Dagblaðið Vísir - DV - 14.09.2018, Page 36

Dagblaðið Vísir - DV - 14.09.2018, Page 36
Fyrir bílinn 14. september 2018KYNNINGARBLAÐ SKORRI EHF. SELUR TUDOR-RAFGEYMA: Traust fagmennska í 40 ár Sérstaða Skorra felst í því að við höfum haldið okkur við það að selja sænsku Tudor-raf- geymana í 40 ár. Það hefur verið okk- ur og bíleigendum til gæfu að við höf- um haldið okkur við þetta sérsvið og ræktað það,“ segir Lárus Björnsson, rekstrarstjóri hjá fyrirtækinu Skorra ehf. sem var stofnað árið 1978. Tudor-rafgeymar eru rómaðir fyrir gæði og passa í allar gerðir bíla, en einnig í vinnuvélar, mótorhjól, skip og öll frístundatæki sem notuð eru á sumrin. Skorri sinnir öllum slíkum þörfum. „Flestir nýir bílar, sem ekki eru rafbílar eða hybrid, eru með svokall- að stopp-start kerfi þar sem bíllinn drepur á sér þegar hann er stöðv- aður og ræsir aftur þegar stigið er á bensíngjöfina, en þetta bæði sparar eldsneyti og er umhverfisvænt. Það þarf sérstaka rafgeyma í þessa bíla, sem Tudor-framleiðir,“ segir Lárus. Hraðþjónusta með endurgjalds- lausri bilanagreiningu Að sögn Lárusar endist rafgeymir í venjulegum fjölskyldubíl í fjögur til sex ár. „Þegar kólnar á haustin þá reynir meira á rafgeymana. Vélin verður þyngri í starti, ég tala nú ekki um eftir næturfrost. Þá kemur oft í ljós að rafgeymirinn er orðinn lélegur þó að hann hafi dugað yfir sumarið. Við rekum hraðþjónustu hér þannig að þú getur mætt með bílinn án þess að panta tíma og látið okkur mæla endurgjaldslaust. Við höfum mjög góð tæki til bilanagreininga og ef eitt- hvað annað amar að en rafgeymirinn getum við vísað á verkstæði sem við erum í samstarfi við.“ Það eru eingöngu þjálfaðir fag- menn sem vinna hjá Skorra og þeir tryggja að bíleigendur geta ávallt treyst á þjónustu þeirra þegar kemur að rafgeymum. Sem betur fer er þetta ekki dýr fjárfesting. Rafgeymir í venjulegan fjölskyldubíl kostar á bilinu 13 til 20 þúsund krónur og í flestum tilvikum er ísetningin ódýr því hún tekur stuttan tíma. Skorri er með yfir 150 stærðir af rafgeymum á lager til að tryggja að ávallt sé til rafgeymir í það tæki sem um ræðir hverju sinni. Kappkostað er að hafa ávallt ferska og góða rafgeyma á lager því hillulíf þeirra er takmarkað. Þess vegna eru pant- aðir rafgeymar til landsins tvisvar í mánuði. „Einnig seljum við hleðslutæki sem líka eru vaktarar og mega vera stöð- ugt í sambandi yfir hinn langa vetur á Íslandi en það getur reynst vel fyrir bíla og tæki sem ekki eru í notkun á veturna.“ Skorri er til húsa að Bíldshöfða 12 og símanúmer er 577-1515. Allar nánari upplýsingar eru á nýrri og endurbættri vefsíðu skorri.is.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.