Dagblaðið Vísir - DV - 11.01.2019, Blaðsíða 38

Dagblaðið Vísir - DV - 11.01.2019, Blaðsíða 38
Iðnaður er unaður 11. janúar 2019KYNNINGARBLAÐ T ímamót urðu í sögu Fannt-ófells fyrir skömmu er fyr-irtækið flutti höfuðstöðv- ar sínar að Gylfaflöt 6–8 í 112 hverfinu í Reykjavík. Þar hefur jafnframt verið tekinn í notkun nýr og glæsilegur sýningasalur. „Hagræðingin við flutninginn er mikil, framleiðslutími styttist og öll aðstaða fyrir starfsmenn er betri. Þá er aðkoma fyrir viðskiptavini miklu betri. Með nýjum og stærri sýningarsal getum við núna sýnt allar framleiðsluvörurnar,“ segir Sigurður Bragi Sigurðsson, fram- kvæmdastjóri fyrirtækisins. Fanntófell sérhæfir sig í fram- leiðslu á borðplötum, skilrúmum, búningsklefaskápum, sólbekkjum, skápa/skúffu prófílum og fleiru, úr harðplasti, Fenix, límtré og akrýlsteini. Sérhæfing Fanntófells frá stofnun 1987 er formbeyging á köntum á harðplastplötum en einnig framleiðir fyrirtækið plötur með beinum kanti í m.a. viðarkant, pvc-kant og laserkant. Fanntófell framleiðir bæði fyrir fyrirtæki og einstaklinga og þá gjarnan í samstarfi við arkitekta, hönnuði og verktaka. Einnig er boðið upp á uppsetningarþjónustu og mælingu. Mikið úrval er af efni, litum og áferðum sem er hægt að skoða í sýningarsalnum að Gylfaflöt. „Fólk kaupir oft innréttingar annars staðar en kaupir síðan borðplöturnar hjá okkur. Einnig kemur oft fólk til okkar sem er að endurnýja borðplötur hjá sér, enda er algengt að skipta um borðplötur þegar flikkað er upp á eldhús. Við erum einnig farin að sérsmíða hurða- og skúffuprófíla eftir máli, þar sem fólk getur skipt út,“ segir Sigurður. Einn helsti kosturinn við þau efni sem Fanntófell vinnur með við sína framleiðslu er hvað þau eru slitsterk og endingargóð. Harðplast er mikið notað í eldhúsborðplötur og almennt í eldhúsinnréttingar. „Akrýlsteinninn er reyndar líka vinsæll en hann hefur endalausa möguleika í hönnun. Samskeyti eru lítt sýnileg og hægt að undirlíma vaska úr sama efni í plöturnar. Fenix er líka áhugaverður kostur þar sem áferð á plötunum er silki- mjúk og efnið hrindir betur frá sér óhreinindum en önnur sambærileg efni,“ segir Sigurður. Hann segir mikla þróun vera á þessu sviði og reglulega komi fram spennandi nýjungar: „Nýjungar hjá okkur eru veggklæðningar frá Rehau og hurðaprófílar sem við smíðum eftir máli. Við stækkun á húsnæði er líka tilvalið að bæta við sig vöruflokkum.“ Fanntófell flytur inn glugga, álglugga, tréglugga og áltré- glugga. Þessa sömu glugga gefur að líta í öllu húsnæði fyrirtækis- ins að Gylfaflötinni. Og nýjung á byggingarmarkaði er 2 Stone gas silica hleðslusteinar fyrir útveggi, milliveggi o.fl. Helstu kostir þeirra eru að þeir eru myglufríir, hljóð- og hitaeinangrun er mjög góð og þetta er auðvelt í uppsetningu. Sjá nánar http://www.2stone.is/ n Fanntófell flutt í nýtt og glæsilegt húsnæði
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.