Dagblaðið Vísir - DV - 11.01.2019, Blaðsíða 27

Dagblaðið Vísir - DV - 11.01.2019, Blaðsíða 27
Iðnaður er unaður 11. janúar 2019 KYNNINGARBLAÐ Aukin þægindi fyrir sjálfstætt starfandi einstaklinga Ef þú ert sjálfstætt starfandi einstaklingur hefur þú ör-ugglega velt fyrir þér hlutum á borð við reikningagerð, virðis- aukaskatt, launatengd gjöld og skil á opinberum gjöldum. Hjá mörgum getur það verið yf- irþyrmandi og tímafrekt verkefni að þurfa að passa upp á þessa þætti í hverjum einasta mánuði. Hjá þjón- ustunni Payday er hægt að leysa vandamálið með einföldu en öflugu kerfi sem er sérsniðið að þörfum sjálfstætt starfandi einstaklinga. Þjónustan sér sjálfkrafa um skil á launatengdum gjöldum. Payday er hvort tveggja í senn, hugbúnaður og þjónusta. Um er að ræða lausn fyrir fyrirtæki og einstaklinga sem selja út vinnu sína og/eða þjónustu og gerir notend- um kleift að halda utan um allt sem viðkemur launagreiðslum og reikningum á einum stað. Payday gefur út reikninga, stofn- ar þá í heimabanka greiðanda, sér til þess að allar lögbundnar greiðslur séu inntar af hendi til þar til bærra aðila og auðveldar not- endum að halda utan um og hafa yfirsýn yfir stöðu rekstrarins hverju sinni. Mikið er lagt upp úr því að hugbúnaðurinn sé notendavænn og sem einfaldastur í meðförum. Það tekur aðeins örfáar mínútur að stofna aðgang að Payday, að því loknu getur þú byrjað að senda reikninga eða greiða þér út laun. Það er ekki jafn flókið að halda utan um reksturinn og þú hefur haldið til þessa, Payday sér til þess. Payday veitir þér þá yfirsýn yfir reksturinn sem þig hefur alltaf dreymt um. Með auðveldum hætti sérðu hvað þú átt útistandandi í ógreiddum reikningum, hverjar tekjurnar eru í hverjum mánuði, hvað þú greiðir í skatt og hvað er til ráðstöfunar. Með þessu móti ættir þú að verða öruggari með rekstur- inn og þá um leið verða ákvarðanir tengdar rekstrinum auðveldari. Þú þarft ekki lengur að muna hvenær það eru skil á staðgreiðslu eða lífeyrissjóðsgreiðslum, Payday passar upp á það fyrir þig. Payday passar upp á að allt sé í skilum á réttum tíma og kemur þannig í veg fyrir óþarfa kostnað og áhyggj- ur. Framtíðarsýn Payday er sú að bókhald verði sjálfvirkara með hjálp gervigreindar. Þannig verður hægt að lesa sjálfvirkt inn reikn- inga og kvittanir sem bókaðar eru sjálfkrafa inn í kerfið og stemmd- ar af með beintengingum við bankareikninga fyrirtækja. Payday hefur unnið Nordic Startup Awards 2018 á Íslandi sem besta FinTech Startup. Þess má einnig geta að þjónustan náði mikilvægum áfanga við síðustu uppfærslu í desember. Núna er fyrirtækjum með fleiri en einn starfsmann boðið upp á stóru áskriftarleiðina okkar (sem nefnist Allur pakkinn). Þessi breyting opnar á alveg nýjan markhóp sem eru örfyrirtæki og lítil fyrirtæki. n
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.