Dagblaðið Vísir - DV - 11.01.2019, Blaðsíða 44
44 FERÐALÖG 11. janúar 2018
Þ
að má leiða að því líkur
að Katrín Sif Einarsdóttir
sé víðförlasti Íslending
ur allra tíma. Þrátt fyrir
að vera aðeins á þrítugasta og
fyrsta aldursári hefur Katrín Sif
ferðast til 217 landa á jarðar
kringlunni. Rétt er að geta þess
að viðurkennd ríki Sameinuðu
þjóðanna eru 195 talsins en með
því, til dæmis, að telja Grænland
og Færeyjar sem sér lönd í stað
Danmerkur er með góðu móti
hægt að telja upp í um 230 lönd.
Katrín Sif byrjaði ung að árum
að ferðast. Faðir hennar er ís
lenskur en móðir hennar er ætt
uð frá Suður Ameríkuríkinu
Gvæjana. Eftir viðskilnað for
eldra hennar ólst hún upp í
Vancouver í Kanada en heim
sótti Ísland reglulega. Fyrir rúmi
ári fjallaði DV um þau tímamót
Katrínar Sifjar að ná að ferðast til
200 landa fyrir þrítugt. Það tókst
henni þegar hún dvaldi á Mal
diveseyjum yfir afmælið sitt en
áttaði sig þá á því að hún hafði
talið vitlaust og var í raun að
ferðast til lands númer 201!
Blaðamaður nýtti tækifærið
þegar Katrín Sif var á landinu á
dögunum til þess að setjast nið
ur með henni og ræða ferðalög
in og lífsstílinn sem hún efast
um að hún geti nokkurn tímann
gefið upp á bátinn. Hún stendur
á vissum tímamótum því faðir
hennar, Einar Óskarsson, lést í
sumar. „Það var auðvitað mikið
áfall og það er búið að taka tals
verðan tíma að ganga frá öllum
lausum endum.“
Er ekki í keppni í að safna löndum
Það er mjög óvanalegt að Katrín
Sif sé stödd á Íslandi yfir vetrar
mánuðina enda segist hún ekki
vera mikil aðdáandi íslenska vetr
arins og þá er það sérstaklega
myrkrið sem leggst yfir allt
drjúgan hluta sólarhringsins.
„Ég upplifi Íslendinga oft eins og
hálfgerð bjarndýr, sem leggjast
í dvala á veturna en hressast svo
og leika á als oddi á sumrin,“ seg
ir hún. Þrátt fyrir að elska Ísland
þá er hún hrifnari af því að elta
sólina. „Ísland á stærstan sess í
hjarta mínu. Því meira sem ég
ferðast um heiminn því meira
elska ég landið. Þrátt fyrir að ég
hafi tengingar víða þá er Ísland
alltaf staðurinn sem ég kalla
SULTU TVENNA
Chilli sulta og rauðlauk sulta
Er líklega
víðförlasti
Íslendingurinn
Björn Þorfinnsson
bjornth@dv.is
n Hefur ferðast til 217 landa
n Árstekjurnar hafa aldrei
farið yfir eina milljón
Katrín Sif kunni vel við sig í jóganámi í Goa