Dagblaðið Vísir - DV - 11.01.2019, Blaðsíða 18

Dagblaðið Vísir - DV - 11.01.2019, Blaðsíða 18
18 SPORT 11. janúar 2018 Smiðjuvegur 4C - 202 Kópavogur - S 587 2202 Ryðga ekki Brotna ekki HAGBLIKK Álþakrennur & niðurföll Litir á lager: Svart, hvítt, ólitað, rautt, silvurgrátt og dökkgrátt Þ að stefnir í harða baráttu þegar kosið verður til for- manns Knattspyrnusam- bands Íslands, í byrjun næsta mánaðar. Þar mun Guðni Bergsson, sitjandi formaður, takast á við Geir Þorsteinsson, heiðurs- formann KSÍ og fyrrverandi for- mann og framkvæmdarstjóra KSÍ. Tvö ár eru síðan Geir lét af störf- um. Hann vildi ekki fara í baráttu við Guðna sem þá sóttist eftir starf- inu og Björn Einarsson sem laut í lægra haldi gegn Guðna. Framboð Geirs hefur vakið athygli, hann var nokkuð umdeildur í starfi en gerði margt gott fyrir fótboltann hér á landi. Eftir tvö ár á hliðarlínunni vill Geir aftur inn í starfið, en hvað býr að baki? Ómögulegt að ná í Geir Blaðamaður hefur frá því á mánu- dag reynt að ná í Geir, tugir sím- tala, fjöldi skilaboða og tölvu- póstur hafa borist til hans. Hringt hefur verið úr mismunandi síma- númerum, þótt ekki væri nema til að fá ástæðu þess að hann neiti að ræða við blaðamanninn sem þetta skrifar eða fjölmiðilinn í heild. Geir hefur iðulega tekið upp tólið þegar undirritaður hef- ur hringt, eitthvað hefur breyst í þeim efnum á þeim tveimur árum sem liðin eru síðan hann lét af starfi formanns, þótt sam- skiptin hafi ekki verið nein á þeim tíma. Þeim ástæðum er hins vegar ómögulegt að átta sig á, enda eitt- hvað sem Geir hefur ekki viljað útskýra þrátt fyrir óskir þess efnis. Er Geir kandídat ÍTF? Áður en Geir bauð sig fram, var orðrómur þess efnis farinn að kvisast. Strax fóru að berast sög- ur um að hann væri kandídat ÍTF, sem eru hagsmunasamtök félaga í efstu tveimur deildunum á Íslandi. Geir hefur neitað þeim sögum en þær eru lífseigar. ÍTF hefur verið sá aðili sem hefur gagnrýnt starf KSÍ í stjórnartíð Guðna. Málflutningur Geirs í öðrum miðlum bendir til að hann sé að reyna sækja atkvæði sín einna mest í þeirra raðir. Eins og áður hefur komið fram gat blaðamaður ekki fengið svör frá Geir um það mál eða önnur sem fólk hefur áhuga á. n SVARAR EKKI ÍTREKUÐUM FYRIRSPURNUM Hörður Snævar Jónsson hoddi@433.is n Heiðursformaður KSÍ virðist ekki hafa áhuga á að ræða við fjölmiðla í eigu Frjálsrar fjölmiðlunar Af hvaða hugsjón vilt þú aftur koma inn í starf formanns KSÍ? Þú hefur verið á hliðarlínunni í tvö ár, hvaða vondu ákvarðanir hefur KSÍ tekið á þeim tíma? Þú starfaðir hjá sambandinu í rúmlega 20 ár, þú talaðir á dögunum um að íslensk knattspyrna væri ekki á góðum stað. Berð þú ekki mikla ábyrgð á því eftir allan þinn tíma í starfi? Er eðlilegt að þú hafir þurft að taka skref til baka til að sjá að KSÍ væri á vondri vegferð, eins og þú heldur fram? Í stað þess að sjá það í starfi þínu öll þessi ár og grípa í taumana? Þú talaðir um að gera þyrfti breytingar hjá KSÍ, hvaða breytingar eru það? Þú ert sagður vera maðurinn sem ÍTF (Íslenskur toppfót- bolti) vill fá í starfið, ertu þeirra frambjóðandi? Er fram- boð þitt tengt við ÍTF? KSÍ hefur lagt til um 400 milljónir króna til aðildarfélaga sinna á þessu ári, þarf að auka þá fjármuni? Þú ert á leið í baráttu við Guðna Bergsson, sem er sitjandi formaður. Ertu sigurviss? Í tíð þinni sem formaður komu upp erfið mál, áttu von á því að þau verði notuð til að koma á þig höggi í baráttunni sem fram undan er? SPURNINGAR SEM ÁTTI AÐ LEGGJA FYRIR GEIR?
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.