Dagblaðið Vísir - DV - 11.01.2019, Blaðsíða 9

Dagblaðið Vísir - DV - 11.01.2019, Blaðsíða 9
FÓKUS - VIÐTAL 911. janúar 2018 urðu. Hún hafi því næst flúið fram á gang og niður í móttöku hótelsins í leit að hjálp. Þar var enginn. „Ég stóð þarna grátandi og öskrandi og fann engan til að hjálpa mér. Ég sá síðan einhverja ræstingakonu og reyndi að tala við hana, reyndi að fá númer hjá lög­ reglunni, en hún vildi ekkert gera.“ Eydís segist hafa farið aftur upp á herbergi þar sem starfsmaður­ inn og íslenski strákurinn voru. Starfsmaðurinn var þá í símanum og reyndist vera að tala við hót­ elstjórann. „Ég reif þá af honum símann og öskraði á hótelstjórann hvað hafði gerst. Hans viðbrögð voru: „I’ll talk to you tomorrow.“ Síðan skellti hann á.“ Eydís minnist þess að hafa á þessum tímapunkti misst stjórn á sér, hrækt og sparkað í starfs­ manninn og kallað hann öllum ill­ um nöfnum og hrakið hann út úr herberginu. Hún hrundi niður á gólfið niðurbrotin og fékk svo að­ stoð við að taka föggur sínar inn á herbergi íslensku strákanna, þar sem hún dvaldi andvaka fram á morgun. Yfirheyrð eins og glæpamaður Um átta leytið um morguninn hringdi síminn á hótelherberginu og var Eydísi tilkynnt að lögreglan biði eftir henni niðri í andyri. Hún gerði ráð fyrir að þarna væru lag­ anna verðir mættir til að handtaka árásarmann hennar. Sú varð ekki raunin. „Ég mætti þeim þarna og var síðan yfirheyrð á lögreglustöðinni. Þeir virtust góðlegir þarna fyrst, þegar þeir voru að spyrja hvað hefði gerst. En síðan fóru þeir allt í einu að spyrja út í skemmd­ irnar inni á hótelherberginu og hvernig það hefði gerst. Á meðan stóð starfsmaðurinn, nauðgarinn, frammi ásamt hótelstjóranum og fleiri löggum og heyrði í þeim öll­ um vera að hlæja saman. Ég þurfti að fara með þeim niður á lögreglu­ stöð í kjölfarið. Ég fylgdi þeim út í bíl og þeir læstu dyrunum.“ Eydís segir að á leiðinni niður á lögreglustöð hafi hún sífellt fengið sterkari tilfinningu fyrir því að eitt­ hvað undarlegt væri á seyði. Þegar á lögreglustöðina var komið var hótelstjórinn einnig mættur. Fyrir einskæra heppni hafði Eydís kom­ ist í kynni við starfsmann forsætis­ ráðuneytisins nokkrum vikum áður. Hún var ennþá með farsíma sinn á sér og tókst því að hringja í manninn sem hafði í kjölfarið samband við starfsmann íslenska sendiráðsins. Eydís var færð inn í herbergi þar sem hún sat ásamt þremur lögreglumönnum sem handléku byssur og töluðu saman á tyrk­ nesku. Hún segir ekkert hafa verið skrifað niður og henni hafi aldrei verið tilkynnt að hún ætti rétt á lögmanni. Henni hafi verið útveg­ aður túlkur sem hún hafi síður en svo getað treyst. „Ég vissi ekkert hvað fór þeim á milli og hlustaði á hann tala við löggurnar og hlæja með þeim. Ég spurði þá af hverju þeir væru ekki að skrifa neitt niður og af hverju ég væri alltaf að fá sömu spurn­ ingarnar. Þeir horfðu bara á mig og sögðu ekkert og sneru sér svo að hver öðrum og töluðu saman. Eydís stóð engu að síður fast á sínu. „Ég reyndi að heimta lög­ mann. Ég spurði þá aftur og aft­ ur að þessu og einum tímapunkti stóð ég hreinlega upp og spurði af hverju í ósköpunum þeir væru ekki að skrifa neitt niður.“ Eftir á að hyggja finnst henni ótrúlegt að hún hafi lagt í að setja fram þessar kröfur við tyrknesku lögregluna. „Enda var það al­ veg augljóst að ég fór rosalega í taugarnar á þeim. Á einum stað kúguðu þeir mig. Sögðu mér að ef ég myndi kæra, þá myndu þeir kæra mig á móti. Ef ég myndi aftur á móti sleppa því að kæra, þá myndu þeir færa mig á fimm stjörnu lúxushótel.“ Eydís segir nær heilan dag hafa liðið áður en því var komið í kring að hún gengist undir læknis­ skoðun á sjúkrahúsi. Spítalaheim­ sóknin reyndist henni afar erfið og segir hún meðferðina þar hafa í raun verið annað áfall. „Ég upplifði þetta eins og færi­ bandavinnu. Þarna var fjöldi fólks og svo allt í einu var mér sagt að fara úr fötunum. Ég bað um að fá kvenkyns lækni en það var ekki hægt. Ég áttaði mig ekki á því fyrr en löngu seinna hversu mikið niðurbrot þessi spítalaferð var.