Dagblaðið Vísir - DV - 11.01.2019, Blaðsíða 40
Iðnaður er unaður 11. janúar 2019KYNNINGARBLAÐ
Vermir sf. er gamalgróið pípulagn-ingarfyrirtæki á Húsavík. „Við erum mest í að sjá um pípulagnir
hér í bænum og á svæðinu hér í kring
og fólk leitar til okkar því það veit að við
erum traustir og skilum verkinu af okkur
vel og vandlega unnu,“ segir Hallgrímur
J. Sigurðsson, eigandi Vermis sf.
Fyrirtækið sinnir öllu sem viðkemur
pípulögnum á heimilum, stofnunum og
fyrirtækjum. „Við erum í efnissölu, vinn-
um við nýlagnir, viðgerðir og breytingar,
allt eftir því sem hentar. Einnig sjáum við
um sölu á hreinlætistækjum, blöndunar-
tækjum og fleiru fyrir Tengi ehf.“
Mikil reynsla og þekking
Starfsmenn Vermis sf. eru fimm talsins
ásamt Hallgrími. „Hjá okkur starfa full-
lærðir pípulagningameistarar, verka-
menn og nemar, flestir með gríðarlega
reynslu á bakinu.“ Fyrirtækið stofnaði
Hallgrímur með föður sínum árið 1976
sem hafði þá starfað við pípulagnir í
fjölda ára, og segir hann margt hafa
breyst í pípulagningabransanum síðan
þá.
„Sjálfur hef ég verið í þessu í fjölda
ára og séð margar breytingar. Menn eru
að nota miklu léttari og betri efni í dag,
eins og plast og þess háttar í staðinn
fyrir þungan málm sem á það til að
ryðga. Það er líka meira hreinlæti í nýju
efnunum, engar olíur og þvíumlíkt.“
Nánari upplýsingar má nálgast á
www.vermir.is og Facebook-síðunni:
Vermir sf.
Stórhóll 9, 640 Húsavík
Sími: 898-5513 n
VERMIR SF:
Traustir reynsluboltar í
pípulögnum og fleiru