Dagblaðið Vísir - DV - 11.01.2019, Blaðsíða 52
52 11. janúar 2018
Þ
egar bandaríska dagblaðið
Humboldt Times birti les-
andabréf 21. september
1958 skrifaði blaðamaður-
inn Andrew Genzoli athugasemd-
ir við bréfið í dálki við hlið þess. Í
lesandabréfinu sagði lesandinn frá
skógarhöggsmönnum í norður-
hluta Kaliforníu sem hefðu fund-
ið risastór og dularfull fótspor. Í
athugasemd sinni skrifaði Genzoli
meðal annars: „Kannski er þarna
á ferð ættingi Snjómannsins ægi-
lega úr Himalæjafjöllum.“
Þúsund dollarar í verðlaun
Eflaust datt Genzoli ekki í hug
að þessi skrif hans myndu vekja
mikla athygli enda sagði hann síð-
ar að hann hefði einfaldlega talið
þessi dularfullu fótspor vera „góða
sunnudagsfrétt“. En lesendur heill-
uðust af þessu og Genzoli og sam-
starfskona hans, Betty Allen, birtu
framhaldsfréttir um málið þar
sem þau skýrðu frá nafninu sem
skógarhöggsmennirnir höfðu gefið
„verunni“ sem skildi fótsporin eftir
sig. Hana höfðu þeir nefnt Bigfoot,
Stóra fót. Þar með var goðsögnin
orðin til.
Joshua Blu Buhs, höfundur bók-
arinnar Bigfoot: The Life and Times
of a Legend segir að um allan heim
séu til goðsagnir og mýtur um verur
í mannslíki, líkt og Bigfoot. Í vestur-
hluta Kanada er til dæmis til sagan
um Sasquatch meðal Sasq‘ets-
indíána. Á hinn bóginn njóti Big-
foot ákveðinnar sérstöðu því hægt
sé að rekja uppruna hans beint til
fréttar Humboldt Times 1958. Til
séu stakar frásagnir um villta menn
hér og þar í eldri blöðum en al-
mennt séð hafi ekki skapast um-
ræða um Bigfoot fyrr en í lok sjötta
áratugarins.
Skógarhöggsmennirnir kenndu
Bigfoot um ýmis skemmdarverk
en Betty Allen taldi þá ekki trúa
á þessa dularfullu veru í raun og
veru. Hún taldi þá aðeins vera
að segja sögur með „goðsagnar-
yfirbragði“. En þrátt fyrir þetta
tóku fjölmiðlar um öll Bandaríkin
söguna upp og í sjónvarpsþættin-
um Truth or Consequences var
heitið 1.000 dölum í verðlaun ef
einhverjum tækist að sanna tilvist
Bigfoot.
Spor Stórfótar
Gerald Crews var einn þeirra
sem „fann“ fótspor eftir Bigfoot á
upphafsárum tilvistar hans eða
kannski öllu heldur á upphafs-
árum sagna af þessari dularfullu
veru. Hann var að vinna við vega-
gerð þegar hann fann fótsporin.
Hann tók plastafsteypu af þeim
því hann taldi að enginn myndi
trúa honum. Saga hans kveikti
mikinn áhuga fólks og vakti að
vonum vantrú hjá öðrum. Frétta-
menn sýndu þessu að sjálfsögðu
áhuga og fóru á stúfana.
Millie Robbins, sem var blaða-
maður hjá Chronicle í San Frans-
isco, fór á stúfana til að kanna mál-
ið. Hún átti sumarhús ekki fjarri
þeim stað þar sem Crews fann
fótsporin og þekkti hún því svæð-
ið vel. Hún ræddi við vegavinnu-
menn á svæðinu en þeir vildu
ekkert segja um málið. En það
breyttist þegar hún hitti Ray Kerr.
Hann sagðist hafa séð fótsporin og
dýrið sjálft.
„Ég var að aka til vinnubúð-
anna þegar eitthvað stórt hljóp yfir
veginn fyrir framan mig … Það var
loðið og gekk upprétt. Eins og stór
api, er besta lýsingin.“
Táknmynd óbyggðanna
Árið 1967 heyrði Roger Patterson
um fleiri fótspor eftir Bigfoot og
fór til Humboldt til að kanna mál-
ið. Hann fór til Bluff Creek og kom
þaðan með 30 sekúndna upptöku
sem sýnir hávaxna og loðna veru
á ferð í skóginum. Þessi uppptaka
er frægasta „sönnunargagnið“ um
tilvist Bigfoot.
Sagan af Bigfoot átti miklum
vinsældum að fagna í svokölluðum
karlablöðum á næstu árum og
ódýrum kiljum. Í þessum blöðum
og bókum var Bigfoot ávallt karl-
kyns og stórhættuleg vera sem
læddist um í óbyggðum. Þegar
kom fram á áttunda áratuginn var
farið að fjalla um Bigfoot í sjón-
varpsþáttum, heimildaþáttum,
þar sem tilvist hans var rannsök-
uð. Kvikmyndagerðarmenn gerðu
Bigfoot líka skil og var honum oft
lýst sem kynferðislegu rándýri. Á
níunda áratugnum komu mýkri
hliðar Bigfoot fram á sjónarsviðið.
Hann fór að tengjast umhverfis-
vernd og var táknmynd óbyggð-
anna sem þarf að varðveita. Gott
dæmi um þetta er kvikmyndin
Harry and the Hendersons en þar
var Bigfoot vingjarnleg en misskil-
in vera sem þarfnaðist verndar
fjölskylduföðurins, Johns Lithgow,
og fjölskyldu hans.
En af hverju hefur Bigfoot lifað
svo góðu lífi í rúmlega 60 ár? Ef-
laust eru margar ástæður fyrir því
en kannski má segja að hann hafi
orðið fjölmiðlastjarna á sínum
tíma. Það sama á við um hann og
varúlfa, það þarf eiginlega ekki að
útskýra af hverju einhver breytist í
varúlf þegar tungl er fullt og ekki
þarf að útskýra af hverju hávax-
in og loðin vera ráfar um skóga
og óbyggðir. Þetta er bara eitt-
hvað sem er einfalt að tengja við
og vísa í. n
TÍMAVÉLIN - ERLENT
Bigfoot
Hvaðan kom hann og
hvernig varð hann til?
„Það var loðið og
gekk upprétt.
Eins og stór api.
Stórfótur Í skóg-
um Norður Ameríku.
Bigfoot Hjartnæm Hollywood mynd.
Kristján Kristjánsson
ritstjorn@dv.is