Dagblaðið Vísir - DV - 01.06.2018, Síða 70

Dagblaðið Vísir - DV - 01.06.2018, Síða 70
Beint frá býli Helgarblað 1. júní 2018KYNNINGARBLAÐ Í uppsveitum Árnessýslu er Efsti-dalur þar sem rekinn er veitinga-staður, ísbúð, hestaleiga og gisting. Gestir geta fylgst með kúnum og störfum í fjósinu um leið og þeir kaupa ís í ísbúðinni, notið veitinga beint frá býli og keypt afurðir beint af býli. „Foreldrar okkar byrjuðu árið 1994 með hestaleigu og að fara með ferðamenn upp að Brúarfossi eftir Kóngsveginum sem liggur í gegn- um landið okkar. Kóngsvegurinn er fyrsta heimildin um Gullna hringinn en hann var lagður árið 1907 fyr- ir Friðrik Danakonung frá Reykjavík alla leið að Gullfossi og Geysi,“ segir Sölvi Arnarsson, sem tók við rekstrin- um á Efstadal af foreldrunum fyrir ári ásamt systrum sínum, Höllu Rós Arnarsdóttur og Guðrúnu Karitas og Lindu Dögg Snæbjörnsdætrum. „Árið 2002 byrjuðu foreldrar okkar með fjögur herbergi í heimagistingu. Mikið var að gera í því þannig að þau byggðu annað hús með 10 her- bergjum sem hefur verið í rekstri síðan 2005. Það var svo haustið 2012 sem við hófumst handa við að breyta hluta hlöðunnar í ísbúð og veitingastað, ásamt viðbyggingu fyrir ísvinnslu, eldhús, móttöku, bar og starfsmannaaðstöðu. Opnað var í byrjun júní árið 2013. Um þetta leyti var ferðaþjónustan á Íslandi mjög vaxandi, en ekki eru mörg ár síðan nánast enginn var á ferli frá septem- ber fram í maí.“ Hugmyndir foreldranna og rekstur hafa svo sannarlega slegið í gegn hjá ferðamönnum. „Fólki finnst skemmti- legur sjarmi yfir þessu og matartengd ferðaþjónusta er alltaf að verða sterkari,“ segir Sölvi. „Við erum búin að vera nánast fullbókuð síðustu fimm ár í gistingu og margir þeirra fara í reiðtúr, en hestaleigan er opin á sumrin. Þó að okkur finnist við bara úthverfi í Reykjavík finnst mörgum ferða- mönnum vera agalega mikil sveit hjá okkur. Fyrsta árið voru Íslendingar 60–70% viðskiptavina okkar. Margir gesta okkar eru Íslendingar úr sumar- bústöðunum hér allt um kring. Einnig finnst mörgum lítið mál að gera sér ferð úr Reykjavík, enda rétt um klukkustundar akstur.“ Framleiðslan sýnileg á meðan matar er neytt Í ísbúðinni á neðri hæðinni er hægt að fá bæði kúlaðan ís, sem er í takt við ítalska ísinn gelato og ís úr vél. Ísinn er heimatilbúinn og er hægt að fylgjast með framleiðslunni. „Við sækjum mjólkina í fjósið á morgnana og búum til ísinn og gestir geta horft á ferlið í gegnum glugga úr ísbúðinni. Þú horfir bara á beljuna jórtra heyið hinum megin við glugg- ann. Það er mjög gaman þegar fólk spyr hvort þetta sé feik,“ segir Sölvi. Einnig eru gluggar á veitingastaðn- um þar sem hægt er að fylgjast með kúnum. „Við vorum efins í fyrstu, á köflum, en raunin er að þetta eru vinsælustu borðin á staðnum.“ Matseðill breytilegur eftir umhverfi og hráefni Veitingastaðurinn á efri hæðinni býður upp á fjölbreyttan mat. „Mat- seðillinn er á krítartöflu upp á vegg, þar sem hann er lifandi og breytilegur eftir umhverfi og hráefni,“ segir Sölvi. „Við búum til eigin hamborgara úr kjöti sem við vinnum sjálf, nautasteik- ur sem við ræktum sjálf, svo erum við með íslenska lambið, silung sem er veiddur í Laugavatni og Apavatni. Salatið verður ekki ferskara, það kemur úr gróðurhúsunum hér í kring. Síðan erum við með nýjung á mateðl- inum, pítsu sem við köllum „Meetza.“ Botninn er ekki brauðbotn, heldur hakkbotn. Við leikum okkur einnig með skyreftirrétti og osta.“ Einnig er í boði að fara á neðri hæðina í ísbúðina, sækja sér ís og koma með upp á veitingastaðinn. Það verður enginn svikinn af ferð í Efstadal, hvort sem það er til gistingar í eina eða fleiri nætur, eða heimsókn í ísbúðina og veitingastað- inn. Upplifun sem er engri lík. Efstidalur er opinn allt árið, nema hestaleigan aðeins yfir sumartímann. Síminn er 486-1186 og 848-1622. Heimasíðan er í vinnslu: efstidalur.is Facebook-síða: Efstidalur EFSTIDALUR: Einstök upplifun á fjölskyldureknum sveitabæ Systkinin í Efstadal: Sölvi, Guðrún, Linda og Halla.
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.