Dagblaðið Vísir - DV - 01.06.2018, Blaðsíða 74
Beint frá býli Helgarblað 1. júní 2018KYNNINGARBLAÐ
Tungusilungur er með minnstu fiskeldisfyrirtækjum lands-ins og um leið merkilegt
fjölskyldufyrirtæki sem framleiðir
hágæða sælkeravörur á borð við
birkireyktan regnbogasilung, reykta
og grafna bleikju, ferska bleikju,
ferskan silung og fleira lostæti. Stór
hluti ferskvörunnar fer í útflutning
og á Fiskmarkaðinn en aðrar afurðir
Tungusilungs fást í verslunum Sam-
kaupa, Mosfellsbakaríi, Fjarðarkaup-
um, Melabúðinni og í Kolaportinu.
„Faðir minn, Magnús Guðmunds-
son, stofnaði Tungusilung árið 2002
og síðan hefur fyrirtækið stækkað
hægt og rólega,“ segir Freyja Magn-
úsdóttir, en í þessu fjölskyldufyrir-
tæki er nú fjórði ættliðurinn kominn
til starfa. „Við systurnar fimm kom-
um snemma inn í reksturinn, síðan
bættust synir mínir í hópinn og núna
eru barnabarnabörn pabba farin að
starfa hér í skólafríum á sumrin.“
Starfsemin skiptist í fiskeldi á
landi við strendur Tálknafjarðar og
fiskvinnslu í þorpinu. Þrír afkomend-
ur Magnúsar starfa við vinnsluna og
til viðbótar eru tveir sem vinna við
fiskeldið. Í heildina eru níu starfs-
menn í fyrirtækinu sem allir tengjast
fjölskyldunni að einhverju leyti.
Afurðirnar frá Tungusilungi eru
margrómaðar kræsingar og til
viðbótar við það sem upp var talið
eru þau með á boðstólum svokallað
regnbogapaté, þ.e. paté úr reyktum
regnbogasilungi. Freyja segist telja
að ekki séu aðrir aðilar með samb-
ærilega vöru á markaði.
Tungusilungur er til húsa við
Strandgötu 39 á Tálknafirði og
hægt er að kaupa vörurnar á
staðnum eða panta. Fyrirspurnir
má senda í gegnum Face-
book-síðu Tungusilungs
eða með tölvupósti
á tungusilungur@
simnet.is. Einnig er
hægt að hringja í
síma 456-2664
og 863-0977.
Skemmtileg-
ast er þó að
gera sér ferð
um hér-
aðið, kaupa
á staðnum,
spjalla við
starfsfólk-
ið og skoða
starfsemina í
leiðinni.
TUNGUSILUNGUR ER FJÖLSKYLDUFYRIRTÆKI:
Regnbogapaté og
fleira lostæti
Sveitabærinn Bjarteyjarsandur í Hvalfirði hefur verið í eigu sömu ættar frá árinu 1887, þar hefur í
25 ár verið rekin gestamóttaka og í dag,
föstudaginn 1. júní, verður opnað þar
sveitakaffihús sem leggur áherslu á eigin
framleiðslu, bæði kökur og létta rétti.
„Við höfum tekið á móti alls kyns
hópum í mörg ár; skólahópum, erlend-
um ferðamönnum, íslenskum starfs-
mannahópum og öðrum hópum sem
eiga leið um Hvalfjörð,“ segir Arnheiður
Hjörleifsdóttir. „Síðasta sumar fundum
við fyrir mikilli þörf á áningarstað fyrir
ferðamenn sem ferðast á eigin vegum,
stað þar sem hægt væri að gera stutt
stopp, fá sér léttar veitingar, hvíla sig,
komast á snyrtingu og hitta heimafólk.
Við ákváðum því að nota veturinn til að
vinna í því að opna kaffihús hér í gömlu
fjóshlöðunni.“
Flatkökutapas, kræklingaveisla og
heimabakað góðgæti í boði á nýju
kaffihúsi
„Matseðilinn höfum við þróað í samstarfi
við reynda matreiðslumenn og áherslan
verður á heimafengið hráefni og heima-
gerðan mat. Boðið verður upp á súpu
dagsins, krækling úr Hvalfirði, samlokur
og fleira. Við verðum svo með þjóðlega
smárétti, en móðir mín, Sigríður Inga,
gerir heimsins bestu flatkökur og við
berum þær fram með bæði þjóðlegu og
nýstárlegu áleggi eins og heimareyktu
kjöti, grafinni lambalund, reyktum og
gröfnum silungi og heimagerðu hummus
svo fátt eitt sé nefnt. “
Kaffihúsið verður opið alla daga
í sumar milli kl. 11–17. Tekið er á móti
hópum utan þess tíma. „Vinsælustu
hóparéttirnir eru grillhlaðborð beint frá
býli og óvissumatseðill kokksins sem
samanstendur af sjö spennandi réttum
úr eldhúsi húsfreyjunnar.“
Fegurð Hvalfjarðar og nálægð hans
við Reykjavík býður upp á óendanlega
marga möguleika sem útivistar- og
fjölskylduparadís. Það eru fjölbreyttar
gönguleiðir og afþreying fyrir fjölskyldur
og einstaklinga. „Við sérhæfum okkur í
sögu og náttúru Hvalfjarðar og sjáum
um að skipuleggja ferðir og sjá um leið-
sögn fyrir hópa, allt upp í 200 manns.“
Það er fjölbreyttur hópur gesta sem
kemur að Bjarteyjarsandi til að njóta
náttúru, menningar og sveitaloftsins. „Í
gegnum tíðina höfum við sérhæft okkur
í að aðstoða hópa sem vilja gera sér
glaðan dag á þessu svæði. Það er orðið
vinsælt að keyra um fjörðinn á fallegum
degi, enda landslagið fjölbreytt og feg-
urðin einstök,“ segir Arnheiður og býður
alla velkomna á Bjarteyjarsand, bæði til
að njóta náttúrunnar og heimsækja nýja
kaffihúsið.
Allar nánari upplýsingar um Bjart-
eyjarsand, gönguleiðir um Hvalfjörð og
leiðsögn má fá í símum 433-8831 og
891-6626 og með því að senda póst á
netfangið: arnheidur@bjarteyjarsandur.
is.
Heimasíða: bjarteyjarsandur.is
Facebooksíða: bjarteyjarsandur
BJARTEYJARSANDUR:
Sveitarómantík og fegurð
Hvalfjarðar