Dagblaðið Vísir - DV - 11.01.2019, Blaðsíða 60
60 FÓKUS 11. janúar 2018
S
igurður Laufdal er 35 ára
gamall, hann ólst upp við
tónlist og hefur sjálfur
fengist við hana frá því hann
var krakki. Í dag eru börn hans
komin í tónlistina með föður sín-
um, en þau hafa þegar gefið út þrjú
lög: tvö frumsamin, auk ábreiðu af
einu þekktasta lagi Bubba.
„Verkefnið hófst þannig að
dóttir mín, Kristjana, fór í tvígang
að gráta þegar hún var hjá mér. Þá
var hún sex ára gömul. Ég ræddi
málið við mömmu hennar, sem
ræddi við skóla dótturinar,“ segir
Sigurður.
Niðurstaðan var sú að dóttir
hans væri með listrænan huga sem
væri farinn að flakka eitthvað og
samdi Sigurður lag handa henni til
að útskýra hvernig það virkar. „Ég
vildi útskýra fyrir henni hvernig
listrænn hugur virkar, þannig að
ég tók textann út frá henni. Hún
var búin að segja við mig að henni
fyndist allt lifandi og var farin að
telja upp ljósastaura, grindverk og
fleira. Þannig að ég tók textann út
frá henni og það er lína í laginu
hennar út frá því.“
Svo vel tókst til að þau fóru
í stúdíó til að taka lagið upp. Á
leiðinni í stúdíóið, kviknaði áhugi
hjá syni Sigurðar, Mikael Mána,
sem þá var sjö ára. „Ég sagði að ef
hann langaði að vera með þá gæt-
um við gert hvað sem er fyrir hann.
Hann langaði að rappa þannig að
ég samdi bara annað lag fyrir hann
og skrifa textann út frá honum.“
Í kjölfarið sá Sigurður sér leik á
borði að búa til fjöllistahóp úr litlu
fjölskyldunni þar sem þau fengju
öll vettvang til að tjá sig og skapa.
„Hópurinn heitir VOR sem stend-
ur fyrir Vitund okkar rís og er settur
saman til að skapa og hafa gaman.
Þau eru með sitt hvort lagið, síðan
er komið lagið Hugsanir þínar,
sem söngkonan Brynja Lísa syng-
ur með mér og nú síðast tókum
við upp ábreiðu af lagi Bubba,
Blindsker.
„Mamma var ekki í tónlist sjálf,
en hlustaði mikið á Bubba þegar
ég var krakki og gerir enn í dag og
hann var mikill áhrifavaldur á tón-
listina hjá mér. Það var því gaman
að gera ábreiðu af lagi hans.“
Sigurður fékkst við tónlistina
sjálfur frá því hann var krakki og
kom fram á árum áður undir nafn-
inu Siggi Lauf. „Ég spila á gítar og
er einnig að vinna á tölvu með
synthesisera, ég hef lítið fengist
við tónlistina síðan krakkarnir
fæddust, en er að komast í gang
aftur. Og þetta verkefni með þeim
er til gamans gert. Þau hafa rosa-
lega gaman af þessu og sökkva sér
með mér í sköpunina og það eru
alger forréttindi að fá að gera þetta
með börnunum sínum,“ segir Sig-
urður og segir börn sín hlusta bara
á tónlist eins og gerist og gengur,
auk þess sem Kristjana leikur sér
að því að gera myndbönd í hinum
ýmsu öppum.
Sigurður áætlaði sér fjórar vikur
í að kenna börnum sínum lögin.
„Þau lærðu hins vegar bæði lög og
texta samdægurs.“
Engin frekari plön eru um laga-
útgáfu hjá Sigurði og börnum hans.
„Þetta er bara vettvangur til að tjá
sig,“ segir Sigurður og hefur þrí-
eykið ekki komið fram og spilað og
ekkert slíkt í undirbúningi. „Þetta
er aðallega bara listsköpun, sem
átti upphaflega að vera fyrir vini og
ættingja, en það tókst svo vel til að
ég útbjó rás á YouTube, VOR Vit-
und okkar rís. Þau vilja bæði skapa
og una sér vel í því með mér.“ n
MANITOU MLT 625-75 H
Nett
fjölnotatæki
Pétur O. Nikulásson ehf. • Melabraut 23, Hafnarfjörður • Símar: 552 2650 / 552 0110 • pon@pon.is
6.800.000 kr. + VSK
Ragna Gestsdóttir
ragna@dv.is
„Forréttindi
að semja
lög með
börnunum
sínum“