Dagblaðið Vísir - DV - 14.09.2018, Page 38

Dagblaðið Vísir - DV - 14.09.2018, Page 38
Fyrir bílinn 14. september 2018KYNNINGARBLAÐ Bræðurnir Ólafur og Tyrf-ingur Leóssynir stofnuðu Jeppasmiðjuna árið 1990. Fyrirtækið hefur sérhæft sig í við- gerðum á sjálfskiptingum og jeppum og varahlutasölu. Fyrir tveimur árum veiktist Ólafur úr krabbameini og þá var starfseminni skipt upp þannig að varahlutainnflutningur og varahluta- sala er undir merkjum Jeppasmiðj- unnar en viðgerðarþjónustan er rekin af öðrum eigendum undir nafninu Ljónsstaðir. Ólafur lést í sumar og var öllum harmdauði sem til hans þekktu. Heimilisfangið er Ljónsstaðir sem eru rétt fyrir utan Selfoss en í viss- um skilningi þjónar fyrirtækið öllu landinu. „Við seljum varahluti til verk- stæða og almennings um allt land og héðan fara daglega margir pakkar með póstinum og flutningabílum hvert á land sem er. Auk þess fara sendibílar með vörur frá okkur þrjár ferðir á dag til Reykjavíkur,“ segir Tyrfingur Leósson. Í varahlutainnflutningnum er mikil áhersla lögð á varahluti í bíla sem eru á Bandaríkjamarkaði. „Þar má nefna Ford, Dodge, Chevrolet, Jeep og svo bandarískar gerðir af Toyota, Mazda, Hyundai, Kia, Subaru o.fl.,“ segir Tyrfingur. Ávallt er mikið til af varahlutum á lager en Jeppasmiðjan pantar aðra varahluti sem vantar hverju sinni jafnóðum og fær tvær sendingar í viku frá Bandaríkjunum. Einnig er Jeppasmiðjan með olíur, frostlög, rúðuvökva og rafgeyma í margar gerðir bíla. Sem fyrr segir voru viðgerðir á sjálfskiptingum og almennar jeppa- viðgerðir helstu sérsvið Jeppasmiðj- unnar en einnig hefur fyrirtækið kom- ið mikið að bílabreytingum í gegnum árin. „Við höfum smíðað mjög mikið fyrir þessi fyrirtæki sem eru í breytingum á bílum og þessir breyttu bílar hjá ferðaþjónustufyrirtækjunum eru til dæmis flestir með einhverja hluti sem við höfum smíðað,“ segir Tyrfingur. „En nú hefur verkstæðið Ljónsstaðir, sem er í eigu fimm af okkar fyrrverandi starfsmönnum, yfirtekið þann lið starfseminnar.“ Sem fyrr segir er Jeppasmiðjan til húsa að Ljónsstöðum, skammt fyrir utan Selfoss. Símanúmer er 480-0120 en nánari upplýsingar eru á vefsíðunni jepp.is. JEPPASMIÐJAN LJÓNSSTÖÐUM: Þjónusta og varahlutir í miklu úrvali

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.