Dagblaðið Vísir - DV - 11.01.2019, Blaðsíða 48

Dagblaðið Vísir - DV - 11.01.2019, Blaðsíða 48
48 11. janúar 2018 Tímavélin Gamla auglýsinginVísir 4. júní 1920 S umarið 1975 fundu nokkrir krakkar úr Vesturbænum mannabein grafin við Faxa- skjól. Beinagrindin var nokkuð heilleg en fatalaus að undanskildum einum sokk. Eftir að krakkarnir grófu upp flest bein- in kom lögreglan á staðinn en rannsóknin var ansi ófagmannleg. Sérstaklega í ljósi þess að senni- lega var um sakamál að ræða. Jóhann Wathne var einn þeirra drengja sem grófu upp beinin. Hann segir að málið leiti enn þá á hann þar sem það upplýstist aldrei. Eins og í Frank og Jóa Um páskana árið 1975 voru nokkr- ir drengir um tólf ára aldur að leik í fjörukambinum við Faxaskjól í vesturbæ Reykjavíkur. Grófu þeir ofan í jörðina og komu þá niður á tvö stór bein, sennilega lærleggi. Nokkru síðar, mánudaginn 7. júlí, fóru þeir aftur á sama stað til að grafa og komu þá fleiri bein í ljós. Jóhann Wathne, þá búsettur við Faxaskjól 4, var einn af þess- um drengjum. Hann segir að bein- in hafi fundist við Faxaskjól 12 þar sem einn af drengjunum bjó, á um það bil eins metra dýpi innan í steyptum stokki. „Við vorum mikið að leika okk- ur þarna í móunum og skurðun- um. Þetta var ábyggilega gömul skotgröf frá tíma herliðsins. Fyrir framan var hóll og við vorum bún- ir að grafa okkur í gegnum hólinn til að gera kofa þarna í gröfinni. Þegar við fundum lærbeinin var okkur sagt að þau væru ábyggi- lega af kúm. Þegar við fórum aftur að grafa þarna seinna um sumarið fundum við sokk. Þetta var nokk- uð heillegur sokkur og við sturt- uðum kjúkunum og fótbeinunum úr honum. Þá áttuðum við okkur á því að þetta væri af manni.“ Drengirnir urðu mjög spenntir yfir þessum fundi og héldu áfram að grafa. Þá fundu þeir hvert beinið á fætur öðru. Einnig fundu þeir tvær byssukúlur og pípuhaus en engin önnur föt en sokkinn. Jóhann segir að strákarnir hafi alist upp við að lesa bækurnar um Frank og Jóa. Þarna voru þeir lent- ir í slíku ævintýri. „Að lokum fundum við haus- kúpuna. Einn af okkur tók kjálk- ann og hljóp um allt með hann. Þegar við vorum búnir að grafa þetta allt upp létum við afa eins okkar vita af fundinum. Hann hringdi þá á lögregluna.“ Rannsóknarlögreglumenn komu á svæðið, fóru í gegnum allan hauginn og tóku beinin. Einnig grófu þeir sjálfir og fundu fleiri bein en krakkarnir fundu þau flest. Svæðið var hins vegar ekki lokað af eins og venjulega er gert á vettvangi glæps þó að að- stæðurnar þættu grunsamlegar. Krakkarnir héldu „rannsókninni“ áfram Magnús Eggertsson og Haukur Bjarnason sáu um rannsókn máls- ins hjá lögreglunni. Haukur sagði við Þjóðviljann þann 9. júlí 1975 að frumrannsókn málsins hefði tekið tvo tíma, frá klukkan eitt til þrjú. Lögreglan amaðist ekki við því að krakkarnir héldu áfram að grafa. „Þau eru komin á kaf í lögreglu- mál, og finni þau fleiri bein eða skot, mun lögreglan þiggja þá að- stoð með þökkum,“ sagði Haukur. Magnús sagði að frekari rannsókn á staðnum yrði ekki gerð nema að nýjar upplýsingar kæmu fram sem krefðust þess. Lögreglan spurði þó íbúana í nágrenninu, í Faxaskjóli og Sörlaskjóli, um þennan stað og hvort þeir hefðu séð eitthvað óvanalegt í kringum hann en ekk- ert kom úr því. Þegar lögreglumennirnir voru farnir af svæðinu fóru krakkarnir þangað aftur og héldu áfram að grafla í jörðinni. Voru þar börn allt niður í þriggja ára aldur. Fundu þau þá meira að segja nokkur bein til viðbótar. Jóhann segir að einn strákanna hafi átt hund sem tók eitt beinið og fór að naga það. „Eftir á að hyggja var undarlegt hvernig tekið var á þessu máli. Það var heldur ekki talað um þetta eins og um sakamál hafi verið að ræða,“ segir hann. Tölduð þið að þetta hefði verið morð? „Já, við fórum alveg á fullt með það og örugglega frá stríðsárunum eða síðar út af skotgröfinni. Hverf- ið fer síðan að byggjast þarna upp í kringum 1950. Það er enginn sem dettur þarna og deyr og grefur síð- an yfir sig. Auk þess hefur líkið sennilega aðeins verið í sokkum.“ Byrgin fyllt 1954 Í Faxaskjóli reisti hernámsliðið mikil mannvirki, bragga og fleira. Á þeim stað sem beinagrindin fannst var skotæfingasvæði og því hugsanlegt að byssukúlurnar hafi verið frá þeim tíma. Kúlurnar voru 45 kalíber sem var harla óvana- leg stærð fyrir skotvopn á Íslandi. Hins vegar var stærðin algeng í skotvopnum fyrir heri. Við stokk- inn þar sem beinin fundust stóðu skotmörk sem dátarnir skutu að og kúlur því hæglega geta lent í jarðveginum. Það útskýrir hins vegar ekki af hverju líkið endaði þarna grafið, að mestu klæðlaust. Svæðið var vinsælt leiksvæði barna eftir stríðið. Á fyrri hluta sjötta áratugarins var það rutt og grafið ofan í byrgin, meðal annars grasi, mold og torfi úr görðum í nágrenninu. Kunnugur maður sagði að byrgin hefðu verið orðin full árið 1954. Benti það til þess að líkið hefði verið sett þar ofan í um þetta leyti eða síðar. Á móti kemur að staðurinn var þá orðinn sérlega óhentugur til þess að grafa lík, að- eins um þrjátíu metrum frá næsta íbúðarhúsi. Karlmaður með slæman neðri góm Beinin voru flutt á rannsóknar- stofu Háskóla Íslands til aldurs- Nokia 7.1 Með öllu því nýjasta frá Google • 12 mp tvöföld ZEISS myndavél • full hd+ 5.84” hdr skjár • 4/64gb minni ÍMYND GLÆSILEIKANS Börn fundu beina- grind við Faxaskjól n Óupplýst morð? n Rannsókn ekki tekin alvarlega n Karlmaður um fertugt með slæman góm Kristinn Haukur Guðnason kristinn@dv.is Rannsóknarlögreglan Grófu eftir beinum og vísbendingum. Krakkarnir við Faxa- skjól Þjóðvilj- inn 9. júlí 1975.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.