Dagblaðið Vísir - DV - 01.06.2018, Blaðsíða 73
Beint frá býliHelgarblað 1. júní 2018 KYNNINGARBLAÐ
Bændur í bænum er bænda-markaður á Grensásvegi 10, rekinn af bændunum á Akri í
Laugarási. Markaðurinn býður aðeins
upp á lífrænar og sjálfbærar vörur og
leitar uppi það besta sem í boði er hér
á íslandi, ásamt því að flytja inn frá
fyrirtækjum sem sérhæfa sig í lífrænum
afurðum.
Eitt vinsælasta tilboð markaðarins
eru áskriftarkassar, sem afgreiddir
eru vikulega út um allt land. Með þeim
hafa viðskiptavinir aðgang að úrvals
ferskvöru, sem breytist eftir framboði
og árstíðum. Kassarnir eru afgreiddir í
samstarfi við Olís á höfuðborgarsvæð-
inu og Selfossi, með Flytjanda út á land
eða í versluninni við Grensásveg.
Nýlega hófu Bændur í bænum sam-
starf við íþróttafélag til að auka fram-
boð þeirra í fjáröflun sinni. Hugmyndin
var að geta boðið upp á hollan kost til
þeirra sem vildu styrkja félagið. Býður
nú félagið upp á blandaðan ávaxta- og
grænmetiskassa og hafa viðtökurnar
verið framúrskarandi. Keyrt er heim að
dyrum.
Hægt er að fá kassana í mismunandi
stærðum og breytast þeir vikulega.
Besta leiðin til að kynna sér úrvalið
er að koma í verslunina að Grensásvegi
10 en hún er opin virka daga frá kl. 11.00
til 18.15. Eða skoða netverslunina á
slóðinni:
baenduribaenum.is
LÍFRÆNN GRÆNMETIS- OG ÁVAXTAKASSI:
Frábær kostur fyrir einstak-
linga, fyrirtæki og fjáröflun
Blandaður
ávaxta- og
grænmetiskassi
– miðlungsstærð
– 4.490 kr.
Blandaður ávaxta- og grænmetiskassi –
miðlungsstærð – 4.490 kr.
LINDARBREKKUBÚIÐ SELUR ALIKÁLFAKJÖT BEINT FRÁ BÝLI:
„Maður þarf að skapa sjálfur
sín eigin tækifæri“
Fyrir fjórum árum höfðu hjónin Guðbjörg Guðlaugsdóttir og Hilm-ar Þór Sunnuson hug á að kaupa
sumarbústað í Borgarfirði til að eiga
afdrep í sveitasælu. Hugmyndin vatt
hins vegar upp á sig og þau keyptu jörð
á sunnanverðu Snæfellsnesi sem verið
hafði í eyði í 30 ár. Á Lindarbrekkubúinu
reka þau nú blandað bú og selja allar
sínar afurðir beint frá býli.
„Við erum aðallega í kálfakjötsfram-
leiðslu, kaupum ca. vikugamla kálfa
sem við ölum í 9–12 mánuði og seljum
síðan kjötið beint frá býli,“ segir Guð-
björg. „Við erum einnig með kindur,
landnámshænur og höfum prófað að
hafa grísi á sumrin.“
Bæði þekkja þau ágætlega til þess
að búa í sveit, Hilmar er alinn upp í
sveit og Guðbjörg hafði verið í sveit
sem barn. Guðbjörg vann við bókhald
í Reykjavík og Hilmar sem vélvirki á
Grundartanga þegar fjölskyldan ákvað
að flytja og því hefur starfsvettvangur-
inn breyst talsvert þó reynslan nýtist
líka vel í sveitinni. Þar eru dagarnir oft
langir, nóg að gera á bænum og fjöl-
margar hugmyndir sem hugur stendur
til að koma í framkvæmd.
Hjónin fluttu með þrjú af fjórum
börnum sínum í sveitina, elsta var kom-
ið í framhaldsskóla og býr hjá afa og
ömmu í Reykjavík. „Börnin fóru úr 500
barna skóla í 18 barna skóla. Við erum
kát og glöð með breytinguna, þetta er
ævintýri og lífsfylling.
Og okkur hefur verið
vel tekið alls stað-
ar, bæði okkur
og afurðunum
okkar.
Við byrj-
uðum hér
upp á nýtt
og erum að
byggja upp
og breyta. Við
erum bara að
þróast í róleg-
heitunum og finna
út hvar við viljum
vera, stækka og hvar
aðaláherslurnar eigi að vera,“ segir
Guðbjörg. „Hugmyndirnar eru fleiri en
tíminn til að framkvæma þær, það er
svo margt spennandi hægt að gera.“
Kálfakjötið hreint kjöt og keyrt heim
beint frá býli
„Okkar kjöt er af 9–12 mánaða kálf-
um, það er farið að taka á sig lit, en er
ljósara og fíngerðara en nautakjöt, það
er meyrt og mjúkt og hefur fengið að
hanga vel,“ segir Guðbjörg. „Það er al-
veg hreint. Það eru engin lyf, vatn eða
önnur íblöndunarefni. Það er bragð-
gott, auðmeltanlegt og létt í maga.
Allar afurðir okkar eru seldar beint
frá býli. Kostir þess eru rekjanleiki,
milliliðalaus viðskipti, persónuleg
tengsl neytenda og framleiðanda,
áhersla á góða umhirðu og
aðbúnað dýra á bænum,
kjötið er unnið af kjöt-
iðnaðarmönnum með
mikla reynslu, sveigj-
anleiki er í viðskiptum
þar sem tillit er tekið
til þarfa kaupandans,
100% hreint kjöt og
heimsending. Við reyn-
um að afgreiða allar
okkar pantanir eins fljótt
og auðið er, keyrum heim
á höfuðborgarsvæðinu og á
Vesturlandi eða sendum með
landflutningum út á land oftast
innan viku frá pöntun, mesta
salan er á sumrin og þá
er líka auðveldast að
keyra út. Sveita-
lífið er fjölbreytt,
endalaust púl,
hörkuvinna, og
ofboðslega
skemmtilegt.“
Hjónin eru
með fleiri
hugmyndir í
vinnslu. „Við
erum komin með
framleiðsluleyfi fyrir
sultum, marmelaði,
pestó og fleira og höfum
verið að prófa okkur áfram í
brjóstsykurgerð. Síðan hef ég líka verið
að vinna með handlitað band sem er
ótrúlega skemmtileg viðbót.
Við erum nokkrar konur í sveitinni
sem stöndum að Búsæld, sem er eins
konar „farmers market“, sem rek-
in er í félagsheimilinu á Breiðabliki á
sunnanverðu Snæfellsnesi í samstarfi
við upplýsingamiðstöð fyrir ferða-
menn sem er opin alla daga. Í
Búsæld er bæði hægt að
fá handverk og matvæli
úr héraði og þar er
hægt að kaupa allar
okkar vörur – sem
og á heimasíð-
unni okkar, www.
lindarbrekka.is.
Finna má allar
upplýsingar um
Lindarbrekkubúið
og vörur þess á
heimasíðunni lindar-
brekka.is og Facebook:
Lindarbrekkubúið.