Dagblaðið Vísir - DV - 11.01.2019, Blaðsíða 16

Dagblaðið Vísir - DV - 11.01.2019, Blaðsíða 16
16 11. janúar 2018FRÉTTIR - ERLENT Þ ungarokksheimurinn fékk annað áfall í desember þegar Pat O’Brien, gítar- leikari dauðarokkssveitar- innar Cannibal Corpse, var hand- tekinn. Hann braust inn og réðst á lögreglumann með hnífi. Á með- an brann heimili hans þar sem fundust tugir skotvopna af ýmsu tagi og þrjár mennskar hauskúpur. Aðeins eru nokkrir mánuðir síð- an gítarleikari þungarokkssveit- arinnar Manowar var handtekinn fyrir vörslu barnakláms. Cannibal Corpse er Íslendingum að góðu kunn, enda heimsótti hljómsveitin landið árið 2007 og hélt tvenna vel heppnaða tónleika á Nasa. Árás á lögreglumann og eldsvoði Þann 10. desember síðastliðinn, fjórum dögum eftir síðustu tón- leika á túr Cannibal Corpse, var O’Brien handtekinn í heimaborg sinni Tampa í Flórída-fylki. Hafði hann brotist inn í íbúðarhús- næði nálægt Northdale-golfvell- inum og ráðist á lögreglumann sem kom á vettvang innbrotsins. Ekki hefur verið gefið upp hverjir búa í húsnæðinu en O’Brien kom inn í íbúðina óboðinn um klukk- an 19. Þegar kona sem býr í íbúð- inni skipaði honum að fara út hrinti hann henni í gólfið. Eftir að búið var að hringja í lögregluna fór O’Brien út í bakgarðinn og faldi sig þar. Lögreglumenn mættu á stað- inn og skipuðu O’Brien að koma úr felum. Þá stökk hann á lög- regluþjón með hníf á lofti en lög- regluþjónninn skaut hann með rafbyssu og gerði óvígan. Var hann í kjölfarið handtekinn og færður á lögreglustöð. Á sama tíma og þetta var að ger- ast barst slökkviliði borgarinnar tilkynning um að mikill eldur hefði brotist út í nágrenninu. Reyndist það vera í húsnæði sem O’Brien hafði á leigu. Strax var ljóst að töluvert magn af skotvopn- um og eldvörpum var í húsnæðinu en eldurinn var svo mikill að ekki var hægt að meta umfangið sam- stundis. Þann 11. desember var O’Brien leiddur fyrir dómara. Úlnliðir hans og ökklar voru hlekkjaðir saman og hann klæddur í sérstakt vesti til að koma í veg fyrir að hann gæti framið sjálfsvíg. Dómari ákvað að lausnargjaldið yrði fimmtíu þús- und dollarar, eða tæpar sex millj- ónir króna, en krafðist þess að O’Brien gengist undir lyfjapróf áður en honum yrði sleppt. Var hann síðan ákærður fyrir að ráð- ast á lögreglumann með banvænu vopni og innbrot. Fyrir þessi tvö brot gæti O’Brien átt yfir höfði sér lífstíðardóm í fangelsi. Tvær Uzi-byssur og þrjár hauskúpur Dauðarokkarar mala sjaldnast gull eins og poppstjörnur og því átti O’Brien ekki fyrir tryggingar- gjaldinu. Deana Mazurkiewicz, eiginkona trommara bandsins, kom á fót hópsöfnun fyrir hann. Hún sagði: „Pat er ekki með tryggingu og hann tapaði öllu sem hann átti. Þessi söfnun mun hjálpa hon- um að ná bata og kaupa helstu nauðsynjar.“ Þremur dögum eftir úrskurðinn hafði safnast nóg og O’Brien var sleppt úr varðhaldi. Þá hafði eldurinn loks verið alveg slökktur og hægt að meta ástandið á heim- ilinu. Slökkviliðsmenn fundu þá gífurlegt magn af skotvopnum. Sumt var í læstum hirslum og grunur lék á að þar væri sprengi- efni. Af byssum fundust fimmtíu haglabyssur, tíu hríðskotarifflar, tvær Uzi-byssur, tuttugu skamm- byssur og tvær eldvörpur. Einnig fundust þúsundir skotfæra og mörg önnur vopn, sum ólögleg og O’Brien ekki með leyfi fyrir öll- um hinum. Það undarlegasta sem fannst voru hins vegar þrjár haus- kúpur úr mannfólki. Þann 20. desember sendi Cannibal Corpse frá sér eftirfar- andi yfirlýsingu varðandi hand- töku O’Brien: „Sem hljómsveit og einstak- lingar viljum við ekkert nema það besta fyrir Pat, bróður okkar og fé- laga. Við getum ekki gefið frekari upplýsingar um atvikið en við vilj- um láta alla vita að Pat er að fá þá aðstoð sem hann þarfnast og hann kann að meta þann stuðning sem hann hefur fengið frá aðdáendum Cannibal Corpse víðs vegar um heiminn. Pat er nú hjá fjölskyldu og vinum og hyggst snúa aftur til starfa á einhverjum tímapunkti.“ Flösu þeytt á Nasa Cannibal Corpse var stofnuð í des- ember árið 1988 í Tampa en Pat O’Brien gekk til liðs við sveitina árið 1997. Hann hafði áður verið í sveitum á borð við Nevermore og Monstrosity. Cannibal Corpse var þegar orðið eitt af tveimur stærstu dauðarokksböndum heims, ásamt Deicide, en O’Brien var strax talinn efla bandið til muna. Á fyrstu plötunni eftir að hann kom í bandið var hann farinn að semja lög. Hljómsveitin spilar þétt dauðarokk og er bæði þekkt og al- ræmd fyrir viðurstyggilega texta, lagatitla og myndskreytingar á plötum. Meðal laga þeirra má nefna „Entrails ripped from a virgin’s cunt“, „Necropedophile“, „I cum blood“ og „Fucked with a knife.“ Þeir hafa hins vegar látið það vera að fremja guðlast eins og félagar þeirra í Deicide gera óspart. Plötur Cannibal Corpse hafa oft verið bannaðar í hinum ýmsu löndum og hljómsveitinni meinað að koma fram á tónleik- um. Til dæmis í Rússlandi þar sem rétttrúnaðarkirkjan taldi tónlist þeirra hvetja til voðaverka og kyn- brenglunar. Árið 2007 kom Cannibal Corpse til Íslands og hélt tvenna vel heppnaða tónleika á Nasa við Austurvöll. Voru aðrir fyrir átján ára og eldri en hinir opnir öllum aldurshópum. Meðal þeirra ís- lensku banda sem hituðu upp voru Mínus, Severed Crotch og Changer. Greinarhöfundur var viðstaddur aðra tónleikana og staðfestir að sjaldan eða aldrei hefur flösu verið þeytt af jafn mik- illi ákefð hér á landi. n Gylfaflöt 6 - 8 S. 587 - 6688 fanntofell.is BORÐPLÖTUR & SÓLBEKKIR Gítarleikari Cannibal Corpse réðst á lögreglumann með hnífi n Húsið brann til grunna n Þrjár hauskúpur fundust n Íslandsvinur „Pat er nú hjá fjöl- skyldu og vinum og hyggst snúa aftur til starfa á einhverjum tímapunkti Kristinn Haukur Guðnason kristinn@dv.is Cannibal Corpse Bassaleikarinn Alex Webster og söngvarinn George Corpsegrinder. Pat O’Brien Handtekinn í desember.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.