Dagblaðið Vísir - DV - 01.06.2018, Blaðsíða 18
18 fólk - viðtal 1. júní 2018
„Ég vissi að ég gæti
ekki mikið lengur
haldið þessu áfram, svo
ég sagði upp vinnunni og
stofnaði App Dynamic.
P
ratik Kumar er eigandi og
stofnandi App Dynamic.
Fyrirtækis sem nýtur mik-
illar velgengni en fáir hafa
eflaust heyrt af. Hins vegar hafa
margir heyrt um fyrirtækin sem
hann starfar með en þau eru meðal
þeirra stærstu í heiminum, eins og
Philips, Microsoft, Intel, Harman
Kardon og Samsung, svo fáein
séu nefnd. Ég hitti Pratik í höfuð-
stöðvum fyrirtækisins á nítjándu
hæð turnsins í Kópavogi og ræddi
við hann um hvernig honum hefði
tekist að koma fyrir tæki sínu á lista
Financial Times yfir þau fyrirtæki
í Evrópu sem hafa náð mestum
tekjuvexti á árunum frá 2013 til
2016. Tekjur fyrir tækisins jukust
um 255% á þessu tímabili og er
App Dynamic eina íslenska fyrir-
tækið á listanum.
Fékk risa snertiskjá að
gjöf frá Microsoft
Ég kem inn á hornskrifstofu hans
sem hefur hefur útsýni nánast yfir
allt höfuðborgarsvæðið, en út-
sýnið var ekki það fyrsta sem ég
tók eftir, heldur þessi risaskjár
sem nánast tók allt plássið á ein-
um veggi þar. „Já, þetta var gjöf frá
Microsoft,“ segir hann og bendir
á 84 tommu snertiskjá. „Við vinn-
um náið með Microsoft svo þeir
ákváðu að gefa mér þetta tæki út
af samstarfi okkar.“ Augu mín voru
ansi lengi límd við þennan risaskjá
og fór ég að sjá fyrir mér alla þá
möguleika sem hann gat boðið
upp á. Augun mín hins vegar
beindust síðar að öðru á skrifstof-
unni, það var vinnutölva Pratiks.
„Þetta er líklega hraðvirkasta tölv-
an á Íslandi í dag,“ segir Pratik og
fer svo yfir nákvæmlega hvað er í
henni. Eftir þessa sýningarkennslu
settumst við niður í leðursófann
á skrifstofunni og byrjaði ég að
spyrja hann um barnæsku hans í
Indlandi.
Pratik fæddist og ólst upp í
Nýju-Delí í Indlandi þar sem fjöl-
skylda hans átti verksmiðju sem
framleiddi hina ýmsu parta fyrir
vélar. Þau áttu einnig nokkur
smærri fyrirtæki ásamt því að reka
sjálf skóla. Heimili hans var rétt í
útjaðri borgarinnar og var verk-
smiðjan rétt við heimili hans. Fjöl-
skylda hans var vel stæð á ind-
verskan mælikvarða og störfuðu
meðal annars sex manns á heim-
ilinu við að þjóna fjölskyldunni
á hverjum degi. „Ég ræði ekki við
marga Íslendinga sem hafa upp-
lifað sömu barnæsku og ég, það
er að segja að hafa haft þjóna sem
sinntu mér nánast allan sólar-
hringinn,“ segir Pratik og hlær.
Íslenska fyrirtækið
sem malar gull
en enginn veit af
n Framleiðir vöru sem gæti umbylt tækniheiminum
n Á Íslandi er friður til að skapa