Dagblaðið Vísir - DV - 14.09.2018, Side 34
Fyrir bílinn 14. september 2018KYNNINGARBLAÐ
KVIKKFIX:
Viatti-dekkin eru bylting í vetrardekkjum
Rússarnir koma – við erum að fara að bjóða, í fyrsta skipti til almennings á Íslandi, nýja gerð
af dekkjum sem eru alveg geggj-
uð. Um er að ræða vetrardekk sem
hönnuð eru af Ítölum og Þjóðverjum í
samvinnu og framleidd í verksmiðjum
í Rússlandi – sérstaklega fyrir rúss-
neska veturinn og rússneska sveita-
vegi. Þetta eru virkilega agressíf
vetrardekk sem henta líka sérstaklega
vel fyrir íslenskar aðstæður og eru
á hlægilega lágu verði,“ segir Hinrik
Morthens hjá bílaþjónustufyrirtækinu
Kvikkfix. Rússnesku dekkin Viatti verða
bylting á dekkjamarkaðnum hér á
landi.
„Stóru bílaleigurnar hafa verið
að nota þessi dekk undanfarið með
frábærum árangri en núna er kominn
tími til að bjóða almennum bíleigend-
um þau. Það var heildsali í Belgíu sem
fékk leyfi til að selja dekkin í Evrópu og
hann hefur ekki undan,“ segir Hinrik.
Kvikkfix flytur inn alla sína varahluti
sjálft og tekst með þeim hætti að
halda verði á þjónustunni mjög niðri.
„Það er allur heimurinn undir og við
flytjum inn varahluti frá ýmsum lönd-
um. Við erum engum háðir og getum
boðið frábært verð. Við þykjum vera
vægast sagt sanngjarnir í verði,“ segir
Hinrik. Kvikkfix sérhæfir sig meðal
annars í dekkjum, rafgeymum, olíu-
og síuskiptum, bremsum, rúðuþurrk-
um, pústkerfum og dempurum.
Fyrir utan góðar vörur á lágu verði
býður Kvikkfix upp á toppþjónustu
enda er fyrirtækið í góðu húsnæði
með fyrsta flokks búnaði og toppað-
stöðu.
KvikkFix er til húsa að Hvaleyrar-
braut 4–6 í Hafnarfirði. Sími er 575-
1500. Bráðlega líður að þeim tíma
þegar bíleigendur þurfa að hringja og
panta dekkjaskipti fyrir bílinn. Þá er
kjörið að prófa nýju mögnuðu Viatti-
-vetrardekkin á frábæru verði.
Sjá nánar á vefsíðunni kvikkfix.is.
Arctic Trucks hefur sérhæft sig í jeppabreytingum í um þriggja áratuga skeið.
Höfuðstöðvar fyrirtækisins eru
að Kletthálsi 3 þar sem rekið er
breytingaverkstæði og verslun sem
þjónustar jeppa- og ferðafólk. Í dag
rekur Arctic Trucks starfsstöðvar
á fjórum stöðum í heiminum. „Við
erum sérfræðingar í jeppadekkjum
og höfum verið í nánu samstarfi
við Nokian um hönnun dekkja. Við
hönnuðum með þeim 35 tommu
alvöru vetrardekk fyrir um þremur
árum og þau hafa komið gríðarlega
vel út. Enn fremur hönnuðum við
í sameiningu 44 tommu snjódekk,
sem er eitt stærsta radial dekk í
heimi og er það sérstaklega hannað
fyrir snjóakstur. Arctic Trucks hefur
einmitt gert prófanir á 44 tommu
dekkinu við erfiðustu hugsanlegu
aðstæður á suðurskautinu og
Grænlandsjökli, þar sem það hefur
reynst einstaklega vel,“ segir Steinar
Sigurðsson hjá Arctic Trucks.
Arctic Trucks er klárlega staður-
inn þar sem eigendur stórra jeppa
fá vetrardekkin undir jeppana sína
og þjónustar fyrirtækið jafnt at-
vinnubíla, ferðaþjónustufyrirtæki
sem og einstaklinga sem eiga stóra
jeppa.
Nýtt dekk kynnt um helgina
Um helgina stendur Ferðaklúbb-
urinn 4X4 fyrir stórri jeppasýningu
í Fífunni í Kópavogi og mun Arctic
Trucks kynna þar lausnir sínar fyrir
ýmsar gerðir jeppa, sem og úrval
jeppadekkja. Arctic Trucks er um-
boðsaðili fyrir hin margrómuðu Dick
Cepek-jeppadekk og á sýningunni
verður kynnt splunkunýtt dekk frá
Dick Cepek.
„Þetta er fjórða dekkið í seríunni.
Og þar sem við getum núna boðið
fjögur mismunandi mynstur geta
allir fundið dekk við sitt hæfi,“ segir
Steinar sem fékk sent eitt dekk til
landsins fyrir sýninguna en dekkin
fara síðan í almenna sölu um næstu
mánaðamót.
Sjá nánar um Arctic Trucks á
vefsíðunni arctictrucks.is. Einnig eru
veittar upplýsingar í síma 540-
4900 og heimilisfangið er sem fyrr
segir Klettháls 3. Þar er opið virka
daga frá kl. 8 til 18.
ARCTIC TRUCKS:
Nýja Dick Cepek-dekkið
verður frumsýnt um helgina