Dagblaðið Vísir - DV - 14.09.2018, Side 38
Fyrir bílinn 14. september 2018KYNNINGARBLAÐ
Bræðurnir Ólafur og Tyrf-ingur Leóssynir stofnuðu Jeppasmiðjuna árið 1990.
Fyrirtækið hefur sérhæft sig í við-
gerðum á sjálfskiptingum og jeppum
og varahlutasölu. Fyrir tveimur árum
veiktist Ólafur úr krabbameini og þá
var starfseminni skipt upp þannig að
varahlutainnflutningur og varahluta-
sala er undir merkjum Jeppasmiðj-
unnar en viðgerðarþjónustan er rekin
af öðrum eigendum undir nafninu
Ljónsstaðir.
Ólafur lést í sumar og var öllum
harmdauði sem til hans þekktu.
Heimilisfangið er Ljónsstaðir sem
eru rétt fyrir utan Selfoss en í viss-
um skilningi þjónar fyrirtækið öllu
landinu. „Við seljum varahluti til verk-
stæða og almennings um allt land og
héðan fara daglega margir pakkar
með póstinum og flutningabílum
hvert á land sem er. Auk þess fara
sendibílar með vörur frá okkur þrjár
ferðir á dag til Reykjavíkur,“ segir
Tyrfingur Leósson.
Í varahlutainnflutningnum er mikil
áhersla lögð á varahluti í bíla sem
eru á Bandaríkjamarkaði. „Þar má
nefna Ford, Dodge, Chevrolet, Jeep
og svo bandarískar gerðir af Toyota,
Mazda, Hyundai, Kia, Subaru o.fl.,“
segir Tyrfingur.
Ávallt er mikið til af varahlutum á
lager en Jeppasmiðjan pantar aðra
varahluti sem vantar hverju sinni
jafnóðum og fær tvær sendingar í
viku frá Bandaríkjunum. Einnig er
Jeppasmiðjan með olíur, frostlög,
rúðuvökva og rafgeyma í margar
gerðir bíla.
Sem fyrr segir voru viðgerðir á
sjálfskiptingum og almennar jeppa-
viðgerðir helstu sérsvið Jeppasmiðj-
unnar en einnig hefur fyrirtækið kom-
ið mikið að bílabreytingum í gegnum
árin. „Við höfum smíðað mjög
mikið fyrir þessi fyrirtæki sem eru í
breytingum á bílum og þessir breyttu
bílar hjá ferðaþjónustufyrirtækjunum
eru til dæmis flestir með einhverja
hluti sem við höfum smíðað,“ segir
Tyrfingur. „En nú hefur verkstæðið
Ljónsstaðir, sem er í eigu fimm af
okkar fyrrverandi starfsmönnum,
yfirtekið þann lið starfseminnar.“
Sem fyrr segir er Jeppasmiðjan til
húsa að Ljónsstöðum, skammt fyrir
utan Selfoss.
Símanúmer er 480-0120 en
nánari upplýsingar eru á vefsíðunni
jepp.is.
JEPPASMIÐJAN LJÓNSSTÖÐUM:
Þjónusta og varahlutir í
miklu úrvali