þinn,
Gústaf Níelsson, þegar hann
var fenginn í mannréttindaráð
Reykjavíkurborgar?
„Þetta er gott dæmi um hræðsl
una við rétthugsunina og skort á
umburðarlyndi gagnvart skoðun
um annarra, bara lýsandi dæmi.
Ég hefði að vísu aldrei ráðið hann.
Hann er samt ekki hættuleg
ur maður þótt hann sé ekki eins
og fólk er flest,“ segir Brynjar og
brosir.
Hvaða skoðun hefur þú á
múslimum?
„Ég hef ekki skoðun á trúnni
sem slíkri, mér er alveg sama. En ég
gagnrýni lífsgildi margra sem búa
í öðrum menningarheimi en ég.
Það getur hins vegar verið mikill
munur á múslima í miðborg Istan
búl og múslima í ríki þar sem shar
íalög gilda, það er til fólk í þessum
menningarheimum sem beinlín
is hatar okkar lífsgildi og vill ekki
taka þátt í okkar samfélagi, en er
hér. Það mun skapa hættu ef slík
ur hópur stækkar of mikið, sagan
segir okkur það. Það mun slá í
brýnu. Í umræðunni skiptir miklu
máli hvernig orðunum er háttað.
Hér eru sumir sem eru beinlín
is með hatursorðræðu, aðrir eru
bara að gagnrýna innflytjenda
stefnu, það má ekki setja þetta fólk
í sama hóp. Það er gott að fá hing
að útlendinga til að vinna og taka
þátt í samfélaginu, skiptir engu
máli hvort viðkomandi er múslimi
eða ekki. Það þarf bara engan
speking til að sjá að það endar illa
fyrir samfélagið ef hér er stór hóp
ur með ósamrýman leg gildi.“
Skilur ásýndarstjórnmál
Það er ekkert launungarmál að
Brynjar hefði ekkert á móti því að
verða dómsmálaráðherra, en frá
því að hann settist á þing hafa þrjár
konur gegnt því embætti. Fyrir
síðustu kosningar vék Brynjar úr
fyrsta sæti á lista Sjálfstæðisflokks
ins í Reykjavík suður fyrir Sigríði Á.
Andersen dómsmálaráðherra.
Hvað finnst þér í raun og veru
um að vera ekki dómsmálaráð-
herra?
„Ég hef nú sagt það um stjórn
málin, í þessu pólitíska rétthugs
unarsamfélagi í dag, að reynsla
og þekking skipti í raun og veru
minna máli en áferð og ásýnd. Ef
það er pólitískt rétt, þá nærðu til
fleiri hópa. Gott og vel, það er al
veg sjónarmið, en ég er bara ósam
mála því. Ég segi að ef þú hefur
þingmann með reynslu og þekk
ingu innan þinna raða þá áttu að
nota hann í ráðherrastól. Að vísu
höfum við dómsmálaráðherra
sem hefur góða reynslu og þekk
ingu af málum sem heyra undir
það ráðuneyti. Krafan er að ungt
fólk eigi að komast til áhrifa, kon
ur líka. Sú krafa er mjög skiljanleg
þótt ég telji að reynsla og þekking
skipti meira máli.“
Brynjar getur lítið sagt um
stöðu sína innan flokksins og það
heyrist á honum að hann hafi litlar
áhyggjur af stöðu sinni eða ríkis
stjórnarinnar. Hann segir það í
höndum flokksmanna hversu
lengi hann verði þingmaður. „Ég
á nú ekki von á því að sitja í meira
en eitt kjörtímabil í viðbót. Ég er
að nálgast sextugt og á kannski
tíu ára starfsferil eftir. Hugsa að ég
geri eitthvað annað síðustu fimm
árin.“ n
„Þessi pólitík
snýst alltaf bara
um eitthvert upphlaup,
oftast algjört bull.
Brynjar viðurkennir að stíllinn sem hann beitir á samfélagsmiðlum sé ekki allra. Hér hnýtir
hann í borgaryfirvöld.
Skynsemi í Vinstri grænum Brynjari finnst
gott að vinna með þingmönnum Vinstri grænna
þrátt fyrir hugmyndafræðilegan ágreining.