Dagblaðið Vísir - DV - 14.09.2018, Síða 44
44 FÓLK 14. sept 2018
Hafþór Júlíus Björnsson: Austurkór 117, Kópavogur
Hafþóri hefur gengið flest í haginn í Jötunheim-
um og hefur fest sig í sessi sem einn þekkt-
asti aflraunamaður heims. Hann tryggði
sér titilinn sterkasti maður Evrópu í apríl
í fyrra en varð að gera sér silfrið að góðu
í keppninni um nafnbótina Sterkasti
maður heims. Hafþór hefur tekið að sér
fjölmörg hlutverk í auglýsingum en hann
er frægastur fyrir hlutverk sitt í þáttunum
vinsælu Game of Thrones.
Kraftajötuninn Hafþór Júlíus hefur verið
mikið í fréttum, hefur hann verið sakaður um
heimilisofbeldi en því hefur hann neitað staðfastlega. Hann hikar ekki
við að eyða peningum í ástvini sína, til að mynda gaf hann kærustu
sinni glænýjan Range Rover-jeppa, en þeir kosta dágóðan skilding.
Viltu kaupa fasteign
á spáni ?
masainternational.is / S. 555 0366 - Jón Bjarni & Jónas
Masa international býður
þér í skoðunarferð til Costa
blanCa í septeMber og október á
39.900 kr.
þar seM drauMaeignina þína gæti Verið að finna
Róbert Wessman:
Vatnsstígur 22,
Reykjavík
Róbert Wessman er stofnandi og
forstjóri lyfjafyrirtækisins Alvogen.
Hann þekkir vel til í þeim geira en
áður var hann forstjóri Actavis, frá
aldamótum til 2008. Hann stofn-
aði svo Alvogen árið 2009 og hefur
fyrirtækið stækkað frá því að vera
lítið fyrirtæki í Bandaríkjunum í
að vera alþjóðlegt fyrirtæki með
starfsemi í 35 löndum með höfuð-
stöðvar í Vatnsmýrinni í Reykjavík.
Forstjóralífið er ljúft og
Wessman þarf ekki að ganga í
Dressman, en samkvæmt Tekju-
blaðinu í fyrra var hann með 320
milljónir í laun eða 26 milljónir
á mánuði. Það hefur gert honum
kleift að gera vel við sig en hann
á dýrustu íbúð sem Íslendingur
hefur átt, 373 fermetra íbúð í New
York með útsýni yfir Central Park.
Síðustu jólum eyddi hann á
Barbados. Róbert er mik-
ið í fréttum, nú síðast
þegar hann trúlofaðist
Kseniu Shakhma-
novu í miðju eld-
fjalli. Þegar Róbert
er á Íslandi býr
hann í glæsilegri
íbúð við Vatnsstíg í
Skuggahverfinu.
Kári Stefánsson: Fagraþing 5, Kópavogur
Kári er forstjóri Íslenskrar erfðagreiningar og hefur verið frá stofnun árið 1996.
Hann er læknir og starfaði áður sem prófessor í taugalækningum, taugameina-
fræði og taugalíffræði við Harvard-háskólann í Boston og sinnti sjúklingum við
Beth Israel-sjúkrahúsið þar í borg.
Undanfarið hefur hann tekið þátt í pólitískri umræðu með beittum skrifum um
bæði forsætisráðherra og borgarfulltrúa. Árið 2016 hrinti Kári af stað undirskriftasöfnuninni Endurreisum
heilbrigðiskerfið og safnaði 85 þúsund undirskriftum um að ríkið verði 11 prósentum af vergri landsfram-
leiðslu í heilbrigðismál. Þó svo að Kári hafi efnast mikið á undanförnum árum sem forstjóri og byggt glæsi-
hýsi í Kópavogi hikar hann ekki við að standa á sínu. Stóð hann lengi í deilum við hina ýmsu verktaka sem
unnu að smíði hússins.
Gunnar Nelson: Kleifarvegur 6, Reykjavík
Bardagakappinn Gunnar Nelson hóf ferilinn í
karate þrettán ára gamall og vann fjölmarga
Íslandsmeistaratitla. Sautján ára sagði
hann skilið við karate og hóf að keppa í
brasilísku jiu jitsu og glímu. Eftir það lá
leiðin í blandaðar bardagalistir, MMA.
Gunnar var einn af þeim sem komu
að stofnun bardagafélagsins Mjölnis
árið 2005 en til að byrja með voru þetta
aðeins nokkrir strákar að leika sér í æf-
ingasal karatefélagsins Þórshamars. Vöxtur-
inn hefur hins vegar verið ævintýralegur síðan
þá og félagið sífellt sprengt utan af sér húsnæði. Nú er félagið til húsa í
Öskjuhlíðinni og iðkendur eru um 1.600 talsins.
Helsta ástæða fyrir þessum vexti eru almennar vinsældir blandaðra
bardagalista og ekki síður árangur Gunnars á atvinnumannamótum
og tengsl félagsins við heimsmeistarann írska, Conor McGregor.
Faðir Gunnars, Haraldur Dean, hefur starfað sem fram-
kvæmdastjóri Mjölnis og byggt félagið upp með Gunnari og félögum.
Gunnar sjálfur er stjórnarformaður og á 27 prósenta hlut í félaginu.
Hann býr við Kleifarveg í Laugardalnum.
Vatns-
stígur 22,
efsta hæð.
Róbert
Wessman