Dagblaðið Vísir - DV - 14.09.2018, Blaðsíða 69
FÓLK14. sept 2018 69
„Daði Freyr, nýr ritstjóri Dagblaðsins“
Hvað finnst þér að eigi að kenna í skólum
sem er ekki kennt þar núna? Það er mjög
margt sem mér finnst að ætti að vera kennt
í skólum sem ekki er gert. Ég var að stofna
fyrirtæki og þurfti að læra allt varðandi
virðisaukaskatt, staðgreiðslu, lífeyrissjóði
og þess háttar frá grunni. Hefði alveg verið
til í að fá grunninn af þessu bæði í grunn-
skóla og framhaldsskóla.
Ef þú þyrftir að eyða einni milljón á
klukkutíma, í hvaða verslun færir þú?
Ég færi í Tónastöðina og mundi ekki þurfa
klukkutíma.
Ef þú þyrftir að dansa til að bjarga lífinu,
undir hvaða lagi mundir þú vilja dansa?
The Music með Marcus Marr.
Hvaða bíómynd hefurðu séð oftast?
Annaðhvort School of Rock (besta mynd
allra tíma), Toy Story 2 eða Mulan, ég er ekki
alveg viss.
Borðarðu mat sem er kominn fram yfir
síðasta söludag? Já.
Á hvern öskraðirðu síðast? Tónleikagesti
á Prikinu um daginn. Samt bara til að peppa
liðið.
Hvaða einstakling finnst þér þú þekkja,
þótt þú hafir aldrei hitt hann? Will Ferrel.
Ég hugsa að honum líði eins.
Hvaða viðburð sérðu mest eftir að hafa
misst af? Hróarskeldu 2014, 2015, 2016,
2017 og 2018.
Hvaða tveir hlutir eru hræðilegir hvor í
sínu lagi en frábærir saman? MC Daði og
MC Jökull.
Hvert er þitt stærsta líkamlega afrek í
lífinu? Ég er 208 sentimetrar.
Hvaða kvikmynd þætti þér helst við
hæfi að breyta í söngleik?
Lord of the Rings.
Hvað verður orðið hallærislegt eftir 5
ár? Vonandi ekki ég, en sennilega ég.
Hvaða teiknimyndapersónu mundir þú
vilja eiga sem vin? Andrés önd, hann hefur
nú samt verið vinur minn í mörg ár.
Hvað mundir þú nefna landið okkar ef
við þyrftum að breyta? Daðaland, er það
ekki eitthvað?
Hvað ættu allir að prófa að minnsta
kosti einu sinni í lífinu? Að fara til fram-
andi landa.
Ef þú værir ritstjóri dagblaðs og sama
daginn fyndist Lagarfljótsormurinn,
Frikki Dór ynni Eurovision fyrir Íslands
hönd og Donald Trump yrði myrtur.
Hver væri stærsta fyrirsögnin í blaðinu
þínu daginn eftir? Daði Freyr, nýr ritstjóri
Dagblaðsins.
Ef þú kæmir einn daginn heim úr
vinnunni og þar væri enginn nema Geir
Ólafsson í sturtu, mundir þú hringja í
lögregluna? Já.
Hver er tilgangurinn með þessu jarðlífi?
Hver er ég?
Daði Freyr Pétursson tónlistarmaður heillaði hug og hjörtu Ís-
lendinga þegar hann tók þátt í Söngvakeppni Sjónvarpsins á síðasta ári,
en hann endaði í öðru sæti. Daði Freyr er búsettur í Berlín þar sem hann
vinnur í tónlist sinni, en hann kemur reglulega til Ísland og heldur tónleika.
Þann 7. september hélt hann útgáfutónleika vegna plötunnar Næsta
skref á Prikinu, en platan inniheldur fimm lög. Daði Freyr notaði flugið
milli landa til að svara nokkrum spurningum fyrir lesendur DV.
HIN HLIÐIN
Fótboltamenn gefa treyjur
til styrktar góðum málefnum
S
turlaugur Haraldsson og
Ivan Elí Du Teitsson standa
að vefsíðunni Charity Shirts.
is þar sem fótboltamenn
gefa eigin treyjur til styrktar góðu
málefni. Ein treyja er í boði í einu,
viðkomandi leikmaður velur sér
góðgerðarfélag og rennur allur
ágóði til þess félags.
„Við erum tveir strákar af Sel
tjarnarnesi sem höfum verið að
vinna að skemmtilegum verkefn
um saman. Bæði hafa þessi verk
efni verið fyrir okkur og önnur
fyrir tæki,“ segir Sturlaugur. Þeir
eru báðir 27 ára, Sturlaugur starfar
sem flugþjónn og Ivan sem tölv
unarfræðingur og ólust þeir upp
saman í Gróttu, þar sem þeir spil
uðu fótbolta.
„Okkur fannst þetta skemmti
legt verkefni og þessi leið hefur
ekki verið farin áður, oftast er þetta
fast verð sem fyrirtæki og efnaðir
hafa kannski meiri aðgang að, sem
er gott mál, en okkur fast áhuga
vert að prófa að fara þá leið að all
ir geti tekið þátt,“ segir Sturlaug
ur aðspurður af hverju þessi leið
var farin til að láta gott af sér leiða.
„Við þekkjum einhverja af þessum
leikmönnum, höfum keppt á móti
öðrum og erum með tengingu við
fleiri, einnig hafa atvinnumenn/
konur verið jákvæð þegar við höf
um nálgast þau til að fá treyjur.
Þetta fer þannig fram að við
komandi leikmaður velur sér góð
gerðarfélag og rennur allur ágóði
af hans treyju til þess félags,“
segir Sturlaugur. „Nýr leikur byrj
ar annað hvert mánudagskvöld og
stendur í tvær vikur, og er dregið á
Facebook „live“ klukkan 19 ann
an hvern mánudag. Þeir sem vilja
eignast treyjuna kaupa lottómiða,
einn miði kostar 1.000 kr. og fær
viðkomandi tölvupóst með sínu
lukkunúmeri/um.“
Þessa vikuna og fram á mánu
dag er uppboð á treyju Sifj
ar Atladóttur, landsliðskonu og
leikmanns með sænska liðinu
Kristianstads DFF. Sif var Íslands
meistari með Val árin 2007, 2008
og 2009, hún hefur leikið 76 leiki
með íslenska kvennalandsliðinu
og lék með því á Evrópumeistara
mótinu árin 2009, 2013 og 2017.
Hún hefur þegar leikið 134 leiki
með Kristianstads DFF.
Sif er með áritaða íslenska
landsliðstreyju frá EM 2017 á móti
Frakklandi. Sif valdi að ágóði af
hennar treyju myndi renna til
Krabbameinsfélags Íslands.
Þeir sem þegar hafa gefið treyju
og völdu sér góðargerðarfélag eru
Aron Jóhannsson (Barnaspítali
Hringsins), Rúnar Alex Rúnarsson
(Styrktarfélag krabbameinssjúkra
barna), Kári Árnason (Barnaspít
ali Hringsins), og Andri Rúnar
Bjarnason (Parkinsonsamtökin).
Þegar uppboði Sifjar lýkur á
mánudagskvöld kl. 19, tekur næsta
uppboð við. Landsliðsmaðurinn
Rúrik Gíslason tekur þá við og gef
ur treyju til styrktar góðu málefni.
Fylgjast má með CharityShirts
bæði á heimasíðu og Facebook
síðu þeirra. n
Ragna Gestsdóttir
ragna@dv.is