Dagblaðið Vísir - DV - 14.09.2018, Blaðsíða 36
Fyrir bílinn 14. september 2018KYNNINGARBLAÐ
SKORRI EHF. SELUR TUDOR-RAFGEYMA:
Traust fagmennska í 40 ár
Sérstaða Skorra felst í því að við höfum haldið okkur við það að selja sænsku Tudor-raf-
geymana í 40 ár. Það hefur verið okk-
ur og bíleigendum til gæfu að við höf-
um haldið okkur við þetta sérsvið og
ræktað það,“ segir Lárus Björnsson,
rekstrarstjóri hjá fyrirtækinu Skorra
ehf. sem var stofnað árið 1978.
Tudor-rafgeymar eru rómaðir fyrir
gæði og passa í allar gerðir bíla, en
einnig í vinnuvélar, mótorhjól, skip
og öll frístundatæki sem notuð eru
á sumrin. Skorri sinnir öllum slíkum
þörfum.
„Flestir nýir bílar, sem ekki eru
rafbílar eða hybrid, eru með svokall-
að stopp-start kerfi þar sem bíllinn
drepur á sér þegar hann er stöðv-
aður og ræsir aftur þegar stigið er á
bensíngjöfina, en þetta bæði sparar
eldsneyti og er umhverfisvænt. Það
þarf sérstaka rafgeyma í þessa bíla,
sem Tudor-framleiðir,“ segir Lárus.
Hraðþjónusta með endurgjalds-
lausri bilanagreiningu
Að sögn Lárusar endist rafgeymir
í venjulegum fjölskyldubíl í fjögur til
sex ár. „Þegar kólnar á haustin þá
reynir meira á rafgeymana. Vélin
verður þyngri í starti, ég tala nú ekki
um eftir næturfrost. Þá kemur oft í
ljós að rafgeymirinn er orðinn lélegur
þó að hann hafi dugað yfir sumarið.
Við rekum hraðþjónustu hér þannig
að þú getur mætt með bílinn án þess
að panta tíma og látið okkur mæla
endurgjaldslaust. Við höfum mjög
góð tæki til bilanagreininga og ef eitt-
hvað annað amar að en rafgeymirinn
getum við vísað á verkstæði sem við
erum í samstarfi við.“
Það eru eingöngu þjálfaðir fag-
menn sem vinna hjá Skorra og þeir
tryggja að bíleigendur geta ávallt
treyst á þjónustu þeirra þegar kemur
að rafgeymum. Sem betur fer er
þetta ekki dýr fjárfesting. Rafgeymir í
venjulegan fjölskyldubíl kostar á bilinu
13 til 20 þúsund krónur og í flestum
tilvikum er ísetningin ódýr því hún
tekur stuttan tíma.
Skorri er með yfir 150 stærðir af
rafgeymum á lager til að tryggja að
ávallt sé til rafgeymir í það tæki sem
um ræðir hverju sinni. Kappkostað
er að hafa ávallt ferska og góða
rafgeyma á lager því hillulíf þeirra
er takmarkað. Þess vegna eru pant-
aðir rafgeymar til landsins tvisvar í
mánuði.
„Einnig seljum við hleðslutæki sem
líka eru vaktarar og mega vera stöð-
ugt í sambandi yfir hinn langa vetur
á Íslandi en það getur reynst vel fyrir
bíla og tæki sem ekki eru í notkun á
veturna.“
Skorri er til húsa að Bíldshöfða
12 og símanúmer er 577-1515. Allar
nánari upplýsingar eru á nýrri og
endurbættri vefsíðu skorri.is.