“ Þriggja tíma bílferð í kolniðamyrkri Eftir læknisskoðunina var farið aft­ ur með Eydísi á lögreglustöðina. Við tók marga klukkustunda bið. „Ég fékk ekkert að borða og beið bara og beið. Ég var ekki búin að sofa í tvo sólarhringa.“ Hún segir viðhorf lögreglu­ mannanna á þessum tímapunkti hafa verið heiftarlegt og hún hafi verið sökuð um lygar. Hún hafi því næst fengið á sig kæru fyrir skemmdarverk og neydd til að skrifa undir yfirlýsingu. Því næst tók við myndataka og fingraför hennar voru tekin áður en henni var komið fyrir í lögreglubifreið. Við tók rúmlega þriggja klukku­ stunda ökuferð í kolniðamyrki þar sem bílstjórinn ók á ofsahraða. Eydís upplifði sig ósýnilega. „Ég spurði og spurði hvað væri að gerast og hvert ég væri að fara en það svaraði enginn. Mér var bara hent inn í lögreglubílinn og svo keyrðu þeir af stað, rosalega hratt. Ég hélt í alvörunni að ég væri að fara að deyja, ég vissi ekkert hvert væri verið að fara með mig. Beltið mín megin var bilað en bílstjór­ inn bannaði mér að sitja fyrir aftan hann þegar ég ætlaði að færa mig.“ Tæpum þremur klukkustund­ um síðar renndi bifreiðin upp að fangelsi í Antalya. „Það tóku á móti mér konur með löggukylfur, enginn talaði ensku og enginn skildi mig. Ég vissi ekkert hvort ég yrði örugg þarna inni. Síðan var allt dótið mitt tekið af mér.“ Eydís endaði að lokum inni í troðfullu herbergi þar sem konur láu sofandi í kojum. Nokkrir dagar liðu þar til hún fékk loks heimsókn frá íslenska konsúlnum í Dan­ mörku. Hinir fangarnir reyndust vera skrautlegir í meira lagi. Ein konan, írönsk að uppruna, var síhlæjandi, með hárið allt út í loftið og grá­ lúsug. Önnur var stöðugt að berja sjálfa sig í hausinn. Fæstar kon­ urnar töluðu ensku og þurfti Eydís því að eiga samskipti við þær með handabendingum. Eydís fékk viðurnefnið „Is­ landia“ í fangelsinu. Hún reyndist vera eina vestræna konan. Það var óneitanlega skondin upplifun: „Ég var einhver vestræn gyðja í þeirra augum. Einu sinni vaknaði ég við það að ein konan stóð yfir mér og starði á mig. Þær vildu allar fá að vera vinkonur mínar og vera í sambandi við mig seinna og koma og hitta mig í Evrópu.“ Bágbornar aðstæður Eydís átti eftir að komast að því að margar kvennanna sátu inni fyrir litlar eða engar sakir. Margar þeirra voru að flýja lífshættulegar aðstæður. Aðstæðurnar í fangels­ inu voru ekki upp á marga fiska. Hún segist nær ekkert hafa borðað í þá tæpu viku sem hún dvaldi í fangelsinu. „Það var boð­ ið upp á einhvers konar mauk sem ég gat engan veginn komið nið­ ur. Ég reyndi að borða hart brauð en annars drakk ég bara vatn. Ég var auðvitað lystarlaus og gat ekki komið neinu niður. Íslenski kon­ súllinn gaf mér Snickers þegar hann kom og vitaskuld hámaði ég það í mig!“ Eydís segir nokkra daga hafa liðið áður en hún var vakin upp um miðja nótt og keyrð til Alanya þar sem hún var færð fyrir dóm­ ar næsta dag. Á leiðinni til Alanya hafi hún hitt fyrsta lögreglumann­ inn sem sýndi henni einhverja hlýju. „Hann stoppaði bílinn, gaf mér kaffi og var vinalegur. Hann var einn af þeim fáu sem kom fram við mig eins og manneskju.“ Fyrir tilstilli kunningja Eydísar hjá forsætisráðuneytinu gekk málsmeðferð hennar hraðar fyrir sig en annars hefði verið. Niðurstaða þarlendra yfirvalda var að vísa Eydísi á brott úr landi. Nokkrum dögum síðar var hún því sótt í fangelsið um miðja nótt og keyrð upp á spítala í skoðun. Næsta dag var hún flutt í lögreglu­ fylgd upp á flugvöll. Hún var með­ höndluð sem glæpamaður; lokuð inni í herbergi á flugvellinum áður en henni var fylgt vegabréfslausri út í flugvél. Eftir að hafa verið dögum saman í svelti notaði Eydís tæki­ færið í flugvélinni og pantaði allt það sem hugurinn girntist af matseðlinum. Í Leifsstöð beið íslenska lögreglan henn­ ar. „Utan ríkisráðuneytið er bund­ ið þagnarskyldu og þess vegna vissi lögreglan ekki af hverju það væri verið að flytja mig heim. Þeir héldu að ég væri glæpamaður.