Dagblaðið Vísir - DV - 11.01.2019, Page 30
Iðnaður er unaður 11. janúar 2019KYNNINGARBLAÐ
MD VÉLAR:
Þenslutengi, sérhæft fyrirtæki
með alhliða þjónustu
Þenslutengi, sem eru einnig kölluð þenslumúffur, þanar eða bara tengi eru notuð víða og er
útfærslan af ýmsu tagi. MD Vélar ehf.
sérhæfir sig í þenslutengjum og hefur
komið sterkt inn á íslenska markað-
inn í samstarfi við VM Kompensator
í Danmörku sem býður upp á fyrsta
flokks þenslutengi. „Sérstaða VM
Kompensator er að þeir bjóða upp á
alhliðaþjónustu frá A-Ö. Þá fara þeir
út í fyrirtækin og mæla, ráðleggja og
sérhanna eftir þörfum. Þá bjóða þeir
einnig upp á uppsetningu fyrir við-
skiptavininn,“ segir Laila Björk Hjalta-
dóttir, fjármála- og viðskiptastjóri MD
Véla.
Sterk tengi sem þola mikið álag
VM Kompensator framleiðir vef- og
stáltengi eftir óskum og þörfum við-
skipavinarins og er einnig með umboð
fyrir gúmmítengi frá Trelleborg. Þann
21. nóvember fékk VM Kompensator
ISO 9001. Stáltengin fást frá DN25–
DN5000 og hafa þá sérstöðu að öll
tengi eru virkjuð, pressuð og teygð
til að virkja allar bylgjur í belgnum.
Flestir sem hafa unnið með stáltengi
kannast við að fyrstu bylgjurnar í
hvorum enda eru viðkvæmastar og
mæðir mest á þeim og þar slitnar
tengið, en með því að nota þessa
tækni tekur allur belgurinn við hreyf-
ingu og eykur það endingartíma
tengisins til muna. Veftengin eru sér-
hönnuð eftir þörfum, náið samstarf
við viðskiptavininn er lykilatriði til að
tryggja að tengin standist þær kröfur
og aðstæður sem eru fyrir hendi.
Hægt er að hanna tengi sem þola
mikið álag frá alls kyns efnum, gufum
og hita allt upp í 1000ºC.
Alhliða þjónusta og ráðleggingar
VM Kompensator hefur það fram yfir
marga aðra að veita alhliða þjónustu
og liggur að baki margra ára sér-
þekking starfsmanna. Einnig bjóða
þeir upp á þá aukaþjónustu fyrir
stærri fyrirtæki að mæla ástandið á
þenslutengjum til að koma í veg fyrir
tjón og tryggja rekstraröryggi. „Ef
svona tengi fara þá getur það valdið
gríðarlegu tjóni og þess vegna er það
mikilvægt að vera með réttu tengin
og skipta þeim út áður en skaðinn
skeður. Eigandi VM Kompensators
og sölustjóri koma oft til landsins og
koma næst í febrúar, þannig að ef
þitt fyrirtæki hefur áhuga á að fá
heimsókn, kynningu eða ráðgjöf þá
ekki hika við að hafa samband við
mig,“ segir Laila.
Snögg afgreiðsla
MD Vélar var stofnað í byrjun árs
1990 til að annast sölu, ráðgjöf og
þjónustu fyrir Mitsubishi-dísilvélar á
Íslandi og annan búnað sem tengist
þeim. Starfsemin hefur aðallega
snúist í kringum sjávarútveginn og
veitir fyrirtækið vélaþjónustu, sölu
varahluta og viðgerðarþjónustu. „Við
erum með umboð fyrir Mitsubishi- og
SOLE-dísilvélar frá Spáni. Við erum
með stóran varahlutalager en getum
einnig útvegað varahluti með stutt-
um fyrirvara ef þeir eru til á lager hjá
birgja, þetta þýðir að ef þú kemur til
okkar að morgni og pantar varahlut
getur varahluturinn verið kominn í
okkar hendur um hádegi næsta virka
dag. Við leggjum okkar metnað í að
veita okkar viðskiptavinum bestu
þjónustu og ráðgjöf,“ segir Laila Björk
Hjaltadóttir.
Nánari upplýsingar má nálgast á
www.mdvelar.is
Vagnhöfða 12, 110 Reykjavík
Opnunartími skrifstofu: mán.–fös.
08.00–16.00
Sími: 567-2800
Netfang: mdvelar@mdvelar.is n