Dagblaðið Vísir - DV - 11.01.2019, Blaðsíða 30

Dagblaðið Vísir - DV - 11.01.2019, Blaðsíða 30
Iðnaður er unaður 11. janúar 2019KYNNINGARBLAÐ MD VÉLAR: Þenslutengi, sérhæft fyrirtæki með alhliða þjónustu Þenslutengi, sem eru einnig kölluð þenslumúffur, þanar eða bara tengi eru notuð víða og er útfærslan af ýmsu tagi. MD Vélar ehf. sérhæfir sig í þenslutengjum og hefur komið sterkt inn á íslenska markað- inn í samstarfi við VM Kompensator í Danmörku sem býður upp á fyrsta flokks þenslutengi. „Sérstaða VM Kompensator er að þeir bjóða upp á alhliðaþjónustu frá A-Ö. Þá fara þeir út í fyrirtækin og mæla, ráðleggja og sérhanna eftir þörfum. Þá bjóða þeir einnig upp á uppsetningu fyrir við- skiptavininn,“ segir Laila Björk Hjalta- dóttir, fjármála- og viðskiptastjóri MD Véla. Sterk tengi sem þola mikið álag VM Kompensator framleiðir vef- og stáltengi eftir óskum og þörfum við- skipavinarins og er einnig með umboð fyrir gúmmítengi frá Trelleborg. Þann 21. nóvember fékk VM Kompensator ISO 9001. Stáltengin fást frá DN25– DN5000 og hafa þá sérstöðu að öll tengi eru virkjuð, pressuð og teygð til að virkja allar bylgjur í belgnum. Flestir sem hafa unnið með stáltengi kannast við að fyrstu bylgjurnar í hvorum enda eru viðkvæmastar og mæðir mest á þeim og þar slitnar tengið, en með því að nota þessa tækni tekur allur belgurinn við hreyf- ingu og eykur það endingartíma tengisins til muna. Veftengin eru sér- hönnuð eftir þörfum, náið samstarf við viðskiptavininn er lykilatriði til að tryggja að tengin standist þær kröfur og aðstæður sem eru fyrir hendi. Hægt er að hanna tengi sem þola mikið álag frá alls kyns efnum, gufum og hita allt upp í 1000ºC. Alhliða þjónusta og ráðleggingar VM Kompensator hefur það fram yfir marga aðra að veita alhliða þjónustu og liggur að baki margra ára sér- þekking starfsmanna. Einnig bjóða þeir upp á þá aukaþjónustu fyrir stærri fyrirtæki að mæla ástandið á þenslutengjum til að koma í veg fyrir tjón og tryggja rekstraröryggi. „Ef svona tengi fara þá getur það valdið gríðarlegu tjóni og þess vegna er það mikilvægt að vera með réttu tengin og skipta þeim út áður en skaðinn skeður. Eigandi VM Kompensators og sölustjóri koma oft til landsins og koma næst í febrúar, þannig að ef þitt fyrirtæki hefur áhuga á að fá heimsókn, kynningu eða ráðgjöf þá ekki hika við að hafa samband við mig,“ segir Laila. Snögg afgreiðsla MD Vélar var stofnað í byrjun árs 1990 til að annast sölu, ráðgjöf og þjónustu fyrir Mitsubishi-dísilvélar á Íslandi og annan búnað sem tengist þeim. Starfsemin hefur aðallega snúist í kringum sjávarútveginn og veitir fyrirtækið vélaþjónustu, sölu varahluta og viðgerðarþjónustu. „Við erum með umboð fyrir Mitsubishi- og SOLE-dísilvélar frá Spáni. Við erum með stóran varahlutalager en getum einnig útvegað varahluti með stutt- um fyrirvara ef þeir eru til á lager hjá birgja, þetta þýðir að ef þú kemur til okkar að morgni og pantar varahlut getur varahluturinn verið kominn í okkar hendur um hádegi næsta virka dag. Við leggjum okkar metnað í að veita okkar viðskiptavinum bestu þjónustu og ráðgjöf,“ segir Laila Björk Hjaltadóttir. Nánari upplýsingar má nálgast á www.mdvelar.is Vagnhöfða 12, 110 Reykjavík Opnunartími skrifstofu: mán.–fös. 08.00–16.00 Sími: 567-2800 Netfang: mdvelar@mdvelar.is n
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.