Dagblaðið Vísir - DV - 11.01.2019, Blaðsíða 14

Dagblaðið Vísir - DV - 11.01.2019, Blaðsíða 14
14 11. janúar 2018FRÉTTIR Ráin er alhliða veitingahús í hjarta Reykjanesbæjar MATSÖLUSTAÐUR SKEMMTISTAÐUR RÁÐSTEFNUR ÁRSHÁTÍÐIR VEISLUR Leikarabörnin í Ófærð 2 Ö nnur þáttaröð Ófærðar hefur haldið Íslendingum í heljargreipum undan- farin sunnudagskvöld. Eins og áður sýnist sitt hverjum um gæði þáttanna, sérstaklega handritsgerð og hljóðvinnslu, en allir eru greinilega að horfa. Á ritstjórn DV er helst kvartað yfir því að þættirnir séu ekki settir allir í einu á netið svo hægt sé að hám- horfa. Margir af þekktustu leikurum þjóðar- innar, eins og Ólafur Darri Ólafsson, Ingvar E. Sigurðsson, Jóhanna Vigdís Arnardóttir og Ilmur Kristjánsdóttir, láta ljós sitt skína í þáttunum. Þá vekur athygli að fjölmörg „leik- arabörn“ eru í burðarhlutverkum þáttaraðar- innar og ekki síst ættbogi leikstjórans sjálfs, Baltasars Kormáks. Þrjú barna hans fara með stór hlutverk í þáttunum. Stormur Jón Kormákur Baltasars- son fer með hlutverk Arons Finnssonar og gerir það vel eins og hann á kyn til. Stormur Jón er aðeins 16 ára gamall en hann er sonur Baltasars Kormáks og Lilju Pálmadóttur. Hann er ekki alveg ókunnugur linsunni en Stormur Jón hefur tekið að sér smærri hlutverk í öðrum verkum föður síns, stórmyndinni Everest og Reykjavík-Rotterdam. Baltasar Breki Samper fer með hlutverk Hjartar Stefánssonar öðru sinni. Persóna Hjartar gegndi veigamiklu hlutverki í fyrstu seríunni en er, að minnsta kosti enn sem komið er, í bak- grunni í þeirri nýjustu. Baltasar Breki er sonur Baltasars Kormáks og Ástrósar Gunnarsdóttur. Hann útskrifaðist sem leikari úr Lista- háskóla Íslands árið 2015 og hefur síðan verið fastráðinn leikari hjá Þjóðleikhúsinu. Sóllilja Baltasarsdóttir fer með hlutverk Karólínu í Ófærð 2. Hlutverkið er ekki veigamikið en Karólína er björgunarsveitar- kona sem sem tekur þátt í leit að grunuðum einstaklingi. Sóllilja, sem heitir fullu nafni Ingibjörg Sóllilja, er dóttir Baltasars og Dísu Anderiman. Hún hefur ekki látið mikið fyrir sér fara fyrir framan myndavélina hingað til en listræn er hún því hún hefur meðal annars getið sér gott orð sem ljósmyndari. Sigurbjartur Sturla Atlason fer með hlutverk fúlmennisins Skúla Ketilssonar. Sigur bjartur er sonur Atla Rafns Sigurðsson- ar leikara. Sigurbjartur útskrifaðist sem leikari frá LHÍ fyrir tæpu ári og lék meðal annars veigamikið hlutverk í stórmyndinni Lof mér að falla eftir Baldvin Z. Hann hefur þó ekki síður getið sér gott orð sem tónlistarmaður undir listamannsnafn- inu Sturla Atlas. Arnmundur Ernst Backman Björnsson fer með hlutverk Stefáns. Arnmundur átti aldrei séns á öðru en að verða leikari en hann er sonur leikaranna Björns Inga Hilmarssonar og Eddu Heiðrúnar Backman heitinnar. Þess má geta að faðir hans, Björn Ingi, fer með hlutverk bóndans Sturlu í þáttunum. Arnmundur útskrifaðist sem leikari frá LHÍ árið 2013 og hefur síðan tekið að sér fjölbreytt verkefni á sviði og hvíta tjaldinu. Það er kannski full langt seilst að flokka Sólveigu Arnarsdóttur, hina reyndu leikkonu, sem leikarabarn en hún er það nú samt! Sólveig, sem fer með hlutverk iðnaðarráð- herrans Höllu, er dóttir stórleikarans Arnars Jónssonar og leikarans og ekki síður leikstjórans Þórhildar Þorleifs- dóttur. Það myndi æra óstöðugan að reyna að telja upp öll þau verk sem Sólveig hefur komið að á sínum ferli. Björn Þorfinnsson bjornth@dv.is
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.