Dagblaðið Vísir - DV - 01.06.2018, Side 61

Dagblaðið Vísir - DV - 01.06.2018, Side 61
KYNNING Matthías Pétursson húsgagnasmiður er með yfir þrjátíu ára reynslu af smíði og vinnur með Matthíasi, syni sínum, sem er að ljúka námi í húsa- smíði. Þeir feðgar taka að sér flest það sem lýtur að smíði, nýsmíði og lagfær- ingum. Matthías segist lengi vel hafa unnið við sérsmíði á innréttingum: „Undanfarin ár hefur sérsvið mitt hins vegar verið garðar og hellulögn. Ég tek að mér fjölbreytt verkefni eins og sumarhús, einkalóð- ir, lóðir undir nýbyggingar og eins eldra húsnæði. Að auki sé ég um nýja garða og endurgerð eldri garða.“ Sólpallar, skjólveggir og hellulögn „Nú þegar loks er farið að líða að vori eru margir að huga að sólpöllum enda eru þeir ekki bara til þess að njóta sólarinnar heldur nýtast einnig sem frábær fram- lenging á sjálfri stofunni,“ segir Matti. „Nú er líka anna- tími í hellulögn og girðingum. Skjólveggir, bekkir, kofar og geymslur spretta upp eins og gorkúlur í görðum lands- manna þessa dagana,“ bætir hann við og nefnir að fátt sé skemmtilegra en vorverkin. Heitir pottar – framlenging á stofunni „Fjölmargir hafa fengið sér heitan pott í garðinn á undanförnum árum. Það skiptir meginmáli að pallurinn við pottinn sé vel úthugs- aður og huga þarf vel að staðsetningu og umhverfi pottsins. Best er að pallur- inn sé á tveimur hæðum og smíða tröppur á snyrtilegan hátt upp á efri pallinn til þess að auka rýmið umhverfis pottinn. Tröppurnar geta svo einnig nýst fyrir blómapotta og lugtir sem gera umhverf- ið mun hlýlegra við pottinn. Á efri pallinum myndast þá líka rými fyrir borð og stóla. Þegar sólpallar eru ekki stórir eins og í þessu tilfelli er mikið atriði að fella pottinn inn í umhverfið til þess að skapa rými. Rýmið umhverfis pott- inn er til dæmis hægt að nota fyrir glös og diska þegar hann er í notkun.“ Finna einnig fallegar lausnir fyrir landsbyggðina „Við Mattarnir smíðum líka utan um sorptunnur á faglegan hátt og búum til falleg blómabeð til skrauts og ofan á hleðslur. Við notum ýmsar viðartegundir við smíðina eins og til dæmis lerki, eik, furu og jafnvel tekk. Við tökum glaðir við verkum á landsbyggðinni og höfum sinnt verkefnum um land allt, eins og til dæmis á Flúðum, Þingvöllum, Snæfellsnesi og í Skorradal. Við Mattarn- ir smíðum í raun allt sem hugsast getur – innandyra sem utan. Við getum séð um parketlögn, parketslípun, milliveggjasmíði, uppsetn- ingu innréttinga, uppsetningu hurða, þakviðgerðir og fleira,“ segir Matti sem er kominn í verulegt vorskap. Splunkuný grafa eflir enn þjónustuna Matti hefur nú fest kaupa á splunkunýrri, glæsilegri 2,6 tonna Komatsu-gröfu sem er sérhönnuð fyrir smærri verk- efni. „Hún hentar vel í garð- ana, að moka af lóðum og grafa fyrir drenlögnum,“ segir hann og ljóst er að þetta nýja verkfæri eflir enn þjónustuna hjá þeim feðgum. Matti smiður, netfang: mattismidur@mattismidur.is, sími: 893-3300 og 691-0621 www.mattismidur.is. Sólpallar, skjólveggir, hellulögn OG ALLT ANNAÐ FYRIR GARÐINN

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.