Dagblaðið Vísir - DV - 11.01.2019, Blaðsíða 6

Dagblaðið Vísir - DV - 11.01.2019, Blaðsíða 6
6 11. janúar 2018FRÉTTIR PIZZERIA DALVEGI 2, 201 KÓPAVOGI DALSHRAUNI 13, 220 HAFNARFIRÐI M aðurinn sem stytti sér aldur í fangelsinu Litla- -Hrauni síðastliðinn þriðjudag hét Þorleifur Haraldsson. Þorleifur, sem ætíð var kallaður Leifi, var fæddur árið 1974 og var því 44 ára gam- all þegar hann lést. Hann lætur eftir sig eina dóttur. Leifi sat inni fyrir ítrekuð brot á umferðarlög- um undir áhrifum vímuefna. Hann var dæmdur í tólf mánaða fangelsi í byrjun árs 2018. Sam- kvæmt heimildum DV hafði Leifi glímt við margs konar fíknivanda um langa hríð. „Hann átti ekki að vera í fangelsi heldur í einhverju meðferðarúrræði. Það er skömm að því að slík úrræði séu ekki til hér á landi,“ segir heimildarmað- ur. Þriðji á tveimur árum Þorleifur er þriðji fanginn sem fellur fyrir eigin hendi innan veggja íslenskra fangelsa á tveim- ur árum og sá sjöundi síðan árið 2001. Þann 13. febrúar 2018 svipti Styrmir Haukdal Kristins- son sig lífi á Kvíabryggju. Í um- fjöllun DV um harmleikinn kom fram að Styrmir hefði glímt við margvísleg geðræn vandamál. Árið 2004 skar hann móður sína á háls í geðveikiástandi. Hún hlaut ekki varanlegan skaða af en síð- ar var Styrmir úrskurðaður ósak- hæfur vegna geðklofa. Ljóst var að Styrmir þurfti nauðsynlega á sálrænni aðstoð að halda en engar skynsamlegar lausnir voru í boði. Til marks um það var hon- um boðið að ræða við sálfræðing í gegnum Skype. Styrmi dreymdi um að ná tökum á lífi sínu en fangelsismálayfirvöld brugðust. Styrmir sagði: „Ég á mér þann draum að geta lifað eðlilegu lífi í óvernduðu umhverfi og það er kannski dá- lítið barnalegt að segja það en vitaskuld langar mig að eignast fjölskyldu í framtíðinni. Mig langar að standa á eigin fótum, vera eðlilegur án vímuefna og lifa samkvæmt því.“ Tæpu ári áður hafði Eiríkur Fannar Traustason, sem afplán- aði dóm fyrir hrottalega nauðgun í Hrísey, svipt sig lífi í fangelsinu á Akureyri. Skömmu fyrir andlát sitt hafði Eiríkur Fannar eignast tvíburasyni með sambýliskonu sinni, Höllu Björg. „Kannski hélstu að þú værir að gera mér greiða með því að svipta þig líf- inu. Það er óbærileg tilhugsun,“ skrifaði Halla Björg í pistli árið 2018 sem vakti mikla athygli og varð til þess að umræða um geð- heilbrigðismál fanga fór á flug. Sama ár tjáði Ragnheiður Hilmarsdóttir sig um son sinn, Hilmar Má Gíslason sem var að- eins 21 árs þegar hann svipti sig lífi í fangelsi árið 2007. Hilmar Már fékk aldrei að hitta sál- fræðing eða geðlækni á meðan hann sat á bak við lás og slá þótt hann hafi verið í brýnni þörf. Ragnheiður sagði: „Ég vil að lögð sé áhersla á að það sé hægt að skila þeim betri út í þjóðfélagið, þá með betri og skilvirkari geðlæknaþjón- ustu og öðru slíku sem má bet- ur fara.“ Hann var dæmigerður ungur smáglæpamaður sem var vistaður á sama gangi og dæmd- ir morðingjar og ofbeldismenn. Lítið hefur breyst í þessum efn- um síðan þá líkt og sorgarsaga Þorleifs staðfestir en Ragnheiður sagði: „Þarna taka þeir þessa ungu stráka og hreinlega murka úr þeim lífið. Hann var þarna 21 árs gamall og þar að auki misþroska og því mikið eftir á sumum svið- um. Ungur og áhrifagjarn strák- ur innan um alla þessa stera- bolta, hann verður auðvitað bara að engu.“ Óyfirstíganlegt verkefni fang- elsissálfræðinga Í rannsókn Boga Ragnarssonar, nema í félagsfræði við HÍ, sem var birt árið 2013 kom fram að á bilinu 54–69 prósent fanga innan veggja íslenskra fangelsa glímdu við þunglyndi. Þá hafði um þriðj- ungur reynt sjálfsvíg. Afar brýnt er því fangar fái viðeigandi sál- fræðiaðstoð, en því er ekki fyrir að fara eins og staðan er í dag. Í fangelsum á Íslandi starfa fjórir sálfræðingar í þremur stöðugildum. Verkefni þeirra er ærið, nánast óyfirstíganlegt. Sál- fræðingarnir eiga að sinna öllum föngum sem eru í afplánun, öll- um þeim sem eru á reynslulausn. Eru þetta hvorki meira né minna en 600 einstaklingar. Ofan á þetta bætist að sálfræðingarnir eiga að sinna starfsfólki og vinna áhættu- mat vegna þeirra einstaklinga sem eru að sækja um úrræði eins og reynslulausn eða Vernd. n ÞORLEIFUR STYTTI SÉR ALDUR Á LITLA-HRAUNI n Sat inni fyrir ítrekuð umferðarlagabrot n Þriðji fanginn á tveimur árum sem fremur sjálfsvíg Eiríkur Fannar Traustason Styrmir Haukdal Þorleifur Haraldsson stytti sér aldur á Litla-Hrauni þann 8. janúar síðastliðinn. Hilmar Már Gíslason
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.