“ Móðir Eydísar og systir tóku á móti henni á flugvellinum og það­ an fór Eydís beint í læknisrann­ sókn á spítala. Gallað kerfi Hún segir enga eftirmála hafa verið af þessum atburðum. Nauðg arinn gengur enn laus. Í nokkur ár lokaði Eydís á þennan atburð og sagði einungis nánustu aðstandendum frá því sem kom fyrir hana í Tyrklandi. Það vildi svo heppilega til að hún hafði leitað til sálfræðings áður en hún fór til Tyrklands. Með hans hjálp tókst hún á við áfallið, með­ al annars með því að skrifa nið­ ur það sem hafði gerst og vinna þannig úr reynslunni. Hjá sál­ fræðingum gekkst Eydís einnig undir EMDR sálfræðimeðferð (e. Eye Movement Desensitization and Reprocessing) sem þar sem flakkað er á milli hægra og vinstra heilahvels eða þess vitsmunalega og tilfinningalega. Hún bendir á að brotaþolar kynferðisofbeldis séu oftar en ekki upp á sjálfa sig komnir þegar kemur að því að leita sér hjálpar og finna hvaða úrræði eru í boði. Það var til að mynda sálfræðingi hennar að þakka að hún komst að því að hægt væri að fá áfalla­ aðstoð greidda í gegnum heimilis­ tryggingu. „Hér heima er kerfið gallað á annan hátt. Þolendur þurfa oft að bíða mánuðum, jafnvel árum saman, eftir því að mál þeirra rati fyrir dóm og eru í andlegu fangelsi á meðan. Það er ekki hægt að bera saman ólík kerfi en þó er hægt að hafa hátt um ofbeldið sem á sér stað í kerfinu hér heima og benda á hvað hægt sé að gera betur.“ Þjáningunni breytt í list Eydís hefur unnið í kvikmynda­ gerð í gegnum tíðina. Upp úr dag­ bókarskrifum hennar vaknaði hjá henni sú hugmynd að gera stutt­ mynd byggða á reynslu hennar í Tyrklandi. Breyta þjáningunni í list. Nú hefur stuttmyndin Islandia litið dagsins ljós, þar sem leikkon­ an Þóra Karítas Árnadóttir fer með aðalhlutverkið. Tökur á myndinni fóru fram í gömlu fangelsi í Segovia, fjallabæ norður af Madrid á Spáni. Ekki kom til greina að taka myndina upp í Tyrklandi þar sem Eydísi hefur verið meinað að stíga fæti inn í landið. Fram­ leiðsla myndarinnar var stór í sniðum, hópurinn á bak við telur um fimmtíu til sextíu manns frá Ís­ landi, Spáni, Kanada og Tyrklandi. „Lengst af þá sleppti ég því að segja að sagan væri byggð á minni reynslu, og meira að segja fólk í tökuliðinu vissi það ekki. Núna í dag er ég opin með að þetta sé byggt á mér. Það er ekkert leyndar­ mál lengur.“ Þessa dagana stendur yfir styrktarsöfnun á síðu Karolina Fund sem miðar að því að koma Islandia í dreifingu á kvikmynda­ hátíðir víða um heim en myndin hefur þegar verið sýnd á kvik­ myndahátíðinni í Austin við frá­ bærar undirtektir. „Eins og staðan er núna hjá okk­ ur fór allt okkar fjármagn í fram­ leiðsluna og þess vegna ákváðum við að fara þessa leið, þar sem það var tímabært að dreifa sögunni al­ mennilega og af fullum krafti. Það er mikill plús fyrir mig, eða ég er að átta mig akkúrat á þessu augna­ bliki á að það er mikilvægt fyrir mig að ræða söguna opinberlega. Því segir sig sjálft að það er engu líkt að geyma sögu eins og þessa inni í sér. Kostnaðurinn hefur vax­ ið mikið og það kostar sitt að fara með mynd á hátíðir erlendis. Ef við náum takmarkinu í söfnuninni þá myndi það flýta mjög mikið fyrir,“ segir Eydís. Með söfnuninni vilja Eydís og aðrir aðstandendur myndarinnar einnig styðja við Elfusjóð en hluti af söfnuninni mun fara í sjóðinn, sem aðstoðar konur að leita réttar síns í ofbeldismálum hér á Íslandi. Líkt og Eydís bendir á þá er Is­ landia alþjóðleg saga. „Það sem ég lenti í, það kemst ekki nálægt þeim hryllingi sem konur eru að lenda í úti allan heim. Þetta málefni er ekki bundið neinum landamærum, það er ekki tengt einhverjum einum heims­ hluta eða trúarbrögðum. Ofbeldi gagnvart konum er glæpsamlegt og það snertir okkur öll.“ n Sundaborg 3 104 Reykjavík 777 2700 xprent@xprent.is SKILTAGERÐ Ljósakassar Ljósaskil 3D stafir Hönnun Ráðgjöf Uppsetning „Ég hélt í alvörunni að ég væri að fara að deyja Fangelsuð þegar hún leitaði réttar síns
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.