Dagblaðið Vísir - DV - 11.01.2019, Blaðsíða 60

Dagblaðið Vísir - DV - 11.01.2019, Blaðsíða 60
60 FÓKUS 11. janúar 2018 S igurður Laufdal er 35 ára gamall, hann ólst upp við tónlist og hefur sjálfur fengist við hana frá því hann var krakki. Í dag eru börn hans komin í tónlistina með föður sín- um, en þau hafa þegar gefið út þrjú lög: tvö frumsamin, auk ábreiðu af einu þekktasta lagi Bubba. „Verkefnið hófst þannig að dóttir mín, Kristjana, fór í tvígang að gráta þegar hún var hjá mér. Þá var hún sex ára gömul. Ég ræddi málið við mömmu hennar, sem ræddi við skóla dótturinar,“ segir Sigurður. Niðurstaðan var sú að dóttir hans væri með listrænan huga sem væri farinn að flakka eitthvað og samdi Sigurður lag handa henni til að útskýra hvernig það virkar. „Ég vildi útskýra fyrir henni hvernig listrænn hugur virkar, þannig að ég tók textann út frá henni. Hún var búin að segja við mig að henni fyndist allt lifandi og var farin að telja upp ljósastaura, grindverk og fleira. Þannig að ég tók textann út frá henni og það er lína í laginu hennar út frá því.“ Svo vel tókst til að þau fóru í stúdíó til að taka lagið upp. Á leiðinni í stúdíóið, kviknaði áhugi hjá syni Sigurðar, Mikael Mána, sem þá var sjö ára. „Ég sagði að ef hann langaði að vera með þá gæt- um við gert hvað sem er fyrir hann. Hann langaði að rappa þannig að ég samdi bara annað lag fyrir hann og skrifa textann út frá honum.“ Í kjölfarið sá Sigurður sér leik á borði að búa til fjöllistahóp úr litlu fjölskyldunni þar sem þau fengju öll vettvang til að tjá sig og skapa. „Hópurinn heitir VOR sem stend- ur fyrir Vitund okkar rís og er settur saman til að skapa og hafa gaman. Þau eru með sitt hvort lagið, síðan er komið lagið Hugsanir þínar, sem söngkonan Brynja Lísa syng- ur með mér og nú síðast tókum við upp ábreiðu af lagi Bubba, Blindsker. „Mamma var ekki í tónlist sjálf, en hlustaði mikið á Bubba þegar ég var krakki og gerir enn í dag og hann var mikill áhrifavaldur á tón- listina hjá mér. Það var því gaman að gera ábreiðu af lagi hans.“ Sigurður fékkst við tónlistina sjálfur frá því hann var krakki og kom fram á árum áður undir nafn- inu Siggi Lauf. „Ég spila á gítar og er einnig að vinna á tölvu með synthesisera, ég hef lítið fengist við tónlistina síðan krakkarnir fæddust, en er að komast í gang aftur. Og þetta verkefni með þeim er til gamans gert. Þau hafa rosa- lega gaman af þessu og sökkva sér með mér í sköpunina og það eru alger forréttindi að fá að gera þetta með börnunum sínum,“ segir Sig- urður og segir börn sín hlusta bara á tónlist eins og gerist og gengur, auk þess sem Kristjana leikur sér að því að gera myndbönd í hinum ýmsu öppum. Sigurður áætlaði sér fjórar vikur í að kenna börnum sínum lögin. „Þau lærðu hins vegar bæði lög og texta samdægurs.“ Engin frekari plön eru um laga- útgáfu hjá Sigurði og börnum hans. „Þetta er bara vettvangur til að tjá sig,“ segir Sigurður og hefur þrí- eykið ekki komið fram og spilað og ekkert slíkt í undirbúningi. „Þetta er aðallega bara listsköpun, sem átti upphaflega að vera fyrir vini og ættingja, en það tókst svo vel til að ég útbjó rás á YouTube, VOR Vit- und okkar rís. Þau vilja bæði skapa og una sér vel í því með mér.“ n MANITOU MLT 625-75 H Nett fjölnotatæki Pétur O. Nikulásson ehf. • Melabraut 23, Hafnarfjörður • Símar: 552 2650 / 552 0110 • pon@pon.is 6.800.000 kr. + VSK Ragna Gestsdóttir ragna@dv.is „Forréttindi að semja lög með börnunum sínum“
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.